Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er mánudagurinn 26. okt- óber 2009, 299. dagur ársins. 8.52 13.12 17.30 8.45 12.56 17.07 Lætin voru svo mikil í mellun-um, að þær hlupu unnvörpum um borð, ruku niður í lúkar og ber- háttuðu sig þar umsvifalaust, til að sýna á sér skrokkana. ... Þær voru bráðmyndarlegar stúlkur margar, nokkuð þykkvaxnar. Það er ein- hver töggur í þessu kvenfólki,“ segir Íslendingur nokkur um rúss- neskar vændiskonur í ævisögu frá áttunda áratug síðustu aldar. Hann lætur fylgja með að hann hafi verið með einni „þarna í lúkarnum“. Við- horf íslenskra karlmanna til vænd- is hefur jafnan einkennst af barna- skap. ÞEIR virðast líta á vændiskonur sem hressar stúlkur sem stand- ist einfaldlega ekki svona víkinga. Og þó svo þeir gauki peningum að dömunum? En nú hefur þjóð- in vaknað við vondan draum. Hér hafa menn orðið uppvísir að man- sali. Karlar svipta konur frelsinu og aðrir karlar borga síðan þess- um körlum fyrir að fá að nauðga þeim. Til eru íslenskir karlmenn sem fúlsa ekki við því. Ekki eru það bara konur sem pyntaðar eru á þennan hátt því unglingsstúlkur sleppa ekki. Hærra verð fæst fyrir þær sem hafa verið „skólaðar til“, þ.e.a.s. pyntaðar tímunum saman, oft af hópi karla. Þaðan í frá geta kvalararnir haft hemil á þeim með augnaráðinu einu. ÞAÐ segir mikið að litháíska stúlk- an sem kom hingað fyrir tveimur vikum, og landar hennar hugðust selja í vændi, skuli hafa verið send ein í flugi. Enginn virðist hafa átt von á að hún veitti mótspyrnu. Lög- reglan hefur verið undir smásjá, enda almenningur forvitinn um hvernig hún brygðist við. Alltaf má gera betur. Fáeinum dögum eftir komu stúlkunnar stóð á lögreglu- vefnum að götuvændi færi vaxandi hér og síðan sagt: „Í höfuðborgum nágrannalandanna hafa erlendar vændiskonur, sem leita viðskipta- vina á götunni, valdið margvísleg- um vanda á undanliðnum árum.” Þessi undarlega fullyrðing var síðan étin upp af Morgunblaðinu. Í Bylgjuviðtali nokkru síðar benti Stefán Eiríksson lögreglustjóri þó á að framboðið væri ekki vandamál- ið við vændi, heldur eftirspurnin. Nákvæmlega! Við vitum of mikið til að geta lokað augunum fyrir eymd annarra. Framan á bókar- kápu ævisögunnar sem ég minnt- ist á í upphafi stendur: „Þú hlærð þig máttlausan við lesturinn og á stundum getur þú ekki lesið fyrir hláturrokunum.“ Jú, ætli maður hlæi ekki af feginleik yfir að dætur íslenskra sjómanna hafi ekki verið neyddar til að sýna allan þann tögg sem í þeim býr. Konur sem töggur er í www.icelandexpress.is Ísland Bandaríkin Reykjavík Akureyri Varsjá Kraká Bergamo Bologna Barcelona Alicante Berlín Kaupmannahöfn Billund Álaborg Gautaborg Ósló London Gatwick Stansted Birmingham Friedrichshafen Genf Basel Frankfurt Hahn Rotterdam París Evrópa Lúxemborg Rödd skynseminnar F í t o n / S Í A F I 0 3 0 8 4 6 með ánægju Bókaðunúna! Heilbrigð samkeppni er nauðsynleg og neytendum alltaf til góða. Í næstum sjö ár hefur Iceland Express boðið ferðalöngum samkeppnishæft verð og gert þeim sem eru í ferðahug kleift að gera verðsamanburð og velja hagkvæmustu og þægilegustu leiðina hverju sinni. Iceland Express hefur breytt flugsamgöngum til og frá Íslandi og með áætlunarflugi til Bandaríkjanna 2010 gerum við enn betur fyrir ferðaglaða neytendur. Virk samkeppni, gott verð og góð þjónusta – það er þannig sem við hjá Iceland Express hugsum það. 24.900 kr. Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Bandaríkin frá: 14.900 kr. Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Evrópa frá: Af hverju er dýrara að fljúga til Stokkhólms en Kaupmannahafnar? F í t o n / S Í A F I 0 3 0 8 4 6 Er það af því að bara eitt flugfélag flýgur til Stokkhólms á meðan tvö fljúga til Køben? New York

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.