Iðnneminn - 01.05.1994, Qupperneq 6
IUÝ STJÓRIU TEKIHI VIÐ
í SKÓLAFÉLAGI IÐIUSKÓLAIMS í REYKJAVÍK
Fráfarandi framkvæmdastjórn
Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík
(veturinn '93 - '94) tók upp stefnu-
skrá sem er harla ólík stefnuskrám
flestra framhaldsskóla á landinu.
Strax í upphafi kjörtímabils okk-
ar var það ákveðið að innan skól-
ans yrðu engin stór böll haldin.
Hinsvegar voru margar skemmtan-
ir innan deilda sem tókust virki-
lega vel. Við einbeittum okkur að
starfi sem hentaði betur iðnnem-
um, iðnnemar eru jú ívið eldri en
framhaldsskólanemar almennt (í
IR er meðalaldur nálægt 23 árum).
Mikill kraftur fór í baráttu fyrir
betri aðstöðu fyrir nemendur og
einnig í úrbætur í réttindamálum.
Margt vannst eins og td. hjá Félagi
tölvubrautarnema sem fengu því
framgengt að nemar á þeirri braut
munu útskrifast með titilinn tölvu:
fræðingur. Krafa um bætta aðstöðu
fyrir nemendur innan IR var af-
greidd af hálfu Menntamálaráðu-
neytis þannig að nemendur skyldu
hírast við óbreyttan húsakost
næstu 3-6 árin þar til að nýr bíl-
greinaskóli verður tilbúinn. At-
huga skal að enn á eftir að teikna
þennan nýja skóla. Önnur stór mál
voru alltof mörg til að telja hér
upp en mörg þeirra voru til komin
vegna skilnings- og tillitsleysis
skólayfirvalda.
í takt við öflugt vetrarstarf
stjórnarinnar var ákveðið að næsta
stjórn skyldi berjast fyrir kjöri til
að sanna sig. Allir frambjóðendur
voru hvattir til að taka kosninga-
baráttuna alvarlega en tveir listar
buðu sig fram og háðu mikið áróð-
ursstríð þar sem skotin flugu á
milli, bæði á framboðsfundi og í
auglýsingum þeirra.
Sá listi er sigraði kosningarnar
hlaut frækinn sigur eða um 80%
greiddra atkvæða en mótframboð-
ið náði um 15%. 5% kjörseðla
voru auðir eða ógildir. Rúmlega
500 manns tóku þátt í þessum
kosningum eða um 28% nemenda
skólans og hefur þátttakan ekki
verið meiri undanfarin 10-15 ár.
Nýju stjórnina skipa:
Þórir Karl Jónasson,
formaður
Hulda Patricia Haraldsdóttir,
varaformaður
Tryggvi Arnarson,
ritari
Jóhann B. Einarsson,
gjaldkeri
Haraldur Tryggvason,
meðstjórnandi
Hróar Þór Reynisson,
ritstjóri
Hilmar Kári Hallbjörnsson,
formaður skemmtinefndar
r
Hin nýkjörna stjórn Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík
Þórir Karl ætti að vera flestum
kunnur því hann er núverandi for-
maður Tölvubrautarnema í IR.
Einnig hefur hann starfað mjög vel
fyrir Iðnnemasambandið frá síð-
asta þingi þess. Hann er formaður
Kjaramálanefndar INSI og hefur
þar stýrt tveimur opnum fundum á
vegum samtakanna.
Fráfarandi framkvæmdastjórn
óskar stjórninni til hamingju með
kosningasigurinn og vonast til að
hún haldi áfram á þeirri braut sem
við höfum markað.
Sveinbjörn Þormar,
ritstjóri Iðnnemans
ogfráfarandi ritari SIR
V,SS«/>0AÐ
...að allir iðnnemar
í föstu vinnu-
sambandi eiga
rétt á fullri
oriofsuppbót,
kr. 5.300,-?
UM ATVimmULEYSISBÓTARÉTT IÐmmEMA
Til þess að eiga rétt á atvinnuleysis-
bótum þarf iðnnemi að hafa unnið að
lágmarki 425 dagvinnustundir síðustu
12 mánuði. Þetta gefur 25% bætur sem
er lægsta prósentan en hækkar um 1%
við hverjar 17 dagvinnustundir eftir
það.
Þeir iðnnemar sem eru skuldlausir
félagar í Iðnnemasambandi íslands og
verða atvinnulausir eftir að hafa lokið
samningi geta fengið atvinnuleysisbæt-
ur frá sínu fagfélagi.
Ef iðnnemi, sem hefur áunnið sér
bótarétt, hefur auk þess stundað skóla-
nám á siðustu 12 mánuðum í a.m.k 6
mánuði og lokið námi, eða einsýnt
þykir að hann hafi hætt námi, skal
reikna honum 520 dagvinnustundir til
viðbótar vegna námsins en það er um
55% bætur í heildina með 425 lág-
marksstundunum.
Þetta á eingöngu við um þá sem
ljúka námi og tekur því ekki gildi fyrr
en á næstu önn þegar ljóst er að nemi
er ekki lengur skráður í skóla. Fær
nemi þá þessar stundir melnar aftur í
tímann þannig að ef hann hefur verið
atvinnulaus um sumarið fær hann 30%
til viðbótar um haustið.
Að geyma bótaréttinn
í lögunum er gert ráð fyrir að sá sem
hættir að vinna til að fara í nám geti
geymt bótarétt sinn í allt að 24 mán-
uði. Þetta á ekki við um þá sem ein-
göngu vinna yfir sumartímann.
Að skrá sig atvinnulausan
Brýnt er að allir atvinnulausir iðn-
nemar skrái sig hjá sínu sveitarfélagi,
jafnvel þó þeir eigi ekki rétt á bótum
því alltaf er möguleiki að þeir fái
vinnu ef þeir eru skráðir. Einnig skal
bent á AMIN, Atvinnumiðlun iðn-
nema sem er til húsa að Skólavörðu-
stíg 19 í Reykjavík. Sími 91-14410.
Páll Svansson, ritari INSÍ
6