Iðnneminn - 01.05.1998, Blaðsíða 15
Önnur nýjung er vatnsnefið sem er úr
áli neðst og fremst á hurðinni!!
K.Richter
HDUF-5TDP
K. Richter heildverslun hf. er umboðsaðili danska
fyrirtækisins DAFA hér á landi. Aqua-Stop
útihurðarþröskuldurinn er'enn ein nýjungin frá
DAFA sem hentar vel við íslenskar aðstæður.
Flér eru nefndar tólf góðar ástæður fyrir því að velja
Aqua-Stop.
1) Ef vatn kemst inn fyrir þéttingar þá „drenar“
það fljótt og vel út um vatnsrásirnar.
2) Vegna sérstaks þéttilista er ekki vindtrekkur um
vatnsrásina.
3) Hin frægu loftbólu- og vindhljóð eru óþekkt í
Aqua-Stop þröskuldinum.
4) Hámarkshæð er ekki til trafala fyrir fatlaða,
er mest 25 mm.
5) Auðvelt fyrir fólk í hjólastól að komast yfir.
Hæðarmunur í falsi þröskulds er 13,6 mm.
6) Margir möguleikar á samsetningu.
7) Breið og góð kuldabrú.
8) Hátt einangrunargildi. Lítið hitaflæði út um þröskuldinn.
9) Sami prófíll hentar bæði fyrir inn-opnun og út-opnun.
10) Hægt er að gera hámarkskröfur til þéttinga bæði
fyrir inn- og út-opnun.
11) Traustari kostur en harðviður hvað varðar þéttingu.
Er líka mun ódýrari.
12) Prófaður í slagregnsskáp, 700 pa, enginn
leki og engin vindhljóð.