Iðnneminn - 01.05.1998, Blaðsíða 19
saltfisk sem átti að höföa til sem flestra og út-
færðurn við hann þannig að við blönduðunr
hann með humarkjöti, kartöflum, cayannepip-
ar og htátlauk. Það sem gerði þennan rétt
kannski öðruvísi var að með honurn var borin
fram maíssósa. Var mál manna að vel heföi tek-
ist til með þennan rétt. Með honum var drukk-
ið spænskt Rioja rauðvín, Marques Puerto Cri-
anza.
Til að hressa upp á bragðlaukana og undirbúa
gestina undir aðalréttinn var borinn fram hind-
berjabragðbættur krapís i fagurskreyttum is-
skálum.
Aðalrétturinn var næstur á borð borinn og
varð íslenska lambið fyrir valinu. Akveðið var
að taka afturhrygginn og binda hann upp með
lundina og spínatið sem fyllingu. Þar sem mik-
ið af kartöflum var í fiskréttinum var ákveðið að
sleppa þeim í aðalréttinum og hafa ítalska maís-
böku (polentu) ásamt smátt skornu og
tómatseruðu grænmeti sem sett var í turn og
falleg sneið af lambinu þar ofan á. Með þessu
var borin fram lambasoðsósa með tómattening-
um og hvídauk. Með lambinu var drukkið Vill-
ard cabernet sauvignon vín frá Chile.
Eftirrétturinn var útbúinn af bakaranemum
skólans. Hann var ekki síðri en það sem á und-
an haföi komið. Þeir buðu upp á romm og rús-
ínuístertu með jarðarberjum. Með ísnum var
boðið upp á Cockburn's Fine
Tawny port.
Eftir matinn var síðan
boðið upp á kaffi,
Grand Marnier
líkjör, Remy Martin
koníak og konfekt
sem gladdi augað
jafnt sem bragðlauk-
ana. Konfektið var útbúið
af bakaranemum og borið
fram í súkkulaðikistum.
I lok kvöldsins var haldið uppboð þar sem
gestír gátu keypt blómaskreytingar sem
voru í salnum. Það heppnaðist með
eindæmum vei og þcgar gcst-
irnir kvöddu var ekki eitt ein-
asta strá eftir í salnurn.
Utskriftarhópurinn vill
þakka þeim fyrirtækjum
og einstaklingum sem
veittu okkur hálp við fram-
kvæmd kvöldverðarins.
8*
fii
Fh. hópsins,
Gunnar Axel, Gylfi og Tryggvi.