Iðnneminn - 01.05.1999, Síða 7
krækt í göt á tungunum þegar skift var um.
Pressustykki á eldhúsborði þar fer verkið fram.
Seinna komu járn með lausu handfangi sem
smellt var á járnin til skiftis en þau hituð ofan á
eldavélinni á hell, sem þá var komin yfir eldhol.
Líka hefi ég séð lítið pressujárn með áföstu
járnhandfangi, hefði mátt hita í hlóðaviki. Gat
verið ísienskt srníði.
Fatnaður.
I bernsku man ég eftir síðum svörtum pilsum
sem eldri konur klæddust, sennilega úr heima-
ofnum efnum. Við þessi pils, sem felld voru
undir streng, voru dagtreyjur, oft svartar en
líka mislitar, alltaf með líku sniði, aðskornar
rétt niður fyrir mitti, þétt hnepptar að framan
með lidum tölum upp að hálsi, kragalausar.
Ermar langar með ofurlitíu púffi eða rikkingu á
öxl, sléttar fram og engin líning við úlnlið.
Pessum búningi fylgdi alltaf strengsvunta. Yfir
hárinu skýluklútur. Þess má geta að dagtreyjur
voru alltaf fóðraðar og yfir þeim var þrýhyrnan,
efnismikil og hlýleg, oftast í sauðalitum, líka úr
lituðu bandi, oftast með garðaprjóni, alltaf
með fallegri rönd, krosslögð á brjósti og hnýtt
aftur fyrir, oftast kögruð.
Eg bregð upp mynd af föður mínum á engj-
urn, búningur hans er löngum hinn sami.
Hann er í milliskyrtu og taubuxum með axla-
böndum, tauvesti og oft með lítinn trefil um
hálsinn, í ullarsokkum, og buxnaskálmunum
brugiði undi sokkleggina. Leðurskó á fótum.
Ahöfði hefur hann ætíð hatt og lætur hattbarð-
ið hlýfa augunum í sólskyni. Stundum eru
buxurnar úr léttara efni, striga eða gallaefni,
sem og jakkinn, sem liggur oftast samanbrot-
inn hjá steðjanum og klöppunni, því að öllu
jöfnu slær faðir minn snöggklæddur.
Beri nú svo til að foreldrar mínir ætli til kirkju
á sunnudegi eða eitthvað annað, standa reið-
hestar þeirra tygjaðir með hnakk og söðli.
Móðir mín kemur út í skósíðu reiðpilsi og að-
skorinni reiðtreyju úr sama efni, sem hún klæð-
ist utan ufir peysufötín ef hún er að fara í
kirkju, leggur hún slegi sjalið samanbrotið á
söðulbogan, það ber hún í kirkju en afklæðist
reiðfötunum. Slæða heldur skotthúfu og hári í
skorðum.
Faðir minn í dökkum sparifötum og ljósri
skyrtu með hálstau. Með ökklaháa stígvélaskó
á fótum, reymaða og leðurlegghlífar sem falla
að fótleggjum utan yfir buxnaskálmarnar,
spenntar með ólum. Á höfði hefur hann dökka
sparihattinn.
Um og uppúr 1920 munu ungar stúlkur al-
mennt hafa farið að ríða í hnakk. Fegar ég leiði
hugan að þessu tímaleiti finnst mér eftirtektar-
vert, að þá er meiri stíll yfir reiðfatnaði en
seinna varð.
Reiðföt kvenna sem ríða í söðli eru grein'ilega
mótuð af langri hefð og mjög falleg. Pilsið
skósítt, jakkinn eða treyjan, sem svo er alltaf
kölluð, aðskorin í mittið, hálsmál og horn með
jakkasniði. Pils og treyja alltaf með sama lit, úr
sama efni. Hin fyrstu hnakkreiðföt eru merkt
sömu tísku hvað jakltan snerir, nema hann er
ívið síðari. Buxurnar aðskornar um hnéð, falla
að leggnum, hnepptar eða reymaðar niður á
kálfasporð. Um læri slær þeim út. Stígvél hné-
há. Erfjol og flannel, var notað í reiðföt. Bux-
ur og treyja alltaf úr sama efni. Á þriðja ára-
tugnum fara stúkur að klæðast nankinsbuxum,
helst við útivinnu, heyskap og slíkt. Karlmenn
sennilega eitthvar fyrr. Gallaefni fara að fást.
Kaki er mjög liðlegt efni til heimasaums. Mik-
ið notað í vinnuföt. Pokabuxur fara að verða
algengar um 1930 líklega, flæða yfir, þær eru
líka notaðar á hestbaki, og allskónar skór við.
Fatnaður allur breytilegri og losaralegri. En
buxnatískan var gengin í garð, og heldur velli,
misjafnlega stöðug þó, til þessa dags, og þótti
fljótt hentug og hagkvæm.
Iðnneminn þakkar eftirtöldum fyrirtækjum
stuðning við útgáfu blaðsins
Hárkúnst Hverfisgata 62 101 HP Húsgögn Ármúta 44 108
Grímubúningateigan Tjarnarbraut 15 220 Kjótl og Hvítt ehf Sótheimar 29-33 104
Rafgeyma-og Dekkjaþjónustan Sigtún 29 800 Eðalklaeði ehf. Langholtsvegur 128 104
Bíliðnafélagið/Félag Btikksmiða Suðurlandsbraut 30 108 CM Laugarvegi 68 101
Saumsprettan Vettusund 3b 101 Liljur Sf. saumastofa Hafnargata 28 230
Sólstaða ehf Þöngtabakki 1 109 Sjö í höggi. saumastofa Skúlagata 32-34 101
Efnataugin Kjólt og Hvítt Eiðistorg 14 170 P. Eyfeld Laugavegur 65 101
Fatapressan Úðafoss Vitastíg 13 101 Gatterí Mót Vegamótastíg 4 101
Björn Kristjánsson Heildverslun Grensávegur 8 128
S. Ármann Magnússon Skútuvogur 12J 104
Óskar ykkur til hamingju meö áfangann og vonast til
aö þið leggið grunn að enn blómlegri iðnaði. Við viljum jafiiframt bjóða
ykkur velkomin í heildsöluviðskipti.
Starfsfólk Vogue.
I ð n n e m i n n
7