Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 4
4 29. október 2009 FIMMTUDAGUR EFNAHAGSMÁL Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, er ákaflega ósáttur við yfirlýsingu um framgang stöðug- leikasáttmálans. Á það bæði við um innihald hennar og hvernig var stað- ið að því að setja hana fram. „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð,“ segir Gylfi. Í yfirlýsingu frá ASÍ í gær er það tekið skýrt fram að yfirlýsing rík- isstjórnarinnar sé ekki ásættan- legur grunnur að áframhaldandi samstarfi. Þar er einnig efast um vilja ríkisstjórnarinnar til að end- urskoða áform sín um orku- og auð- lindaskatta, en sú skatttekja hefur verið helsta bitbeinið í viðræðunum að undanförnu. Gylfi segist hafa staðið í þeirri trú í gær að frekara samráð um yfirlýs- ingu um framhald stöðugleikasátt- málans hafi átt að fara fram eftir helgi. Mikill hiti hafi færst í leikinn á þriðjudagskvöldið eftir að ríkis- stjórnin breytti innihaldi yfirlýs- ingar sem þá var að miklu leyti til- búin „og hefði verið nauðsynlegt að kæla málið“. ASÍ hefur eindregið óskað eftir áframhaldandi viðræðum við stjórn- völd til þess að freista þess að jafna þá deilu sem komin er upp. Sú deila felst fyrst og fremst í því að mati Gylfa að ríkisstjórnin hefur með yfirlýsingu sinni ákveðið um hvað skal rætt. - shá ÖRYGGISMÁL Þeirri hugmynd hefur verið velt upp að TF-Sif, ný eftir- lits- og björgunarflugvél Land- helgisgæslunnar, geti nýst til loft- rýmisgæslu. Það voru yfirmenn öryggismála í utanríkisþjónustum Norðurlandanna sem ræddu þessa hugmynd við yfirmenn LHG í heimsókn sinni á dögunum. Þeir voru staddir hér á landi vegna árlegs fundar um öryggismál. Tekið var á móti yfirmönnunum í flugskýli Landhelgisgæslunnar þar sem þeir kynntu sér starfsemi LHG, tækjakost hennar og sam- starf við nágrannaþjóðir á ýmsum sviðum. Sif vakti sérstaka athygli gestanna, samkvæmt upplýsing- um frá LHG. - shá Heimsókn vegna öryggis: TF-Sif sjái um loftrýmisgæslu TF-SIF Talin geta tekið við auknum verk- efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Tekið skal fram að einungis annar af tveimur eigendum húss á Grundar- firði sem brann í ágúst liggur undir grun um íkveikju og tryggingarsvik og er jafnvel talinn tengjast mansals- máli því sem nú er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Því miður láðist að geta þess í frétt Fréttablaðs- ins í gær. ÁRÉTTING EFNAHAGSMÁL Eftir viðræður síð- ustu daga á milli aðila vinnu- markaðarins og stjórnvalda um framtíð stöðugleikasáttmálans sendu forsætis- og fjármálaráð- herra frá sér yfirlýsingu í gær um framgang málsins. Kemur þar fram þung áhersla stjórn- valda á að samstarfið haldi áfram á þeim forsendum sem samdist um í júní síðastliðinn. Gerð sátt- málans hafi verið sögulegt skref og sameiginlegur áfangi til að hefja endurreisn efnahagslífs- ins og auka tiltrú þjóðarinnar á framtíðina. „Það sem þegar hefur áunnist við framfylgd sáttmálans gefur ótvírætt til kynna að það er þjóðarnauðsyn að halda því verki áfram,“ segir í yfirlýsing- unni og eru tiltekin sex verkefni sem ríkisstjórnin setur á oddinn til að svo geti orðið. Eftir viðræður síðustu daga hefur komið fram að það sem helst hefur verið tekist á um er orku- og auðlindaskattur. Rík- isstjórnin lýsir yfir vilja sínum til að áform um þessa skatttekju verði endurskoðuð. Eins að ríkis- stjórnin muni á næstu vikum eiga náið samráð við aðila vinnumark- aðarins um að greina forsendur skatta í fjárlagafrumvarpi árs- ins 2010. Í stöðugleikasáttmálanum frá því í júní voru tiltekin nokkur verkefni í atvinnumálum sem átti að liðka fyrir. Álver í Helguvík og stækkun álversins í Straums- vík voru þar sérstaklega tiltek- in. Í yfirlýsingunni nú er þetta ítrekað. Í yfirlýsingunni er hnykkt á því að engin breyting hafi orðið á því hvernig verði tekið á álitaefnum í sjávarútvegi. Endurskoðun fisk- veiðistjórnunar verði í höndum nefndar sjávarútvegsráðherra sem skipuð var í sumar. svavar@frettabladid.is Orkuskattar endurskoðaðir Ríkisstjórnin hefur fallist á að áform um orku- og auðlindaskatta verði endurskoðuð svo samstarf um stöðugleikasáttmála haldi áfram. Yfirlýsing um framgang sáttmálans barst frá ríkisstjórninni í gær. Ríkisfjármál og skattamál - Ríkis- stjórnin mun á næstu vikum eiga náið samráð við aðila vinnumarkaðarins við að greina þær tekju- og útgjaldafor- sendur sem liggja til grundvallar fram- komnu fjárlagafrumvarpi. Mögulegar breytingar á aðlögunarmarkmiði munu koma til lækkunar á tekjuöflun ríkisins eins og hún er kynnt í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010, bæði er varðar einstakl- inga og fyrirtæki. Atvinnumál - Kapp verður lagt á atvinnusköpun og að greiða fyrir fjárfest- ingum í atvinnulífinu. Stjórnvöld munu hraða úrvinnslu mála sem tengjast þegar ákveðnum og fyrirhuguðum stórfram- kvæmdum eftir því sem efni máls og lögbundnir lágmarkstímafrestir leyfa. Ríkisstjórninni er ljóst að mikilvægar ákvarðanir hjá viðkomandi fyrirtækjum um stórframkvæmdir eru fram undan fyrir lok nóvembermánaðar. Sjávarútvegsmál - Ríkisstjórnin lýsir því enn fremur yfir að engin breyting hafi orðið varðandi þann sáttafarveg sem endurskoðun fiskveiðistjórnunarinnar var sett í með skipun nefndar sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra í sumar, þar sem forsenda nefndarstarfsins er að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskil- yrði til langs tíma. Atvinnuleysistryggingar - Ríkisstjórnin er tilbúin til viðræðna við aðila vinnu- markaðarins um fyrirkomulag þjónustu við atvinnulausa þannig að aðilar vinnumarkaðarins axli verulega ábyrgð á framkvæmd atvinnuleysistrygginga og að stéttarfélög geti komið að því að sinna þeirri þjónustu. Lögð verður áhersla á að samstaða náist milli þeirra sem málið varðar. Grundvallaratriði er að samræmd réttindi atvinnulausra verði byggð á lögum. Gjaldeyrishömlur og vextir - Gild ástæða er til að ætla að nú séu að skap- ast betri skilyrði fyrir lækkun stýrivaxta Seðlabanka og að almennt vaxtastig í landinu geti farið lækkandi, líkt og upphaflega var stefnt að við undirritun stöðugleikasáttmálans. Samkvæmt áætl- un Seðlabankans er áformað að afnám gjaldeyrishafta hefjist 1. nóvember nk. og munu stjórnvöld leggja kapp á að svo verði. Í framhaldi af því verður gerð ný áætlun um markvissari skref í afnámi haftanna en í fyrirliggjandi áætlun. YFIRLÝSING RÍKISSTJÓRNARINNAR FRÁ ÞVÍ Í GÆR UNDIRRITUN Í JÚNÍ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 25° 22° 10° 9° 16° 15° 18° 8° 8° 24° 18° 21° 15° 32° 6° 19° 17° 6° Á MORGUN Strekkingsvindur. Hvassast syðst. LAUGARDAGUR Strekkingsvindur jafnvel hvasst. 11 9 9 9 8 8 8 7 8 7 6 13 8 7 8 7 9 7 10 6 5 6 8 8 11 10 10 MILDIR DAGAR Það verður vætu- samt um sunn- an- og vestanvert landið næstu daga. Úrkomunni fylgir nokkur vindur og því má segja að veðrið verði heldur leiðinlegt. Kosturinn við sunnanáttina sem verður ríkjandi er að veður verður milt. Ingibjörg Karlsdóttir Veður- fréttamaður Skjalasafn Ólaf Thors afhent Hanna Birna Kristjánsdóttir borg- arstjóri veitti einkaskjalasafni Ólafs Thors, fyrrverandi forsætisráðherra, viðtöku í gær. Guðrún Pétursdóttir og Ólöf heitin systir hennar gefa Reykjavíkurborg safnið í minningu foreldra sinna, Mörtu Thors og Péturs Benediktssonar. REYKJAVÍK Gylfi Arnbjörnsson telur yfirlýsingu stjórnarinnar óásættanlega og óskar framhaldsviðræðna: Vinnubrögð stjórnarinnar forkastanleg Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir enga sátt um niðurstöðu ríkis- stjórnarinnar hvað varðar skatta á atvinnulífið. „Þetta eru atriði sem við verðum að fá löguð. Eins og þetta stendur er þetta óásættan- legt.“ Vilhjálmur segir að kominn hafi verið texti um miðjan dag á þriðjudag sem hann taldi að yrði endanleg útgáfa af yfirlýsingu um framgang stöðugleikasáttmálans. „Svo var farið að hræra í honum og síðasta útspilið kom frá ríkisstjórn- inni rétt fyrir miðnætti.“ Þrátt fyrir þetta útspil ákvað stjórn SA að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamn- inga. Vilhjálmur segir að yfirlýsing stjórnarinnar í gær hafi ekki komið sér á óvart. „Ég hefði þó kosið að menn hefðu hist aftur, sérstaklega þar sem viðræðurnar hafa farið töluvert fram í gegnum tölvupóst og síma. En ríkisstjórnin metur það svo að þetta myndi ekkert breytast og það er hennar ákvörðun.“ -shá SKATTALAUSN VAR DREGIN TIL BAKA GENGIÐ 28.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 236,9091 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,47 125,07 203,25 204,23 184,07 185,09 24,728 24,872 21,845 21,973 17,772 17,876 1,3671 1,3751 197,57 198,75 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.