Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 12
12 29. október 2009 FIMMTUDAGUR VANDAR VALIÐ Bandarísk stúlka vand- aði valið þegar hún festi kaup á grask- eri fyrir hrekkjavökuna sem haldin er hátíðleg 31. október. Í Bandaríkjunum er sterk hefð að halda upp á hrekkja- vöku og þá tilheyrir að skera út andlit í grasker og lýsa upp með kertaljósi. NORDICPHOTO/AFP Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga veitir aðstoð og leiðbeiningar varðandi lýsingu fyrir sjónskerta. Nánari upplýsingar og fróðleikur í síma 54 55 800 og á www.midstod.is SJÁÐU TIL Birtan er mikilvæg. Með aldrinum eykst þörfin fyrir góða lýsingu, t.d. við handavinnu eða lestur. Rétta ljósið léttir okkur að koma auga á öll smáatriðin sem skipta svo miklu máli. ÍS L E N S K A S IA .I S S JO 4 76 31 1 0/ 09 VIÐSKIPTI „Við vitum að erlendir vogunarsjóðir eiga nokkuð af kröf- um bankanna. Sjóðirnir munu ekki eiga beina hluti í þeim heldur verða þeir hluti af breiðum hópi kröfu- hafa í eignarhaldsfélagi sem kann að eignast hlut í Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi. Þeir geta því ekk- ert ráðskast með þá,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra. Á meðal annarra kröfuhafa bank- anna eru erlendir bankar og inn- lendir aðilar. Fjármálaeftirlitið mun fara yfir eigendahópinn áður en til skipta kemur. Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær eru vísbendingar um að sömu vogunarsjóðir og þátt áttu í falli bankanna í fyrravor komi til með að eignast Íslandsbanka og Nýja Kaup- þing að mestu leyti. Sjóðirnir þrengdu að bönkunum gömlu með kaupum á skuldatrygg- ingum þeirra auk þess að skortselja hlutabréf fyrirtækja sem stærstu hluthafar bankanna áttu. Þar á meðal eru danska brugghúsið Royal Unibrew, norska fjármálafyrir tækið Storebrand og finnska fyrirtækið Sampo. Eftir fall bankanna tóku vogunar- sjóðirnir að fjárfesta í skuldabréf- um íslensku bankanna. Bréfin fengu þeir fyrir brot af upphaflegu kaup- verði hjá evrópskum kröfuhöfum. Líkt og áður hefur komið fram hefur virði skuldabréfa bankanna hækkað mikið frá í fyrra og er það í samræmi við væntingar um endur- heimtur úr búum föllnu bankanna. Sem dæmi mátti kaupa skulda- bréf Kaupþings með 95 prósenta afslætti í júní í sumar. Miðað við síðustu greiningu IFS Greiningar og Saga Capital má reikna með að kröfuhafar endurheimti 35 prósent af kröfum sínum. Virði skuldabréf- anna helst í hendur við það og jafn- gildir rúmlega þrjú hundruð pró- senta hækkun á fjórum mánuðum gangi allt eftir. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við vegna málsins telja ólíklegt að íslenska ríkið hafi verið í aðstöðu til að kaupa skuldabréfin í kjölfar hrunsins og hagnast á heimtum þeirra. Þá er óvíst að upphaflegir eigendur skuldabréfanna, að mestu erlendir bankar og fjármálafyrir- tæki, hafi verið viljugir til að selja þau þá. jonab@frettabladid.is Sjóðirnir ráði ekki miklu Þeir sem þátt tóku í að knésetja íslenska bankakerfið verða hluti af breiðum hópi kröfuhafa bankanna. Óvíst hversu miklu þeir ráði. Ekki líklegt að ríkið hafi getað hagnast á skuldabréfum gömlu bankanna. „Því miður virðast skuldir eignar- haldsfélaga nú skeljar utan um skuldir. En þetta fer allt eftir stöðu þeirra. Sum félaganna eru enn í gangi og á bak við þær kunna að vera ágætar rekstrareiningar sem geta verið í lagi,“ segir Steingrímur. Samkvæmt upplýsingum Seðla- bankans skulda eignarhaldsfélögin bönkunum stórfé, eitt þúsund milljarða króna, sem óvíst er að fáist greitt. Til samanburðar námu hrein- ar eignir lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris í ágústlok 1.738 milljörðum króna. Líkt og greint var frá í Fréttablað- inu í gær búast bankarnir ekki við háum endurgreiðslum og hafa fært virði krafna á hendur félögunum verulega niður. Íslandsbanki reiknar með tíu prósenta heimtum. Það kann að vera ofmat. LÉLEGAR KRÖFUR BANKANNA FJÁRMÁLARÁÐHERRA Erlendir vogunarsjóðir verða hluti af breiðum hópi kröfuhafa bankanna í eignarhaldsfélagi og munu því ekki geta ráðskast með þá, að sögn Stein- gríms J. Sigfússonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI Danski bankinn FIH er traustur og verður ekki seldur við núverandi markaðsaðstæður enda má við því búast að betra verð fáist fyrir hann þegar fjármálamarkaðir rétta úr kútnum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í uppfærðri skýrslu skila- nefndar Kaupþings um þrotabú bankans og kom út í gær. Kaupþing keypti FIH árið 2004 en Seðlabanki Íslands tók hann að veði gegn fimm hundruð evra láni til Kaupþings í fyrrahaust. Nokk- ur endurskipulagning hefur átt sér stað innan FIH síðan þá, að því er segir í skýrslunni. Bankinn endurfjármagnaði sig með milljarðs dala skuldabréfaút- gáfu í Bandaríkjunum í ágúst. Þá kemur fram í skýrslu skila- nefndarinnar að endurskipulagn- ing eignasafna og endurheimt- ur lána gangi vel. Í lok september hafi verið lokið við endurheimtur á 29 milljörðum króna hjá viðskipta- vinum í Evrópu. Það jafngildir því að 17,2 prósent viðskiptavina hafi greitt kröfur sínar að fullu á Norð- urlöndunum en 7,7 prósent á megin- landi Evrópu. Þá segir að búið sé að endurskipu- leggja fjörutíu prósent af eignasafni gamla bankans í Evrópu og ellefu prósent á Norðurlöndunum. Til samanburðar voru 76 prósent eigna gamla Kaupþings á Norðurlöndun- um á athugunarlista skilanefndar- innar í desember í fyrra en 44 pró- sent á Norðurlöndunum. - jab Endurskipulagning og endurheimtur ganga vel hjá skilanefnd Kaupþings: FIH verður ekki seldur í bráð HÖFUÐSTÖÐVAR KAUPÞINGS Í nýrri skýrslu um stöðu þrotabús Kaupþings kemur fram að vel gengur að endur- skipuleggja eignir og endurheimta kröfur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NORÐURLANDARÁÐ Efnahagsvandi Íslendinga er heimatilbúinn og það var frjálst val Íslendinga að sækjast eftir lánum hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og Norður- löndunum, sagði Jens Stolten- berg, forsætisráðherra Noregs, á Norðurlandaráðsþingi í Stokk- hólmi í gær. Hann sagði að þáttur AGS í endurreisn íslensks efnahags- lífs gerði Norðurlöndunum kleift að veita Íslendingum eins há lán og raun bæri vitni. Ekki væri til umræðu að Noregur veitti Íslend- ingum lán á öðrum forsendum en með þátttöku AGS. Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV. Thorvald Stoltenberg: Heimatilbúinn vandi Íslands KANNABIS Rúmlega sjötíu plöntur fund- ust við húsleit. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu stöðvaði kanna- bisræktun í húsi í Háaleitishverf- inu síðdegis í fyrradag. Við húsleit fundust rúmlega sjötíu kannabisplöntur og voru þær á ýmsum stigum ræktunar. Húsið var mannlaust þegar lög- reglan kom á vettvang en fyrir liggur hver stendur að baki rækt- uninni. - jss Húsleit í Háaleitishverfi: Sjötíu kannabis- plöntur fundust NÁTTÚRAN Steingervingafræðing- ar í Bretlandi eru nú búnir að raða saman kjálkabeinum úr risavöxnu sæskrímsli sem fundust í fjöru í Dorset. Fyrstu beinin fundust árið 2002 og síðan hafa fundist 25 til viðbótar. Skrímsli þetta var af tegund- inni Pliosaurus og var uppi fyrir 150 milljónum ára. Það var tuttugu metra langt og vó fimmtán tonn. Kjafturinn var rosaleg- ur, tveir og hálfur metri, og gapið var einn og hálf- ur metri. Risaeðlufræðingurinn dr. Richard Forrest segir að þetta hafi verið öflugasta rándýr síns tíma. Bitkrafturinn var fjórum sinnum meiri en hjá Tyranno- saurus Rex. Forrest segir að skrímslið hefði getað étið T-Rex í morgunmat. Ekki hefur verið auðvelt að komast undan ef Pliosaurus girntist bráð. Skrímslið var með fjögur gríðarstór bægsli í stað handa og fóta og gat synt feyki- lega hratt. - ót Risavaxið sæskrímsli úr fornöld: Hefði getað étið T-Rex PLIOSAURUS Skepn- an er sú stærsta sem uppi hefur verið, tuttugu metra löng og vó fimmtán tonn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.