Fréttablaðið - 29.10.2009, Page 18
18 29. október 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Útgjöldin
> Púðursykur 1997 til 2009
Heimild: Hagstofa Íslands.
15
9
k
r
19
7
k
r
2
32
k
r
4
6
2
k
r
1997 2001 2005 2009
Ég kann tvö lítil húsráð. Þau eru í bók
sem ég gaf út í eldgamla daga sem
hét Mamma, hvað
á ég að gera? og var
leiðarvísir fyrir ungt
fólk sem var nýflutt
úr foreldrahúsum.
Annað þeirra tekur á
laukskurði. Við verkið
kunna einhverjir að
gráta. Því má kippa
í liðinn með því að
nota sundgleraugu. Ég er nýbúinn að
brúka það og ráðið svínvirkaði. Hitt
ráðið notar maður við suðu á spagettíi.
Stundum veit maður ekki hvort spag-
ettíið er soðið eður ei. Þegar slíkt gerist
má einfaldlega taka einn strimilinn úr
pottinum og henda honum í vegg. Ef
spagettíið hangir, þá er það soðið.
HÚSRÁÐIÐ
KASTAR SPAGETTÍI Í VEGG
■ Sigurður Valgeirsson
„Kjúklingurinn sem ég keypti í kjötborði Nóatúns
nú í hádeginu var með mínum verri kaupum,
enda kom í ljós að þetta voru einhverjar
kjúklingatægjur ofan á grænum baunum
og hrísgrjónum,“ segir Ásgeir H. Ingólfs-
son, ritstjóri vefritsins Kistunnar. „Ætli
hótelherbergi í Ljubljana sé samt ekki
verstu kaupin. Ég var búinn að finna hótel
í miðbænum sem mér fannst óþarflega
dýrt, þrammaði áfram með allt of
þungan bakpoka og þegar bakið
var alveg að gefa sig fann ég
leigubíl sem villtist nokkrum
sinnum áður en hann skutlaði
mér á ódýrara hótel í hálftíma
fjarlægð frá miðbænum. Þetta
hótel var vissulega töluvert
ódýrara, en gjaldmælir leigu-
bílsins át þann sparnað allan
upp og þarna lærði ég þá ágætu lexíu að eyða
aldrei í sparnað.
En Ljubljana var engu að síður gull af borg
og þegar allt kemur til alls þá hugsa ég að
sú formúa sem ég hef eytt í flakk síðasta
áratuginn hafi verið besta fjárfestingin,
líka öll vitleysan (lesist: bestu sögurn-
ar). Minnst af þessu fór í vasa íslenskra
útrásarvíkinga auk þess sem þetta
var ágætis bólusetning gegn
mesta brjálæðinu hér
heima. Fyrir utan allar
minningarnar, þekkinguna,
upplifunina og vinina. Og
áttavilltu leigubílstjór-
ana. Þannig að ætli
Nóatúns-kjúklingurinn
vinni ekki eftir allt
saman.“
NEYTANDINN: ÁSGEIR H. INGÓLFSSON
Kjúklingar og heimshornaflakk
„Við teljum að nýir tímar séu
komnir á Íslandi og við erum að
svara kalli tímans. Við bjóðum
upp á betra verð en áður hefur
þekkst og skemmtilegri móttöku,“
segir Jens Einarsson í nýrri þjón-
ustumiðstöð fyrir bíla, Kvikk-
Fix, sem verður opnuð á morgun
að Vesturvör 30c í Kópavoginum.
„Við sjáum um að smyrja bílinn,
skipta um dekk, skoða og skipta
um bremsuborða og klossa ef þarf.
Við skoðum bílinn í krók og kring
og yfirförum,“ segir Jens. „Að fyr-
irtækinu koma fimm aðilar, þar á
meðal Hinrik Morthens sem var
með fyrirtækið Filtertækni og
hefur áratugalanga reynslu í þess-
um bransa. Við flytjum mikið inn
sjálfir og sleppum því við millilið-
ina. Við höfum gert fullt af verð-
könnunum og treystum okkur til
að lofa 40-60 prósentum lægra
verði en áður hefur þekkst hér á
landi.“
Jens segir ekki þurfa að panta
sérstaklega tíma fyrir bílinn hjá
KvikkFix. „Rúsínan í pylsuendan-
um er svo móttakan hjá okkur. Við
leggjum mikið upp úr henni. Við
fáum listamennina til fólksins og
það verða myndlistarsýningar á
veggjunum. Sá myndlistarmaður
sem ríður á vaðið er Helma Þor-
steinsdóttir. Hér eru tölvur með
netaðgangi sem kúnnar mega nota.
Einnig er hér „hotspot“ svo fólk
getur komið með vinnutölvuna. Við
erum með barnaherbergi og bjóð-
um upp á kaffi, te og kakó. Fyrstu
vikurnar verður að auki boðið upp
á heitar vöfflur.“ glh@frettabladid.is
Lofa lægra verði
en þekkist á Íslandi
Myndlistarsýningar og heitar vöfflur verða á boðstólum í nýrri þjónustumið-
stöð fyrir bíla sem verður opnuð á morgun í Kópavogi.
BJÓÐA HELMINGI LÆGRA VERÐ Strákarnir hjá KvikkFix segjast svara kalli tímans.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Verð á flugfargjöldum til útlanda
hækkaði um sautján og hálft pró-
sent milli september og október,
að því er fram kemur hjá Hag-
stofu Íslands. Vísitala neyslu-
verðs hækkaði um ríflega eitt pró-
sent milli mánaða, þar af hækkaði
dagvara um eitt prósent. Hækkun-
in var meiri en búist var við. Veru-
leg verðhækkun innfluttra vara og
hækkun markaðsverðs á húsnæði
eru helstu ástæður þess að verð-
bólga hjaðnaði hægar í október en
búist var við, að því er fram kom í
morgunkorni Íslandsbanka.
Verðlag mat- og drykkjarvöru
hækkaði um 1 prósent í október.
Var þar bæði á ferð verðhækkun á
ýmsum innfluttum matvörum og
áhrif hækkunar vörugjalda á ýmis
matvæli á haustdögum. Þá hækk-
uðu húsgögn og heimilisbúnað-
ur um 1,6%, nýir bílar sömuleiðis
um 1,6% og liðurinn tómstundir
og menning um 1,7%. Svo virðist
sem verð innfluttra vara hafi tekið
nokkuð snarpan kipp upp á við í
október þrátt fyrir tiltölulega stöð-
uga krónu undanfarna mánuði. Að
því er fram kemur á vef Hagstof-
unnar hækkuðu innfluttar vörur
alls um tæp nítján prósent. - sbt
Hækkun á neysluvísitölu frá september til október:
Flugmiði hækkaði
um sautján prósent
DÝRT SPAUG Flugfargjöld hækkuðu um sautján prósent milli september og október.
Nú fara að verða síðustu forvöð
að kaupa McDonalds-borgara á
Íslandi en staðurinn lokar eins og
fram hefur komið í fréttum næsta
laugardag. Í gær kostaði borgarinn
230 krónur en ostborgari 270
krónur. Þeir sem syrgja keðju-
fæðið geta látið það eftir sér að
kaupa McDonalds-borgara í næstu
utanlandsferð. Í Kaupmannahöfn
er verðið á borgaranum 10 krónur
og sama er greitt fyrir ostborgara.
Á gengi gærdagsins gera það um
250 krónur íslensk-
ar. Þess má geta
að Ísland var löng-
um með dýrustu
McDonalds-borgara
heimsins en eftir
að krónan féll
er öldin
önnur.
■ Hvað kostar
McDonalds-borgari?
Viðskiptavinir Kringlunnar á
fimmtudögum fá tvo bíómiða
á verði eins sem er dágóður
sparnaður þegar bíómiðinn kostar
um eða yfir þúsund
krónur. Skilyrði
fyrir tilboðinu
eru að versla
í Kringlunni
sama dag, en
það má vera
hvaða verslun
sem er.
■Hagstæðari bíómiðar
Tveir fyrir einn í bíó
helgi á Korputorgi um helgina.
Hafa Íslendingar fordóma gagnvart
geðrænum vandamálum?
Þann 3. nóvember kl. 13:00-16:00, stendur Hugarafl fyrir ráðstefnu í hátíðarsal Háskóla
Íslands, þar sem kynntar verða niðurstöður úr einni stærstu alþjóðlegu rannsókn sem gerð
hefur verið á þessu sviði, með áherslu á íslenskar niðurstöður rannsóknarinnar.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!
13:00-13:10 Herdís Benediktsdóttir fulltrúi Hugarafl s opnar ráðstefnuna.
13:10-13:30 Geðræn vandamál í þjóðfélagslegu samhengi. Dr. Sigrún Ólafsdóttir lektor í
félagsfræði við Bostonháskóla.
13:30-13:45 Fordómar og neikvæðar staðalmyndir. Dr. Jón Gunnar Bernburg dósent í
félagsfræði við Háskóla Íslands.
13:45-14:00 Viðhorf til geðheilbrigðisþjónustu. Dr. Sigrún Ólafsdóttir lektor.
14:00-14:15 „Hvað eigum við að gera ef þau ráðast á okkur“: Geðfræðsluverkefni
Hugarafl s. Dr. Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur.
14:15-14:30 Fordómagjörningur Hugarafl s.
14:30-14:45 Kaffi hlé.
14:45-16:00 Pallborðsumræður með þátttöku félagsmálaráðherra, fulltrúum
geðlæknafélagsins og heilbrigðisráðuneytisins, fyrirlesara o.fl .
Eina lífvarðanámskeiðið á Íslandi
Öryggisvarðaskólinn
Loka Útkall - 2 pláss eftir
14 til 28 Nóvember 2009
Terr security býður uppá
starfsmöguleika á heimsvísu
Sími: 698 1666
ovskoli.is
Ýmsar barnavörur og föt eru á tilboði í netverslun Litlu kistunnar sem
finna má á netfanginu www.litlakistan.is. Undir liðnum Tilboð eru
útsöluvörur á vönduðum barnafatnaði á lágu verði. Sama gildir um fleiri
barnafatabúðir sem finna má á Netinu. Rumputuski er með ýmsar vörur
á tilboði á síðunni sinni auk þess sem búðin Happy Green Kids sem ein-
ungis er að finna á Netinu er með góðan afslátt af eldri vöru, sjá síðuna
www.happygreenkids.is.
■ Netverslun með barnavörur
Góð kaup á Netinu