Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 24
24 29. október 2009 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Indriði H. Þorláksson skrifar um stóriðju Staðhæfingar án raka öðlast stundum vægi umfram inntak þeirra. Tvær slíkar staðhæfingar í umræðu um orku- og stóriðjuver eru sérstaklega varhugaverðar. Annars vegar að slíkar framkvæmdir séu nauðsynlegar, séu jafnvel leiðin út úr „kreppunni“, og hins vegar að framtíð íslensks efnahagslífs sé best tryggð með nýtingu orkuauðlinda fyrir stóriðju. Önnur þeirra horfir til skamms tíma en hin lengra fram á veg en báðar eru vafasamar, lík- lega rangar og jafnvel skaðlegar. Efnahagsleg áhrif stórfram- kvæmda verður að meta með hlið- sjón af efnahagsstefnu til skemmri og lengri tíma. Til skamms tíma, segjum 3 til 5 ára, er markmiðið að koma atvinnulífinu í gang. Til lengri tíma litið er markmiðið að stuðla að vexti hagkerfisins með þeim hætti að það veiti þegnunum sem mest lífsgæði. Til þess þarf atvinnulíf- ið að skila sem mestum virðisauka til þjóðarinnar fyrir vinnuframlag, fjármagn og auðlindir. Áhrif til skamms tíma Til skamms tíma hefur helst verið horft til áhrifa stóriðjuframkvæmda á vinnumarkað og aukinnar bygg- ingarstarfsemi og atvinnusköp- unar sem henni tengjast. Ekki má vanmeta þau áhrif en hafa ber í huga að þau eru að mestu leyti til skamms tíma. Áhrif hverrar stór- framkvæmdar um sig geta verið nokkur hundr- uð eða fá þúsund ársverka um tveggja til þriggja ára skeið en eins og reynsl- an sýnir og sjá má í þeim hagspám sem gera ráð fyrir stórframkvæmdum á næstu árum fjara þau áhrif út. Áhrif stórframkvæmda, sem fjármagnaðar eru með erlendu fé, á gjaldeyrismál til skamms tíma eru óljós. Til mjög skamms tíma litið gætu þær styrkt stöðu krónunn- ar en líklegt er að neikvæð áhrif sem varað geta um tíma komi fljót- lega í ljós. Fyrst kæmi erlent láns- fé inn í landið en endurgreiðslur og vextir næstu ár á eftir yrðu líklega hærri en tekjur í erlendri mynt. Þá má benda á að lán innlendra aðila til orkuframkvæmda verða vænt- anlega dýr næstu árin. Þannig eru stóriðjuframkvæmdir ekki líklegar til að bæta gjaldeyrisstöðu eða auka fjármálastöðugleika til skamms eða meðallangs tíma litið. Skammtímaáhrif orku- og stór- iðjuframkvæmda á ríkisfjármál eru ekki mikil. Tímabundið má reikna með auknum tekjum og minni bóta- greiðslum sem fjara út að uppbygg- ingartíma liðnum en þá koma tekj- ur af þessum þáttum í eðlilegum rekstri. Vegna afskrifta á fjárfest- ingum verður t.d. ekki um teljandi aukningu á skatt- greiðslum fyrirtækisins að ræða fyrstu 5 til 8 árin eftir miklar framkvæmdir eins og sjá má af reikningum íslensku álfyrirtækja. Áhrif til lengri tíma Til lengri tíma litið þarf einkum að meta gildi stóriðju með hliðsjón af varanlegum efnahagslegum áhrifum og saman- burði við aðra kosti á nýtingu mann- afls, fjármagns og náttúruauðlinda. Almennt er viðurkennt að skynsam- legt sé að láta frjálsan markað ráða sem mestu um hvað er framleitt, hvar og hvernig. Til þess að mark- aðurinn virki og skili hagkvæmum lausnum þurfa þó ákveðin skilyrði að vera uppfyllt, svo sem að verð- lagning á nýtingu náttúruauðlinda sé eðlileg og að neikvæð úthrif, t.d. mengun, séu verðlögð og komi fram í kostnaði við framleiðsluna. Gagn- sæi í þessum atriðum er forsenda skynsamlegra ákvarðana. Margt bendir til þess að efnahags- leg áhrif stóriðju til langs tíma séu mun minni en almennt hefur verið talið og að það svari vart kostnaði að leggja mikið undir með fjárhagsleg- um ívilnunum eða með því að binda nýtingu orkuauðlinda langt fram í tímann. Efnahagslegt gildi stóriðju ræðst mikið til af því hvernig sá virðisauki sem hún skapar skiptist á milli innlendra og erlendra aðila. Eins og nú háttar má reikna með að um 2/3 hlutar virðisaukans renni til erlendra aðila en einungis um 1/3 til innlendra í formi launa og hagnað- ar innlendra aðila, sem selja iðjuver- inu vinnu og þjónustu auk skatta af hagnaði starfseminnar. Áætla má að störf og afleidd störf vegna meðalálvers á Íslandi séu ein- ungis 0,5 til 0,7% heildarmannafl- ans. Reikna má með að efnahags- leg áhrif þessa vinnuafls séu varla meiri en 0,5% af vergri landsfram- leiðslu (VLF). Ýmsir telja þó mest- ar líkur á því að langtímaáhrif ein- stakra framkvæmda á atvinnustigið séu engin, þ.e. þær ryðji annarri atvinnu burt og efnahagsleg áhrif ráðist af því hvort starfsemin hafi haft í för með sér almenna fram- leiðniaukningu í landinu. Annar hluti efnahagslegra áhrifa eru skattar sem greiddir eru af hagnaði. Tekjuskattur meðalálvers á Íslandi eftir að afskriftatíma er lokið gæti verið 1-1,5 milljarðar á ári. Það er um eða innan við 0,1% af vergri þjóðarframleiðslu. Þriðji þátturinn er hagnaður af orkusölu til iðjuversins. Um hann er lítið vitað með vissu en ljóst er að álver- in hafa fengið býsna góða samninga um raforkukaup. Efnahagsleg langtímaáhrif af meðalálveri gætu skv. framan- greindu verið á bilinu 0,1 til 1% af VLF. Er þó ekki tekið tillit til nei- kvæðra úthrifa. Með það í huga að stóriðjuverin nota 75-80% af allri raforku sem framleidd er í landinu er sú spurningin áleitin hvort þetta sé þjóðhagslega hagkvæm nýting orkuauðlindanna. Niðurstaða Efnahagsleg áhrif stóriðjufram- kvæmda til skamms tíma litið rétt- læta ekki það vægi sem þeim hefur verið gefið í umræðu um viðbrögð við kreppunni. Þær hafa takmörkuð tímabundin áhrif á vinnumarkað en engin teljandi jákvæð áhrif á gjald- eyrismál og ríkisfjármál. Stóriðju- framkvæmdir eru því lítilvirk tæki til að komast út úr efnahagslægð. Engin rök eru fyrir að láta skamm- tímasjónarmið hafa áhrif á ákvarð- anir um uppbyggingu stóriðju. Eins og verðlagningu á nýtingu náttúruauðlinda, mengunarmálum og skattlagningu erlendrar stór- iðju er nú háttað er vafasamt að efnahagsleg rök mæli með frekari uppbyggingu hennar. Nýting nátt- úruauðlindanna í þágu þeirra sem eiga þær kallar á ítarlega skoðun og breytingar á þessum atriðum áður en ákvarðanir eru teknar. Nýting á náttúruauðlindunum er svo stórt hagsmunamál fyrir þjóðina að ekki ætti að koma til álita að taka ákvarð- anir um hana á grundvelli skamm- tímasjónarmiða, staðbundinna hags- muna eða óvissra efnahagslegra forsenda. Höfundur er hagfræðingur og aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Er stóriðja leiðin út úr kreppunni? UMRÆÐAN Ólafur Teitur Guðnason skrifar um orkumál Spurt er hvort stóriðjufyrirtækin vilji leggja sitt af mörkum til að hjálpa íslensku samfélagi og þjóðarbúskap á mikl- um erfiðleikatímum. Tilefnið er gagnrýni á orku-, umhverfis- og auðlindaskatta sem boðaðir eru í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010. Svarið er afdráttarlaust já. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því brýnt er að gera hér grein fyrir annars vegar áhrifum boðaðra skatta á stóriðjufyrirtækin og hins vegar framlagi þeirra til samfélagsins og þjóðar- búskaparins. Ljóst er að hinir nýju skattar (séu þeir löglegir, sem við skulum láta liggja á milli hluta) koma til með að kosta Alcan á Íslandi hf. mörg hundruð milljónir króna á næsta ári, jafnvel upp undir tvo milljarða. Þetta kann að hljóma ótrúlega með hliðsjón af hughreystandi yfirlýsingum um að skatt- arnir verði almennir og leggist jafnt á alla notendur. Skýringin rennur væntanlega upp fyrir lesandanum þegar bent er á að álver- ið í Straumsvík kaupir um 18% af öllu raf- magni sem selt er á Íslandi, eða hér um bil fjórum sinnum meira en öll heimili saman- lagt. Nefnt hefur verið til sögunnar „lágt auðlindagjald“ sem geti verið til dæmis 20-30 aurar á kílówatt- stund og spurt hvort slíkt gjald væri fyrirtækjunum óbærilegt. Svarið er að 30 aurar á kílówatt- stund myndu þýða litlar 900 millj- ónir króna fyrir álverið í Straums- vík, enda notar það 3 þúsund gígawattstundir á ári. Efast má um að til sé það fyrirtæki hér á landi sem þætti 900 milljóna króna við- bótarskattur bærilegur, hvað þá lágur. Ofan á þetta bætist kolefnisgjaldið sem boðað er. Ekki liggur fyrir hve miklum heildartekjum það á að skila í ríkissjóð á næsta ári en með hliðsjón af rafskauta- notkun álversins, sem er umtalsverð, má ætla að það muni kosta fyrirtækið nokk- ur hundruð milljónir króna á ári til viðbót- ar við rafmagnsskattinn. Verði alvara gerð úr hugmyndinni um 14 evrur á hvert tonn koldíoxíðs, sem nefnd er í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu sem dæmi um mögu- lega álagningu, þarf Alcan á Íslandi hf. að greiða yfir 700 milljónir króna á ári. Slík eru hin lágu, hóflegu og almennu gjöld sem fyrirtækin hafa leyft sér að gagn- rýna, og uppskorið fyrir það aðdróttanir um að þau vilji jafnvel ekki leggja neitt af mörkum. Víkur þá sögunni að því hvað þau leggja af mörkum nú þegar. Nefnum fyrst tekjuskattinn. Alcan á Íslandi hefur á undanförnum tíu árum greitt 13 milljarða króna á núvirði í tekjuskatt, eða að meðaltali 1,3 milljarða á ári (hluta þessa tíma- bils greiddi fyrirtækið 33% skatt skv. upphaflegum fjárfestingar- samningi). Árið 2007 nam tekjuskatt- ur þessa eina fyrirtækis 1,3 millj- örðum króna eða um 3% af öllum tekjusköttum ríkisins af fyrirtækj- um. Öll fyrirtæki í hótel- og veitingahúsa- rekstri, hugbúnaðargerð og tengdri ráðgjöf og lögfræðiþjónustu greiddu lægri tekju- skatt samanlagt en Alcan á Íslandi þetta ár. Tekjuskattur fyrirtækisins samsvaraði yfir fjórðungi af samanlögðum tekjuskatti allra verslunarfyrirtækja landsins. Það skýtur skökku við að þurfa að biðjast afsökunar á þessu. Greiða mörg fyrirtæki hærri skatt? Álverið í Straumsvík kaupir einnig vörur og þjónustu af yfir 800 íslenskum aðilum fyrir yfir 5 milljarða króna á ári. Fyrirtæk- ið hefur veitt yfir 450 starfsmönnum vel launaða vinnu í yfir 40 ár samfleytt. Virkj- unarmannvirkin sem upphaflega voru reist í Búrfelli til að knýja álverið eru núna full- afskrifuð og skila eiganda sínum milljarða- tekjum á ári með sáralitlum tilkostnaði. Þrátt fyrir að hart hafi verið á dalnum í áliðnaðinum að undanförnu – og mörg álver víða um heim hafi ýmist dregið úr starfsemi eða jafnvel hætt starfsemi – samþykkti fjár- festingarnefnd Rio Tinto miðvikudaginn 30. september fjárveitingu til framkvæmda í Straumsvík sem miða að því að auka fram- leiðslugetu álversins. Vinnan getur hafist strax. Gert er ráð fyrir að verkefnið í heild kalli á um 600 ársverk, sem sparar um einn milljarð í atvinnuleysisbætur, og það felur í sér um það bil 13 milljarða innlendan kostn- að, sem að stórum hluta mun skila sér í vasa hins opinbera. Kannski er mest um vert að það treystir rekstur álversins til framtíð- ar – þar á meðal þær miklu tekjur sem ríkið hefur af þessari starfsemi bæði beint og óbeint. Daginn eftir að fjárfestingarnefndin veitti þessa heimild var fjárlagafrumvarp- ið lagt fram með tillögum um skatta sem vandséð er að muni kosta fyrirtækið undir eitt þúsund milljónum króna á næsta ári. Alcan á Íslandi vill svo sannarlega halda áfram að leggja stóran skerf af mörkum til íslensks samfélags. Við óttumst hins vegar að við fáum ekki tækifæri til þess ef vegið verður með svo alvarlegum hætti að rekstr- argrundvelli fyrirtækisins. Höfundur framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi hf. Hver leggur meira af mörkum? UMRÆÐAN Magnús Jónsson skrif- ar um orkumál Talsverð umræða hefur orðið um þau áform ríkisstjórnarinnar sem fram koma í fjárlagafrum- varpi 2010 að taka hér á landi upp orku- og auð- lindaskatta. Hafa marg- ir orðið til að bregðast ókvæða við þessum tillögum og sagt þær atlögu að atvinnulífi landsins. Þessi viðbrögð eru sérkennileg í ljósi umræðu og aðgerða á sviði orku- og skattamála um allan hinn iðnvædda heim. Eins og oft áður virðist umræða hér á landi beinast í sértæka hagsmunagæslu og skot- grafahernað en ekki málefnalega umræðu um þessa tegund skatta. Reynsla Svía Árið 1991 tóku Svíar upp sk. kol- efnisskatt á jarðefnaeldsneyti. Þar er þessi skattur nú um 150$ á hvert losað tonn kolefnis sem jafngildir um 7500 kr. á hvert tonn koltví-sýr- ings. Þetta þýðir m.a. að rúmlega 40 kr. kolefnisskattur er lagður á hvern lítra bensíns þar í landi. Varðandi fyrirtækin fóru Svíar þá leið að hafa skattinn helmingi lægri á hvert losað tonn CO2. Svo góð reynsla er af þessu fyr- irkomulagi, að nú er Svíþjóð talið forystu- og fyrirmynd- arland heimsins í umhverfis málum. Er þar einkum vísað til þess að síðan 1990 hefur losun gróður húsa loftteg- unda minnkað um 9% á sama tíma og raunhagvöxt- ur hefur verið um 44%. Full- yrða Svíar að útblástur á CO2 væri a.m.k. 20% meiri í landinu ef þessi skatt lagning hefði ekki komið til. Ekki er að sjá að atvinnulífið hafi beðið skaða af þessari skattlagn- ingu þar sem Svíþjóð er í hópi sam- keppnishæfustu landa heims. Innan ESB hefur verið mótuð sú meginstefna að innleiða viðskipta- kerfi með losunarheimildir á gróð- urhúsalofttegundir, sk. ETS-kerfi. Í því kerfi er nú öll raforkufram- leiðsla með jarðefnaeldsneyti og á næstu árum munu væntanlega stærstu losunaraðilar gróðurhúsa- lofttegunda innan ESB bætast við það. Allmörg lönd innan ESB hafa tekið upp skatta á kolefnisútblást- ur og eru þar helst Þýskaland, Hol- land og Danmörk auk Svíþjóðar og Finnlands sem áður voru nefnd. Sl. sumar vakti það sérstaka athygli að Frakkland ákvað að taka upp kol- efnisskatta strax um næstu áramót. Ekki er gert ráð fyrir aukinni skatt- heimtu þar í landi heldur á að lækka aðra skatta á móti. Nú í byrjun okt- óber lagði fjármálaráðherra Svía, sem fara með forystu í ESB á þessu misseri, til að innleiddir yrðu kol- efnisskattar í öllu ESB. Hefur því verið vel tekið af hálfu skattyfir- valda sambandsins. Og Bandaríkin eru líka komin af stað í þessa átt. Í Kaliforníu og Colorado er þegar ákveðið að fara þessa leið og sama má segja um ýmis fylki Kanada. Allt bendir til þess að eitt olíu frekasta ríki heims, Ástralía, fari inn á braut skattlagn- ingar á losun CO2. Hvort farin er leið skattlagningar eða viðskipta- kerfa eða hvort tveggja skiptir ekki öllu máli enda fari úthlutun þeirra takmörkuðu gæða sem til staðar eru fram á markaðslegum forsendum. Verð á raforku og eldsneyti Í ljósi umræðunnar um hugsanlega skatta á raforku hér er fróðlegt að skoða raforkuverð í helstu sam- keppnisríkjum okkar. Meðalverð til almennra notenda í 27 ríkjum ESB er nálægt 30 kr./kWh eða frá um 15 kr./kWh í Búlgaríu í um 50 kr./ kWh í Danmörku. Hér á landi eru sambærilegar tölur um 10 kr./kWh. Þannig er raforkuverð hér um þriðj- ungur þess sem það er að jafnaði í ESB. Enn meiri munur er þegar um raforku til almennra fyrirtækja er að ræða. Í umræðu hér er einnig talað um ofurskatta á eldsneyti í samgöng- um. Þegar verð á bensíni er skoðað í löndum ESB kemur annað í ljós. Meðalverð er þar um 1.20€ eða um 220 kr/lítra. Er Eistland eina ríkið innan ESB sem er með lægra bens- ínverð (um 175 kr/l) en Ísland. Hæst er það í Hollandi og Noregi um 260 kr/lítra. Ný skattastefna Í þeim löndum sem hafa innleitt kol- efnisskatta hefur markmiðið ekki verið að auka skatttekjur. Ekkert samband er því milli þess hvort inn- leiða á umhverfis- og orkuskatta og þess hvort auka þarf tekjur ríkis- ins, eins og þarf væntanlega að gera tímabundið hér á landi. Loftslags- breytingar, umhverfispjöll og vax- andi ofnýting á auðlindum jarðar er hins vegar svo stórt vandamál að við því verður að bregðast. Fjöl- margir heimsþekktir hagfræðing- ar hafa því hvatt til þess að skatt- leggja losun kolefnis, mengun og notkun takmarkaðra auðlinda en lækka skatta á vinnu. Slíkt myndi ekki bara hvetja til sjálfbærni held- ur einnig auka hagræðingu í rekstri fyrirtækja. Þá bæta slíkir skattar skil í skattheimtu þar sem þeir eru einfaldari í álagningu og innheimtu en margt annað í skattkerfinu. Íslendingar eru nú þegar mestu orkuhákar heims og nota um þrisvar sinnum meiri orku á mann en t.d. Bandaríkjamenn. Þótt um 80% af þessari orku sé umhverf- isvæn og fari til stóriðju er það umhugsunarefni hvort við ætlum að byggja hagkerfi okkar á enn frek- ari orkuvinnslu og málmbræðslu. Það getur varla verið keppikefli okkar að verða helsta lágverðsríki og skattaparadís heimsins á orku sem alls staðar er vaxandi skort- ur á. Nærtækara er að nýta kol- efnislausa orku okkar í að fram- leiða eldsneyti í stað þess sem nú er flutt inn og verða þannig fyrsta ríki heims til að verða bæði sjálf- bært, mengunarlaust, kolefnisjafn- að og óháð öðrum um alla orku sem við þurfum. Slík umhverfisleg for- ysta gæti stórbætt orðspor landsins á alþjóðavettvangi og skapað meiri efnahagslegan ávinning fyrir þjóð- ina en að fjölga enn frekar áleggj- um í lífskjarakörfu okkar. Höfundur er veðurfræðingur. Orku- og umhverfisskattar MAGNÚS JÓNSSON INDRIÐI H. ÞORLÁKSSON ÓLAFUR TEITUR GUÐNASON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.