Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 25

Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 25
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 RONNIE WOOD rokkarinn úr Rolling Stones, hefur hleypt af stokkunum nýrri fatalínu sem fáanleg er í verslun- inni Liberty í London. Innblástur að fatalínu sinni fékk hann frá málverkum sem hann hefur sjálfur málað í gegnum tíð- ina en rokkgoðinu er greinilega ýmislegt til lista lagt. Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Opið virka daga kl. 12.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00 6 mán. vaxtalausar greiðslur Fyrst og fremst í heilsudýnum             ! "#$% &'( )* + ,-%,.,/,-%,.,0& www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Viðurkenndar stuðningshlífar í úrvali Auglýsingasími – Mest lesið „Ég er frekar glötuð þegar kemur að gellustússinu og hef alltaf verið,“ segir Ragnhildur Magn- úsdóttir Thordarson, dagskrár- gerðar- og kvikmyndagerðar- kona, glettnislega. Ragga, eins og hún er oftast kölluð, bætir því næst við að sér líði einna best lítið farðaðri og í gallabuxum og bol. Þannig sé hún venjulega en Ragga skartar svo sannarlega náttúrulegri fegurð og þarf því lítið að snurfusa sig til að bera af. Hún segist þó hafa ánægju af því að klæðast fallegum kjólum við rétt tilefni. Það sé þó ef til vill aðeins um það bil sex sinnum á ári. Kjólinn sem hún er í á mynd- inni fékk hún í afmælisgjöf frá vini sínum fyrir skömmu. Hún segist hafa hrifist af sniðinu og sérstæðu mynstrinu. „Hann er svolítið sixtís og mynstrið svolít- ið fríkað,“ segir hún ánægð með val sitt á afmælisgjöf. „Ég er vön aðeins öðruvísi stíl en er hér á landi,“ segir Ragnhild- ur en hún ólst upp í Kaliforníu og flutti ekki hingað til lands fyrr en hún var komin á fullorðinsár. Þar klæði fólk sig minna upp á og stíllinn sé ögn borgarlegri eða „urban“ eins og stundum er sagt. „Það er kannski þess vegna sem ég klæði mig svona sjaldan upp á,“ segir hún og skellir upp úr. „En mér þykir líka gaman að vera dama og þessi kjóll á þá vel við.“ karen@frettabladid.is Gaman að vera dama Ragnhildur Magnúsdóttir Thordarson, dagskrárgerðar- og kvikmyndagerðarkona, er einkar ánægð með kjól sem vinur hennar gaf henni fyrir skömmu. Hún hreifst af sniðinu og sérstæðu mynstrinu. Ragga Magg hefur gaman að því að vera dama. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.