Fréttablaðið - 29.10.2009, Side 27
FIMMTUDAGUR 29. október 2009 3
Stundum lifir tískan bara fyrir sjálfa sig og hefur ekkert að gera með þægi-legheit og vellíðan þeirra
sem hana nota. Til dæmis þegar
kjólar eru svo þröngir í mittið að
konur eiga í erfiðleikum með að
anda eða þegar allir karlmenn
eiga að vera í stuttbuxum, sama
hvernig sumarveðráttu háttar,
allt í nafni þess að vera lang-
flottastur. En svo kemur fyrir
að kenjar tískunnar smellpassa
við þarfir fólks. Þetta má segja
um herratískuna í vetur þar sem
mikil áherslan er lögð á fylgi-
hluti og það mikilvægasta er að
eiga risastóra trefla úr grófu
prjónaefni, því stærri því betri.
Treflarnir eiga að vefjast um
háls hvers og eins í það minnsta
þrisvar sinnum. Hvað gæti fall-
ið betur að íslensku vetrarveðri?
Ég er reyndar hæstánægður með
að hafa þrjóskast við og geymt
gríðarlega langan trefil frá H &
M. Því miður úr hreinu gerviefni
sem mér hefur margsinnis verið
bent á að henda því hann taki
svo mikið pláss í skápunum. Nú
verður þessi trefill mikilvægasti
fylgihlutur vetrarins. Treflarn-
ir geta verið úr ósköp venju-
legu prjónaefni eða með köðlum,
útprjóni eða bútasaumi. Stund-
um einlitir, svartir eða grænir
svo eitthvað sé nefnt, eða marg-
litir með munstri eða köflóttir og
svo mætti áfram telja. Treflarn-
ir fara vel við yfirhafnir eða þá
þykkar kaðla peysur sem flestar
herralínur bjóða upp á í vetur
til dæmis línan He frá Mango
eða hjá ódýrari merkjum eins og
Zara og H & M.
Undanfarin misseri hafa
hönnuðir reynt að innleiða
leðurstígvél í fataskáp karl-
manna en það verður að segj-
ast eins og er að árangurinn er
heldur lítilfjörlegur. Sjálfsagt
skortur á tískulegu hugrekki eða
að það sé spéhræðsla sem valdi.
Upphá leðurstígvél sjást hins
vegar meira en nokkru sinni í
vetur. Það er svo aftur annað
mál hvort þau seljist og nái alla
leið út á götur en stígvélin hljóta
að vera nokkuð góður varningur
til að verjast fótkulda.
Þröngar buxur sem eru nán-
ast eins og saumaðar á húðina
(leggings) hafa verið mikið uppi
á dekki í kventískunni en nú eru
þessar buxur einnig að skjóta
sér inn í herratískuna, til dæmis
hjá Kenzo. Þessar þröngu buxur
eru ekkert líkar slim-gallabux-
um Heidi Slimane, fyrrum hönn-
uðar Dior, en úr miklu þynnra
efni, einna líkastar föðurlandi.
Talandi um óhentuga vetrartísku
eru þessar þunnu buxur líklega
heldur léttar fyrir hina gömlu
Frón.
Helsti kostur fylgihlutatísk-
unnar er þó að hún er rakin leið
til þess að spara því með henni
er einfalt mál að dulbúa fatn-
aðinn frá því í fyrra með til-
tölulega ódýrum hætti ef vilji
er fyrir hendi. Og enn og aftur
sannast að það á aldrei að henda
neinu þegar tískan er annars
vegar.
bergb75@free.fr
Treflar í metratali og
herrastígvél upp að hnjám
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Fríða Jónsdóttir gullsmiður hefur
hannað nýja skartgripalínu sem
sýnd verður í Ráðhúsinu um
helgina.
„Nýja línan er þjóðleg enda unnin
upp úr gömlu mynstri,“ segir Fríða
Jónsdóttir gullsmiður á Strandgötu
43 í Hafnarfirði. Hún hefur hannað
nýja skartgripalínu sem sýnd verð-
ur í fyrsta sinn á sýningunni Hand-
verk og hönnun um helgina.
„Þetta er ólíkt því sem ég hef
áður gert og kannski svolítið aft-
urhvarf til ömmutímans,“ segir
Fríða en mynstrið á armböndin,
hálsmenin og eyrnalokkana vinn-
ur hún upp úr gömlum rúmfjölum
sem síðar voru notaðar sem skraut-
munir á heimilum.
Fríða útskrifaðist sem gullsmið-
ur árið 1992. Hún lærði hér heima
og í Kaupmannahöfn en byrjaði að
smíða og hanna sína eigin skart-
gripi árið 1999. Hún hefur hing-
að til fengið innblástur úr nærum-
hverfi sínu við sjóinn í Hafnarfirði,
þar sem notaðir eru vélahlutir,
þang, ígulker og fleira.
Hannar skart út frá
gamalli rúmfjöl
Fríða Jónsdóttir rekur verslunina Fríða
skartgripahönnun á Strandgötu í Hafnar-
firði.
Hægt er að fá armbönd, hálsmen og eyrnalokka í hinni nýju línu Fríðu.
Franski tískuhönnuðurinn Chantal
Thomas hefur hannað dúkku til
styrktar UNICEF í París á hverju ári
síðan 2001. Nú hefur hann enn á ný
hannað sérstaka dúkku sem verð-
ur ein af áttatíu sérhönnuðum dúkk-
um sem verða til sýnis á Petit Palais
í París frá 10. til 15. nóvember sem
hluti af UNICEF-uppákomunni „Frim-
ousses de Createurs”. Dúkkurnar eru
hannaðar af frægum tískuhönnuðum
á borð við Armani, Gucci og Dolce
Gabbana.
Dúkkurnar verða boðnar upp 19.
nóvember af uppboðshúsinu Drou-
ot í París. Ágóðanum verður varið í að
bólusetja börn í Darfur.
Dúkkur boðnar upp
fyrir börnin í Darfur
CHANTAL THOMAS ÁSAMT FLEIRUM
TÍSKUHÖNNUÐUM HEFUR HANNAÐ
DÚKKU SEM BOÐIN VERÐUR UPP OG
ÁGÓÐINN RENNUR TIL GÓÐGERÐA-
MÁLA.
Chantal Thomas með dúkkuna sem hún
hannaði þetta árið. NORDICPHOTOS/AFP