Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 35

Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 35
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009 7ljós og lampar ● fréttablaðið ● Verkís hf. er elsta verkfræðistofa landsins, stofnuð árið 1932. Verkís er öflugt og fjölhæft ráðgjafarfyrirtæki á sviði verkfræði og tengdra greina sem tryggir viðskiptavinum vandaða og faglega ráðgjöf sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum í dag. Verkís vann Norrænu Lýsingarhönnunarverðlaunin 2006 fyrir lýsingarhönnun í Bláa Lóninu - lækningalind. Verkís tók þátt í verkfræðihönnun Bláa Lónsins og hafði umsjón með framkvæmdum. Við lýstum upp Bláa Lónið Íslensk heimili tóku almennu ástfóstri við nokkurra arma ljósakrónur yfir borðstofu- borðum á sjöunda áratugnum og á árunum 1960-1970 kemur orðið „ljósakróna“ oftast fyrir í ís- lenskum dag- blöðum ef frá er talinn fyrstu ára- tugur þess- arar aldar. Ljósa- krónur þekkt- ust áður, en urðu ekki almennings- eign fyrr en á þessum árum en eftir því sem armarnir voru fleiri þótti heimilið fallegra. Eftir 1970 döluðu vinsældirnar enda vildu hipparnir sem minnst sjá af „borgaralegum“ húsgögn- um. Það var svo í kringum árið 2000 sem ljósakrónur, og þá sérstak- lega kristalsljósakrónur, náðu fyrri vinsældum og kepptist fólk við að verða sér úti um stór- ar og glæsilegar ljósakrónur, sem ýmist fengust á antíksölum eða voru fluttar heim í handfarangri frá fjarlæg- um löndum. Veitingastað- ir og hótel voru skreytt með kristals- krónum og barrokk slæddist inn með her- legheitunum. Nú þegar kreppir að verður íburður oft meiri, þar sem gamlir og klassískir hlutir eru áberandi, og því er spennandi að sjá hvort kristalsljósakrónan taki ekki eitt hoppið enn upp á við í vinsældum. - jma Kristalsljósakrónur vinsælar upp úr 1960 „Birtan hefur áhrif á afköst okkar og heilsu,“ fullyrðir Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, lýsingarhönnuður og inn- anhússarkitekt hjá Verkís. Rannsóknir benda til þess að birta hafi miklu meiri áhrif á líf okkar en við hefðum getað ímyndað okkur. Breytingar á birtuskilyrðum geta því breytt lífi okkar til hins betra eða til hins verra. Rósa bendir á að börn nái betur að tileinka sér námsefni í náttúrulegri birtu. Í Bandaríkjunum voru afköst 21 þúsund barna könnuð með tilliti til þeirrar birtu sem var í skólanum þeirra. Í ljós kom að þau börn sem lærðu við mestu dagsbirtuna náðu 20 prósent betri árangri í stærð- fræði og 26 prósent betri árangri í lestri. Börn sem stunduðu nám sitt í skólastofum með opnanlegum gluggum náðu svo tæpum tíu pró- sentum betri árangri en þau sem sem voru í skólastofum sem höfðu glugga sem ekki opnuðust. Utanað- komandi þættir eins og þjóðfélags- aðstæður voru teknar með í reikn- inginn við úrlausn rannsóknarinn- ar og þóttu niðurstöðurnar mjög afgerandi. Rósa segir þó að staðsetning glugga geti skipt máli eftir einstakl- ingum. Til að mynda geti það hent- að börnum með sérþarfir, svo sem vegna athyglisbrests eða einhverfu, að hafa glugga sem eru hátt uppi í rýminu. Þannig fái barn birtu en það sem er úti fyrir trufli ekki ein- beitingu þess. „Sömu þættir hafa svo áhrif á afköst fólks á vinnu- stöðum og geta fækkað veikinda- dögum þeirra. Auk þess sem sýnt hefur verið fram á að rétt birta getur flýtt bata og fækkað legudög- um sjúklinga á sjúkrastofnunum,“ segir Rósa en fyrirtæki hennar sá um að hanna lýsinguna í Lækninga- lindinni í Bláa lóninu. Lýsingin þar þótti svo vel út- hugsuð að Heilsulindin hlaut Nor- rænu lýsingarverðlaunin árið 2006. Þau verðlaun eru veitt annað hvert ár með það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi vandaðrar lýsingar. Meðal þess sem sagði í áliti dómnefndar var að tekist hefði með afbragðshætti að móta eðlileg umskipti milli lýs- ingar og náttúrulegrar birtu úti fyrir. Allar lausnir hefðu tekið til- lit til heilbrigðis og vellíðunar auk fagurfræðilegra þátta. Nú þegar skammdegið hefur skollið á landinu og þjóðinni segir Rósa mikilvægt að fólk gæti sín á því að fá nægan skammt af sólar- ljósi. Hún minnir á að árið 2002 hafi verið uppgötvaður birtuskynj- ari í auga mannsins sem hefur áhrif á hormónaflæði líkamans sem svo hefur áhrif á líðan fólks. „Það getur haft afleiðingar að njóta ekki við náttúrulegrar birtu allan daginn,“ segir hún. Auk þess bendir hún á að góð nýting dagsbirtu hafi ekki að- eins jákvæð áhrif á líðan fólks held- ur einnig á umhverfið vegna þess hve það dregur úr orkunotkun við það og er þar með sparnaður. „Horfa þarf til framtíðar þegar hanna á lýsingu og hafa í huga hvaða áhrif ljós og lýsing hafa á okkur, einnig þarf að huga að heild- arskipulagi lýsingar áður en fram- kvæmt er og gæta þess að dagsljós- ið og rafmagnslýsing vinni saman að einni heild,“ segir Rósa. Rétt lýsing getur bætt líf okkar og afköst í starfi Þessar myndir þykja lýsandi fyrir það hvernig svokallað litahitastig hefur áhrif á upp- lifun og skynjun rýmis. Myndirnar fyrir neðan voru teknar á sýningunni Ljós í myrkri sem haldið var 2008 en Rósa segir að unnið hafi verið með sömu þætti þegar lýsingin í Lækningalindinni í Bláa lóninu var útbúin. MYND VERKÍS Rósa Dögg Þorsteinsdóttir bendir á að rannsóknir sem náðu til 21 þúsund nemenda í Bandaríkjunum sýni að afköst nemenda aukist um allt að 26 prósent ef þeir njóta réttrar lýsingar við námið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● LITAÐAR SNÚRUR Hægt er að lífga upp á upphengd ljós með því að skipta um snúrur, leggja hvítu leiðslun- um og setja í stað- inn upp rauðar eða í einhverjum öðrum lit sem passar á heimilinu. Þetta heillaráð kynnti danska fyrirtækið Normann Copenhagen sem nýjung á þessu ári þegar efnahagur almennings leyfir ekki hvað sem er. ● KLEMMAN Hinn nýstárlegi lampi Peg sem lítur út eins og þvottaklemma í yfirstærð hefur verið búinn til í þrem- ur stærðum svo að hann henti hvar sem er, í glugga eða á borð, á gólf eða á vegg. Borðlampinn er 40 sentimetrar á hæð, gólflampinn 1,5 metrar og vegglampinn 70 sentimetrar. Efnið er stál og ópal plast. Hönn- uðurinn kallar sig Formforyou og það er Belysningsbolaget Sweden sem er framleiðandinn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.