Fréttablaðið - 29.10.2009, Side 37
FIMMTUDAGUR 29. október 2009 5
GJAFAPAPPÍR þarf ekki að vera svo dýr ef notuð
eru efni sem þegar eru til í kringum okkur. Þar má
nefna gamla boli eða föt, servíettur, tóbaksklúta, dag-
blöð eða hvað sem fólki dettur í hug.
Á sýningunni Handverk og hönn-
un má kynnast íslensku handverki,
listiðnaði og hönnun. Þar sýna 59
einstaklingar fjölbreytta hönnun,
allt frá postulínsstellum og fötum
til jólaskrauts og skartgripa. Sýn-
endur voru valdir af sérstakri fag-
legri valnefnd og munu listamenn-
irnir sjálfir kynna vörur sínar í
Ráðhúsinu.
Sýningin hefur vakið mikla athygli
undanfarin ár og mörg þúsund
manns hafa lagt leið sína í Ráðhús-
ið þessa helgi. Á fyrsta degi sýn-
ingarinnar verða Skúlaverðlaunin
2009 veitt í annað sinn. Markmið
þeirra er að hvetja þátttakendur til
nýsköpunar og vöruþróunar.
Aðgangur að Ráðhúsinu er ókeyp-
is en nánari dagskrá og upplýsing-
ar má nálgast á vefsíðunni www.
handverkoghonnun.is
solveig@frettabladid.is
Blá glerskál
eftir Kristínu Sigfríði
Garðarsdóttur.
Nýsköpun í list
Iðandi líf og listir ráða ríkjum í Ráðhúsi Reykjavíkur helgina
30. október til 2. nóvember. Tilefnið er sýningin Handverk og
hönnun sem nú er haldin í fjórða sinn.
Jólaskraut úr ull eftir
Evu Jóhannsdóttur.
Bollar og skálar
úr postulíni eftir
Guðnýju Hafsteins-
dóttur.
Spiladós, Krummavísur, eftir
Margréti Guðnadóttur.
Sparielgur
eftir Pál
Garðars-
son.
Sérverslun með
FÁKAFENI 9
(við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18
& laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
Ármúla 20 // 108 Reykjavík
S: 562-5000 // F: 562-5045
N: bjorninn@bjorninn.is // www.bjorninn.is
Hjá Birninum færðu nýjar hurðir og skúffustykki í
þeirri viðartegund sem þú velur eða sprautulakkað
í þeim lit sem þig langar í. Síðan er bara spurning
hvernig borðplötu má bjóða þér.
Líttu við hjá okkur og kynntu þér málið.
GERÐU GAMLA ELDHÚSIÐ
EINS OG NÝTT
Tekk ehf. sem rekur Tekk Company
í Kringlunni og Holtagörðum tók við
rekstri Habitat eftir að verslunin fór í
þrot fyrr á þessu ári og á Telma Birgis-
dóttir, verslunarstjóri Habitat, von á því að
verslanirnar muni vega hvor aðra upp.
„Það eru talsvert ólíkar áherslur í Tekk og
Habitat en Tekk er með grófari húsgögn á
meðan Habitat leggur mikla áherslu á smá-
vöru eins og eldhúsvörur, stell og hnífa-
pör ásamt þvi að vera með sterka ljósa-
deild.“
Þrátt fyrir erfiða tíma er Telma bjartsýn.
„Við breyttum áherslum í Tekk og höfum
náð að lækka vöruverð. Við höfum þó ekki eins
mikið um það að segja í Habitat en leggjum þess í stað
meiri áherslu á smávöruna. Þá höfum við fundið fyrir mik-
illi eftirspurn eftir Habitat-vörum eftir að búðinni var
lokað og ákváðum að slá til. “
Verslunin Dorma, sem selur svefnher-
bergisvörur, opnar einnig á annarri
hæð Holtagarða um helgina og er því
hægt að fá allt fyrir heimilið á hæð-
inni. Á opnunarhátíðinni, sem stend-
ur alla helgina, verður Te og kaffi
með tilboð, Ingó í Veðurguðun-
um tekur lagið auk þess sem trúður
verður á ferðinni um húsið. - ve
Habitat opnar á ný
HÚSGAGNAVERSLUNIN HABITAT OPNAR AÐ NÝJU Í HOLTAGÖRÐUM UM HELGINA OG AF ÞVÍ TILEFNI VERÐ-
UR EFNT TIL OPNUNARHÁTÍÐAR.
Habitat-unnendur geta nú
tekið gleði sína á ný. MYND/HABITAT
Smáauglýsingar
Fréttablaðsins
eru einnig á vísir.is