Fréttablaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 44
28 29. október 2009 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Heittelskaður eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdasonur og mágur, Þormóður Geirsson framkvæmdastjóri og lyfjafræðingur Eggertsgötu 8, 101 Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þann 27. október sl. Jarðarförin auglýst síðar. Erla Björk Jónsdóttir Auður Rós Þormóðsdóttir Freydís Lilja Þormóðsdóttir Geir Friðgeirsson Kolbrún Þormóðsdóttir Steinunn Geirsdóttir Björn Kr. Broddason Nanna Geirsdóttir Martin Trier Risom Auður Geirsdóttir Jón Guðlaugsson M. Auður Gísladóttir Sif Jónsdóttir og Andrea Jónína Jónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, Flosi Ólafsson leikari, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 24. október, verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 31. október kl. 14.00. Lilja Margeirsdóttir Anna Flosadóttir Bjarni Hjartarson Ólafur Flosason Elísabet Halldórsdóttir afa- og langafabörn. Friendtex stendur fyrir landssölu á böngsum frá fimmtudegi til sunnu- dags til styrktar leitarstarfi Krabba- meinsfélags Íslands. Þetta er sjö- unda árið í röð sem Friendtex tekur þátt í baráttunni gegn krabbameini. Fyrirtækið sér um sölu á tísku- fatnaði í heimakynningum og er stærsta fyrirtæki sinn- ar tegundar á Norðurlönd- um. Á vörulista þess er einnig sérstakur bolur sem seldur er til styrktar Krabbameinsfélaginu. Hjá fyrirtækinu starfa 28 sjálfstæðir sölufull- trúar víðs vegar um land, allt frá Reykjavík til Vopnafjarðar. Þeir munu annast söluna ásamt öðrum velunnurum Krabbameinsfélagsins. Allur ágóði af sölu bangsanna renn- ur óskiptur til Krabbameinsfélags- ins. Bangsinn er tilvalin gjöf handa yngri kynslóðinni og kostar einungis 1.000 krónur. Hægt er að panta bangsa með því að senda tölvupóst á sala@friendtex.is eða hringja í síma 568-2870. Bangsarn- ir verða einnig til sölu í hús- næði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð og í Friendtex, Faxafeni 10, á laugardaginn milli klukkan 11 og 16. Selja bangsa til styrktar leitarstöð Upptök heimskrepp- unnar miklu í viðskipt- um og efnahagslífi eru oftast talin miðast við þriðjudaginn 29. okt- óber árið 1929, þegar verðbréf á Wall Street féllu niður úr öllu valdi. Sá dagur er gjarnan nefndur Svarti þriðju- dagurinn. Margar þjóðir brugð- ust við með því að leggja á innflutnings- tolla til að vernda eigið atvinnulíf og auk þess var algengt að tekin væri upp jafnvirðisverslun milli landa. Það þýddi að ekki var leyft að flytja inn vörur nema jafnmikið væri keypt á móti af fram- leiðsluvörum heimamanna. Þróuð lönd sem og þróunarlönd liðu vegna kreppunnar. Alþjóðavið- skipti minnkuðu, tekj- ur einstaklinga drógust saman og þar með skatttekjur og hagnað- ur. Sér í lagi átti það við um borgir og svæði þar sem þungaiðnaður var aðalatvinnugreinin. Árið eftir að krepp- an skall á í Bandaríkj- unum varð hennar vart í íslensku efnahags- lífi. Þá varð mikið verðfall á íslenskum útflutn- ingsvörum og innflutningstollar erlendis ollu auk þess margháttuðum vandræðum. Atvinnuleysi jókst mikið og urðu mörg hundruð Reykvíkingar atvinnulausir. ÞETTA GERÐIST: 29. OKTÓBER 1929 Verðhrun á Wall StreetEINAR ÖRN BENEDIKTSSON FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1962. „Málið er ekki hvað maður getur, heldur hvað maður gerir.“ Einar Örn Benediktsson hefur meðal annars sungið með hljómsveitunum Purrki Pillnikk, Kukl, Sykurmolun- um og Ghostigital. MERKISATBURÐIR 1449 Enska setuliðið í Rúðu- borg gefst upp fyrir her Karls VII. Frakkakonungs í hundrað ára stríðinu. 1665 Portúgalar sigra Kongó- veldið í orrustunni við Mbwila og drepa konung- inn Anton 1. af Kongó. 1919 Alþýðublaðið kemur út í fyrsta sinn. Fyrsti ritstjóri þess er Ólafur Friðriksson. 1922 Rekstur elliheimilis hafinn í húsinu Grund við Kapla- skjólsveg. Átta árum síðar er nýtt hús tekið í notkun fyrir starfsemina og hlýt- ur það nafnið Elliheimilið Grund. 1925 Einnar krónu og tveggja krónu peningar settir í umferð í fyrsta sinn, en áður hafði verið slegin 10 aura og 25 aura mynt. „Hugleikur kom með hug- myndina að nafninu á fyr- irtækinu. Hann gaf eitt sinn út bók sem heitir Ókei- bæ, og okkur fannst sniðugt að geta svarað „Ókeibæ!“ í símann þegar viðskiptavin- ir hringdu. Bókaarmur fyr- irtækisins hlaut svo nafn- ið Ókeibæ Kur, sem okkur þykir líka afskaplega fynd- ið,“ segir Ólafía Erla Svans- dóttir, sem nýverið stofn- aði útgáfufyrirtækið Ókei- bæ ásamt Þórarni Hugleiki Dagssyni teiknimyndasögu- höfundi. Að sögn Ólafíu spratt hug- myndin að stofnun fyrir- tækisins út frá óbilandi trú eigendanna tveggja á bók- inni sem fyrirbæri. „Við erum lítil í stórum heimi, en sala og lestur á bókum hefur aukist að undanförnu og því fannst okkur tilval- ið að skella okkur í slaginn. Við viljum gefa út bækur sem við myndum sjálf vilja lesa og styðja við þá sem við höfum trú á.“ Þrjár bækur koma út fyrir jólin á vegum útgáf- unnar. Fyrst í röðinni er bók um myndlistarmann- inn Davíð Örn Halldórsson, sem kemur út í næstu viku í tengslum við sýningu Dav- íðs í Hafnarborg. „Okkur þótti heldur lítið um útkomu bóka um íslenska listamenn. Davíð Örn hefur verið að gera góða hluti og er að verða mjög stór í bransan- um, þótt ekki sé hann hár í loftinu,“ segir Ólafía og hlær. Í kjölfarið fylgja tvær teiknimyndasögubækur í léttum dúr eftir Hugleik sjálfan og Lóu Hlín Hjálm- týsdóttur, söngkonu hljóm- sveitarinnar FM Belfast. Bók Hugleiks heitir Íslensk dæg- urlög og í henni myndskreyt- ir Hugleikur valin textabrot úr vinsælum dægurflugum. Alhæft um þjóðir er titill- inn á bók Lóu, þar sem tekn- ar eru fyrir staðal ímyndir í hugum fólks. „Hugleiki hefur lengi þótt leiðinlegt að vera einn af fáum sem fá gefnar út teiknimyndasög- ur hér á landi. Á bókamess- um um víða veröld vill hann geta kynnt fullt af íslensk- um teiknimyndasögum. Við ætlum að gera okkar besta til þess að svo geti orðið,“ segir Ólafía. Skrifstofa Ókeibæ er á 2. hæð Vonarstrætis 4, á móti Iðnó. Í sama húsi hafa fleiri útgáfur aðsetur, til að mynda Borgin, Kimi Rec- ords og Skakkapopp. Ólafur Jónsson, eiginmaður Ólafíu, sér um hönnun og uppsetn- ingu á útgáfum fyrirtæk- isins. „Það ríkir sannköll- uð fjölskyldustemning hjá okkur. Oftast erum við öll á skrifstofunni með Anniku, litlu dóttur okkar, og hún er mjög sátt við þá tilhögun,“ segir Ólafía. kjartan@frettabladid.is ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ ÓKEIBÆ: VILL AUKA VEG ÍSLENSKRA TEIKNIMYNDASAGNA Erum lítil í stórum heimi VONARSTRÆTI Þrjár bækur koma út hjá Ókeibæ fyrir jólin. Að sögn Ólafíu og Hugleiks fylgja fleiri útgáfur í kjölfarið eftir áramótin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR AFMÆLI GUÐMUND- UR GUNN- ARSSON formaður Rafiðnaðar- sambands- ins er 64 ára í dag. ÞORSTEINN PÁLSSON fyrrverandi forsætis- ráðherra og ritstjóri Fréttablaðs- ins er 62 ára í dag. Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafn- arfjarðar, sem bæði eru sautján ára gömul, lentu í fjórtánda sæti á heims- meistaramóti í tíu sam- kvæmisdönsum í Moskvu síðastliðinn laugardag. Fjörutíu pör voru skráð til keppni. Þá keppti parið í Russia Open Amateur Latin-mót- inu á sunnudag og komst í 150 para úrslit. Sigurður og Sara voru valin Danspar ársins 2009 af Dansíþróttasam- bandi Íslands. Þau hafa dansað saman síðan þau voru sjö ára gömul. Dönsuðu í Rússlandi GOTT SAMSTARF Sigurður og Sara voru valin danspar ársins 2009.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.