Fréttablaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 50
34 29. október 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Corey Woods sem kallar sig Raekwon (og stundum Raekwon the Chef) er einn af meðlimum Wu-Tang Clan. Hann sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, Only Built 4 Cuban Linx … árið 1995. Hún er mikið meist- araverk og lendir gjarnan í einu af tíu efstu sætunum þegar spekingar velja bestu hiphop-plötur sögunnar. Á Cuban Links koma félagar Raek- wons úr Wu-Tang við sögu sem gestarapparar og svo sá RZA að mestu um taktana. Platan hafði mikil áhrif á þá rapp- ara sem á eftir komu, til dæmis Mobb Deep og Nas. Raekwon hélt áfram sem meðlimur í Wu-Tang og sendi frá sér fleiri sólóplötur, til dæmis The Lex Diamond Story sem kom út 2003, en þó að þær hafi fengið ágætis- viðtökur þá komust þær ekki með tærnar þar sem gamla meistaraverkið hafði hælana. Ekki fyrr en nú. Í september kom Only Built 4 Cuban Linx Pt. II og þetta framhaldsverk gefur fyrstu plötunni satt best að segja lítið eftir. Platan er búin að vera lengi í vinnslu. Á meðal taktsmiða á henni eru RZA auðvitað, Pete Rock, Marley Marl, Alchemist, Dr. Dre og J. Dilla heitinn sem féll frá í febrúar 2006. Og af hverju er þetta svona góð plata? Kannski aðal- lega af því að allir þessir taktsmiðir og rapparar (þar á meðal Ghost- face, Beanie Sigel, Cappadonna og Method Man) eru að skila fyrsta flokks efni. Standa undir nafni. Platan hefur fengið frábæra dóma og er þegar þetta er skrifað í 2.-4. sæti yfir bestu plötur ársins hjá Meta - critic með meðaleinkunnina 8,9 af 10 mögulegum. Vel heppnað framhaldsverk RAEKWON Nýja platan hans er meistaraverk. > Í SPILARANUM The Flaming Lips - Embryonic Bróðir Svartúlfs - Bróðir Svartúlfs The xx - xx Mumford & Sons - Sigh No More Lára - Surprise THE FLAMING LIPS LÁRA > Plata vikunnar Hafdís Huld - Synchronised Swimmers ★★★ „Meira „fullorðins“ en fyrri platan. Margt er flott en Hafdís er þó greinilega enn að finna sig.“ Dr. Gunni Kaleidoscope, nýjasta plata hollenska plötu- snúðsins Tiësto, fær slæma útreið á banda- rísku tónlistarsíðunni Pitchfork. Jónsi í Sigur Rós syngur titillag plötunnar en það virðist ekki hafa dugað til því hún fær aðeins 3,8 í einkunn af 10 mögulegum. „Kaleidoscope er hræðileg. Hún sýnir hvernig hálfmótuð danstónlist blandast saman við illa samið popp. Platan batn- ar örlítið þegar hún sækir innblástur sinn í klisjurnar. Tiësto hamast síðan á þeim þar til þær eru orðnar for- ljótar,“ segir í umsögninni. Platan fær betri dóma hjá BBC þar sem söngur Jónsa er lofaður og sagð- ur draumkennd- ur og frá öðrum heimi. Tiësto fær slæma dóma JÓNSI Fær lof fyrir söng sinn í dómi BBC. TIËSTO Plötusnúðurinn Tiësto fær slæma dóma á Pitchfork. 2009 Eins og hér stíla plötuút- gefendur erlendis upp á að mæta með burðugar hljómplötur á síðustu mán- uðunum fyrir jól. Nokkrar plötur sem eru vænlegar til að gera góða hluti á vin- sældalistum og hjá gagn- rýnendum eru handan við hornið. Dr. Gunni kannaði málið. Margir listamenn eiga traust- an aðdáendahóp. Því mun Sting örugglega hitta í mark þegar hann kemur með plötuna If on a Winter’s Night. Platan mun vera á ljúfu nót- unum og í þjóðlagagír. Þetta er fyrsta sólóplata Stingsins í þrjú ár og jafnlengi hefur Robbie Williams beðið með að koma með nýja plötu. Nú mætir hann með Reality Killed the Video Star. Plötuna gerir hann með Trevor Horn, en hann samdi einmitt lagið Video Killed the Radio Star, sem titill plötu Robb- ies vitnar í. Talandi um uppkomna strákapoppara þá kemur Ronan Keating með nýja plötu fyrir jól og hljómsveitin Westlife kemur með tíundu stúdíóplötuna sína, Where We Are. Rapparinn 50 Cent er svo enn að og kemur með plötuna Bef- ore I Self Destruct. Mjólkað Lengi má mjólka gömul vinsæl bönd. Live at Reading er upptaka með Nirvana frá tónleikum sveit- arinnar 1992. Pakkinn kemur bæði út sem CD og DVD. Líkt og Nir- vana er hljómsveitin The Doors sívinsæl hjá ungu leitandi fólki. Síðustu fjórum tónleikum The Doors árið 1970 hefur nú verið troðið á sex diska og eru kræsing- arnar seldar í boxi. Í mjólkurdeild- ina má einnig setja söngkonuna Susan Boyle, sem varð heimsfræg í kjölfarið á því að Simon Cowell missti andlitið yfir henni í þætt- inum Britain’s Got Talent. Þessi 49 ára söngkona kemur með sína fyrstu plötu, I Dreamed a Dream. Þar tekur hún fjölbreytt efni, allt frá popplögum eins og „Daydream Believer“ og yfir í Heims um ból. Það á alveg eftir að koma í ljós hvort platan verður smellur eða hvellur. Rokkið Weezer er traust í rokkpoppinu. Sjöunda platan heitir Raditude og er væntanleg á næstu vikum. Ástr- alska hljómsveitin Wolfmother sló í gegn 2005 með traust og gam- aldags rokk á plötu samnefndri sveitinni. Söngvarinn og gítarleik- arinn Andrew Stockdale er nú eini upphaflegi meðlimur Wolfmother og kynnir til sögunnar þrjá nýja meðlimi á plötunni Cosmic Egg. Að sögn er New York-sveitin The Strokes alltaf að gaufast í nýrri plötu, en sú síðasta kom út 2006. Fyrsta sólóplata Julian Casa- blancas söngvara, Phrazes for the Young, er væntanleg. Fyrstu plöt- unnar með súpergrúppunni Them Crooked Vultures er svo beðið með óþreyju. Hljómsveitin er skipuð Dave Grohl, Josh Homme og John Paul Jones. Feitustu plöturnar fyrir jól Bróðir Svartúlfs varð tuttugasta og sjöunda hljómsveitin til að bera sigur úr býtum í Músíktilraunum í apríl. Bandið blandar saman rappi og rokki og hefur nú gefið út fyrstu plötuna sína. Hún er sex laga og samnefnd sveitinni. „Við tókum hana upp að hluta til fyrir sigurlaunin,“ segir Arnar Freyr Frostason, söngvari/rappari sveit- arinnar. „Í heild er platan harðari en fólk býst við frá okkur. Það má jafnvel segja að við höfum aðeins verið að blekkja með því að láta bara ljúfustu lögin okkar heyr- ast.“ Hér er Arnar að tala um lög eins og „Fyrirmyndar veruleika flóttamaður“, sem mikið hefur heyrst á Rás 2. Bróðir Svartúlfs varð til í Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki en þaðan eru þrír meðlimir. Hinir tveir eru frá Blönduósi og Skagaströnd. Eru þetta þá sveitamenn? „Tja, ég hef reyndar átt tvö hross um dagana,“ segir Arnar. „Annað drapst í hárri elli en hitt var alltaf brjálað. Gít- arleikarinn Sigfús segist eiga tut- tugu rollur. Allavega talar hann alltaf um rollurnar þegar við keyrum fram hjá bænum hans á leiðinni til Reykjavíkur.“ Þrír úr bandinu eru flutt- ir suður, þeirra á meðal Arnar sem nemur ritlist í Háskólanum. „Hinir tveir flytja í bæinn eftir áramót og þá getum við byrjað að vinna nýtt efni. Ég veit ekki um hina en ætli maður flytji svo ekki aftur norður svona um þrí- tugt. Það er eiginlega ekkert fólk á milli tvítugs og þrítugs á Sauð- árkróki. Maður er málaður út í horn og þarf að flytja af svæðinu ef maður vill mennta sig.“ Útgáfutónleikar verða haldnir á Sódómu á laugardagskvöld. - drg Harðari en fólk býst við HAMRA JÁRNIÐ Bróðir Svartúlfs á tón- leikum á Dillon í sumar. HVAÐ VERÐUR Á ÁRSLISTUNUM? Á hverju ári er í kringum sumar plötur meira „bözz“ en aðrar. Þegar tónlistarspekúlantar gera upp árið nú í árslok er líklegt að eftirtaldar tíu plötur sjáist víða í toppsætunum. ■ Animal Collective - Merriweath- er Post Pavilion ■ Bat for Lashes - Two Suns ■ Dirty Projectors - Bitte Orca ■ The Flaming Lips - Embryonic ■ Fuck Buttons - Tarot Sport ■ Girls - Lust for Life ■ Grizzly Bear - Veckatimest ■ Phoenix - Wolfgang Amadeus Phoenix ■ Wild Beasts - Two Dancers ■ The XX - XX STÓR NÖFN Susan Boyle, Julian Casablancas og Sting eru meðal þeirra sem gefa út plötur seint á þessu ári. Af þekktum hljómsveitum sem gefa út á næstunni má nefna Wolfmother, Weezer og hin sáluga Nirvana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.