Fréttablaðið - 29.10.2009, Side 58
42 29. október 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
helgi á Korputorgi um helgina.
Undankeppni HM 2011:
Norður-Írland - Ísland 0-1
0-1 Katrín Ómarsdóttir (78.).
Frakkland - Eistland 12-0
N1-deild kvenna:
Haukar - Valur 23-34
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 7, Hanna G.
Stefánsdóttir 5, Nína Kristín Björnsdóttir 4, Nína
B. Arnfinnsdóttir 3, Tatjana Zukovska 2, Ester
Óskarsdóttir 2.
Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 12, Ágústa
Edda Björnsdóttir 5, Íris Ásta Pétursdóttir 5,
Kristín Guðmundsdóttir 3, Rebekka Skúladóttir 2,
Katrín Andrésdóttir 2, Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir 2, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Kolbrún
Franklín 1.
Fram - HK 32-18
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 6, Guðrún
Hálfdánardóttir 6, Pavla Nevarilova 5, Steinunn
Björnsdóttir 4, Marthe Sördal 3, Áslaug Har-
aldsdóttir 2, Anna María Guðmundsdóttir 1,
Anna Friðriksdóttir 1, Karen Knútsdóttir 1, Eva
Harðardóttir 1, Ásta Birna Guðmundsdóttir 1,
Hildur Þorgeirsdóttir 1.
Mörk Vals: Lilja Lind Pálsdóttir 5, Elín Anna
Baldursdóttir 3, Gerður Arinbjarnardóttir 2,
Guðrún Bjarnadóttir 2, Heiðrún Helgadóttir 2,
Elva Arnarsdóttir 1, Líney Rut Guðmundsdóttir 1,
Sóley Ívarsdóttir 1, Harpa Baldursdóttir 1.
Iceland Express d. kvenna
Hamar - Haukar 85-84
Stig Hamars: Koren Schram 32, Sigrún Ámunda-
dóttir 18, Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Guðbjörg
Sverrisdóttir 8, Fanney Guðmundsdóttir 7, Hafrún
Hálfdánardóttir 7, Íris Ásgeirsdóttir 2.
Stig Hauka: Heather Ezell 34, Ragna Brynj-
arsdóttir 17, Telma Fjalarsdóttir 15, Guðrún
Ámundadóttir 9, Bryndís Hreinsdóttir 5, Kristín
Reynisdóttir 4.
Keflavík - KR 46-62
Stig Keflavíkur: Viola Beybeyah 26, Bryndís
Guðmundsdóttir 7, Birna Valgarðsdóttir 6, Svava
Ósk Stefánsdóttir 3, Marín Rós Karlsdóttir 2, Eva
Rós Guðmundsdóttir 2.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 13, Margrét Kara
Sturludóttir 13, Jenny Pfeiffer-Finora 10, Signý
Hermannsdóttir 10, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
8, Helga Einarsdóttir 6, Unnur Tara Jónsdóttir 2.
Snæfell - Grindavík 62-73
Stig Snæfells: Kristen Green 22, Berglind Gunn-
arsdóttir 20, Hrafnhildur Sævarsdóttir 8,
Gunnhildur Gunnarsdóttir 5, Sara Andrésdóttir 2,
Unnur Ásgeirsdóttir 2, Hildur Kjartansdóttir 2,
Björg Einarsdóttir 1.
Stig Grindavíkur: Michele DeVault 33, Íris Sverr-
isdóttir 11, Pálína Skúladóttir 10, Ingibjörg
Jakobsdóttir 6, Berglind Magnúsdóttir 6, Jovana
Lilja Stefánsdóttir 5, Sandra Grétarsdóttir 2.
Valur - Njarðvík 55-54
Stig Vals: Sakera Young 18, Þórunn Bjarnadóttir
12, Hrund Jóhannsdóttir 9, Lovísa Guðmunds-
dóttir 8, Hanna Hálfdánardóttir 6, Birna
Eiríksdóttir 2.
Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 25, Helga Jón-
asdóttir 11, Sigurlaug Guðmundsdóttir 5, Anna
María Ævarsdóttir 4, Heiða Valdimarsdóttir 3,
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 2, Jóna Ragnarsdóttir
2, Harpa Hallgrímsdóttir 2.
Enski deildabikarinn
Manchester City - Scunthorpe 5-1
Chelsea - Bolton 4-0
Arsenal - Liverpool 2-1
ÚRSLIT
Ólafur Stefánsson er kominn aftur í landsliðið eftir fjórtán
mánaða fjarveru. Hann hefur ekkert spilað með liðinu síðan
á Ólympíuleikunum í Peking en klæðist landsliðstreyjunni
aftur í kvöld þegar liðið leikur æfingaleik gegn pressuliði
sem íþróttafréttamenn völdu. Leikurinn hefst klukkan 19.30
í kvöld og fer fram í Laugardalshöllinni.
„Það var til að mynda mjög mikilvægt fyrir mig að fá frí
síðastliðið sumar. Ég fékk ekkert sumarfrí vegna Ólympíuleik-
anna og þetta var því tveggja ára samfelld keyrsla,“ sagði
Ólafur við Fréttablaðið.
„Það var einnig gott fyrir landsliðið að spila án
mín. Aron [Pálmarsson] hefur komið sterkur inn
á þessum tíma og fleiri, til að mynda Heiðmar
[Felixsson]. Mitt hlutverk er sífellt að taka breyt-
ingum en ég mun þó alltaf þurfa að skila mínu.
Aðalatriðið er að liðsheildin virki.“
Ísland missti af HM í Króatíu í janúar á
þessu ári en fram undan er EM í Austurríki
skömmu eftir áramótin næstu. Ólafur segir
að menn séu meðvitaðir um að liðið hafi í gegnum tíðina ekki
náð að fylgja eftir góðum árangri á einu stórmóti til þess næsta.
„Menn hafa stressast allir upp þegar illa gengur en svo
kemur eitt gott mót og þá slaknar á öllu í kjölfarið. Þetta virðist
vera í þjóðareðlinu. Við þurfum því að fara gegn sögunni og
eiga tvö góð mót í röð. Auðvitað getur það haft sitt að segja
að við misstum af mótinu í Króatíu en okkar aðalmarkmið
er að liðið sýni stöðugleika. Við sjáum svo til hvað það fleytir
okkur langt.“
Ákveðið var að landsliðið myndi fyrst og fremst æfa
saman í þessari viku enda er langt síðan Guðmundur
Guðmundsson gat kallað saman flesta af sínum
sterkustu leikmönnum. „Það skiptir miklu máli að
við leikmenn æfum svo þéttar með okkar félags-
liðum og komum svo allir í góðu formi. Það
mun ekki gefast tími til að komast í form þegar
komið er fram í janúar. Við stólum á mikinn
hraða í okkar leik og megum ekki við því að
leikmenn séu ekki í sínu besta ástandi.“
ÓLAFUR STEFÁNSSON: KÆRKOMNU FJÓRTÁN MÁNAÐA LANDSLIÐSFRÍI LOKIÐ
Aðalmálið að landsliðið sýni stöðugleika
> Sverrir áfram hjá Sundsvall
Cain Dotson, yfirmaður íþróttamála hjá
sænska B-deildarliðinu GIF Sundsvall sagði í
samtali við sænska fjölmiðla í gær að Sverrir
Garðarsson yrði að öllu óbreyttu áfram í
herbúðum félagsins á næsta ári. Hann
var lánaður til FH í sumar en sneri aftur til
Svíþjóðar nú í vikunni. Þeir Hannes Þ. Sig-
urðsson og Ari Freyr Skúlason eru einnig
á mála hjá félaginu og sagði Ari í samtali
við Dagbladet að hann ætti nú í viðræðum
um nýjan samning við félagið. Enn væri þó
óvíst hvort hann yrði áfram hjá Sundsvall.
FÓTBOLTI Þökk sé síðbúnu marki
Katrínar Ómarsdóttur gegn Norð-
ur-Írlandi ytra í gær að vonir
Íslands um að komast á HM 2011
í Þýskalandi eru enn á lífi. Katrín
kom inn á sem varamaður í leikn-
um og tryggði sigurinn með skalla-
marki á 78. mínútu.
„Við vorum að farast úr stressi
á hliðarlínunni,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálf-
ari eftir leikinn. „Það var orðið
langt liðið á leikinn og við vorum
ekki búin að skora.“
Jafntefli eða tap hefði þýtt að
Ísland hefði átt litla sem enga
möguleika á að komast upp úr
undankeppninni. Liðið tapaði fyrir
Frökkum um helgina og þarf því
helst að vinna alla sína leiki sem
það á eftir í undankeppninni.
Aðeins eitt lið kemst áfram úr
hverjum riðli í undankeppninni í
Evrópu.
„Ég var sæmilega sáttur við
fyrri hálfleikinn,“ sagði Sigurð-
ur Ragnar þrátt fyrir markaleys-
ið. „Boltinn gekk hratt á milli leik-
manna og við sköpuðum okkur fullt
af færum. En því miður náðum við
ekki að klára þau. Við gáfum þeim
hins vegar tvö góð færi með mis-
heppnuðum sendingum í vörn-
inni og því miður hélt það áfram
í seinni hálfleik. Þá byrjuðum við
mjög illa og vorum lakara liðið á
vellinum fyrstu 15-20 mínúturn-
ar.“
En þá kom að þætti Katrínar
Ómarsdóttur sem var sett á bekk-
inn eftir leikinn í Frakklandi.
„Við náðum að rífa okkur upp og
Katrín kom mjög sterk inn og náði
að skora sigurmarkið. Þannig á
maður einmitt að svara fyrir sig
þegar maður dettur úr byrjunar-
liðinu. Hún átti frábæra innkomu,
skoraði glæsilegt mark og spilaði
virkilega vel. Hún tók í raun leik-
inn í sínar hendur, spilaði boltan-
um vel frá sér og dreifði spilinu
skynsamlega. Það var afar jákvætt
að fá hana svona sterka inn og það
sýndi sterka skapgerð hjá okkar
leikmönnum að hafa unnið leikinn
þrátt fyrir að hafa lent í basli með
þetta lið.“
Sigurður Ragnar hrósaði Norð-
ur-Írum fyrir agaðan leik. „Þetta
er án efa þriðja besta liðið í riðlin-
um, á eftir okkur og Frökkum. Ég
gæti vel séð fyrir mér að Frakk-
ar lendi í vandræðum hér ef Norð-
ur-Írar spila jafn vel og í dag. Þær
voru að vísu ekki að skapa sér
mörg færi nema eftir föst leika-
triði. En þær börðust virkilega vel,
voru vel skipulagðar og með öflug-
an markvörð sem hélt þeim lengi
vel inn í leiknum.“
Sigurður Ragnar segir ljóst
hvert markmið liðsins er í und-
ankeppninni. „Við ætlum að vera
með betri markatölu en Frakkar
þegar við mætum þeim á Laug-
ardalsvellinum í lokaleik okkar í
riðlinum. Þá dugar okkur tveggja
marka sigur – annars verðum við
að vinna með þremur.“
Frakkar unnu einmitt 12-0
sigur á Eistlandi í gær, rétt eins
og Ísland gerði í síðasta mánuði.
„Þetta verður greinilega hörkubar-
átta um markatöluna á milli okkar.
Ég reikna með að hún haldi áfram
og það verði svo úrslitaleikur á
Laugardalsvelli næsta ágúst.“
eirikur@frettabladid.is
Katrín hélt lífi í HM-draumnum
Katrín Ómarsdóttir var hetja íslenska landsliðsins er hún tryggði liðinu síðbúinn 1-0 sigur á Norður-Írlandi
í undankeppni HM 2011. Jafntefli eða tap hefði þýtt að vonir Íslands um að komast á HM væru afar litlar.
HETJA ÍSLANDS Katrín Ómarsdóttir skoraði afar mikilvægt mark fyrir Ísland í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Arsenal vann í gær 2-1
sigur á Liverpool á heimavelli í
16-liða úrslitum ensku deildabik-
arkeppnininar. Bæði lið voru skip-
uð ungum leikmönnum í bland við
þá sem fá tækifæri höfðu fengið
til þessa á tímabilinu. Spánverj-
inn Fran Merida kom Arsenal
yfir með glæsilegu skoti á nítj-
ándu mínútu leiksins en Emiliano
Insua svaraði í sömu mynt fyrir
Liverpool er hann jafnaði metin
með sannkölluðum þrumufleyg
átta mínútum síðar.
En það var Daninn Nicklas
Bendtner sem tryggði Arsen-
al sigurinn með marki á 50.
mínútu leiksins eftir að
hann hafði farið illa
með varnarmenn
Liverpool.
Chelsea
lenti
ekki í teljandi vandræðum með
Bolton og vann 4-0 sigur. Salomon
Kalou, Florent Malouda, Deco og
Didier Drogba skoruðu mörk Chel-
sea. Grétar Rafn Steinsson
var í byrjunarliði Bolt-
on en var tekinn af
velli í hálf-
leik.
Þá vann Manchester City 5-1
sigur á Scunthorpe með mörkum
Stephens Ireland, Roque Santa
Cruz, Joleons Lescott, Carlos
Tevez og Michaels Johnson. Jon-
athan Forte skoraði mark Scunth-
orpe.
Þessi þrjú lið eru því komin í
fjórðungsúrslit keppninnar ásamt
Manchester United, Portsmouth,
Blackburn, Tottenham og Aston
Villa.
- esá
16-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar lauk í gærkvöldi:
Sigur hjá ungu liði Arsenal gegn Liverpool
FRAN MERIDA
Skoraði glæsilegt mark
fyrir Arsenal í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY