Ljósberinn


Ljósberinn - 14.09.1935, Blaðsíða 8

Ljósberinn - 14.09.1935, Blaðsíða 8
282 LJÖSBERINN ingaspil. Lofaðu mér því, Bjarni minn, að taka ekki þátt í honum!« »Já, því lofa ég þér, mamma,« hafci Bjarni sagt, og hann ætlaði sér að efna það loforð. Honum hafði líka verið strítt með því nokkrum sinnum, að hann sótti sunnu- dagaskólann. Hann hafði minnst á það við hana, mömmu sína einu sinni og þá bað hún hann að koma til sín, og þá sagði hún við hann: »Bjarni, drengurinn minn, við, sem viljum reyna að feta í fótspor Frels- arans okkar, verðum að sætta okkur við að þola dálítið spott við og við. Mundu ávallt eftir því, hvað Jesús varð að líða okkar vegna.« Og svo báðu. þau saman, mcðirin cg börnin, um hjálp Guðs til að geta geng- ið á vegum hans, eins þó að á móti blési. Svo leið hálfur mánuður. Áin, sem rann yfir þvera bygðina, hafði vaxið mikið síðustu rigningardag- ana, svo að hún var all-hættuleg sums- staðar. En drengjunum þótti gaman að busla við hana. Þar héldu þeir sig svo að segja dag eftir dag. Þeir stikluðu á staurum og gerðu sér viðarflota, já, og stundum voru þeir að veiðum. Veiðin var nú reyndar heldur rýr í ánni, en það gerði ekki svo mikið til, ef að drengirn- ir hefðu aðeins gaman af þessu. Einn daginn þóttist Karl á Heiði vera maður með mönnum. Hann hafði gert sér góðan og sterkan fleka, að því er hann áleit sjálfur, og- svo-ætlaði hann í langferð, Hann ætlaði að stjaka sér áfram eftir ánni, alla leið niður að Nesi. Margir drengjanna réðu honum frá að hætta sér út í þetta, því að áin væri svo afar straumhörð þegar neðar kæmi, en Karl gerði ekki annað en hlæja að þeim. — Hann skyldi sýna þeim að hann væri maður til að komast yfir allar tálm- anir! Fyrst að enginn vildi vera með sér, þá færi hann einn. Og svo ýtti Karl flekanum frá landi. En engum drengjanna kom til hugar að hrópa hiárra fyrir honum. Þetta álitu þeir ofdirfsku. Bjarni í Nesi stóð úti fyrir og var að kljúfa skíð, er honum varð litið upp eftir ánni og sá þá eitthvað koma niður eftir henni á fleygiferð, En hvað gat það verið? Bjarni lagði frá sér öxina og horfði á þetta. Hann gat ekki betur séð, en að maður sæti í hnipri á litlum fleka, sem alltaf bærist hraðara og hraðara niður að fossinum! Hann hljóp sem fætur toguðu niður að ánni og gleymdi öllu öðru en því að hér var enginn, sem gat þjálpað, annar en hann sjálfur. Nú barst neyðaróp að eyrum hans. »Hjálp! Hjálp!« Þetta var reyndar hann Karl á Heiði, sem lá þarna á flekanum! Hvað átti hann nú að taka til bragðs? »Hjálpaðu mér —■ þú mátt til að hjálpa mér, Guð-------.« Þá kom Karl fyrst auga á Bjarna. »ö, Bjarni, hjálpaðu mér, Bjarni, hjálpaðu mér — ég er alveg örmagna ’— fossinn!« »Ég kem!« hrópaði Bjarni um leið cg hann fleygði sér í ána og lagðist 11 sunds að ilekanum, sem var að gliðna í sundur. IJann heyrði hina drengina hrópa og kalla, langt í burtu, en hann vissi að þeir komu of seint til að bjarga Karli, sem. ekki var syndur, »Bjarni — Bjarni — ég er að sökkva! En þá var Bjarni skammt frá honum. Með röskum tveim sundtökum tókst hon- um að ná í handlegginn á Karli — og með herkjubrögðum gat hann náð fcst- um tökum á honum um leið og fleka- skriflið datt alveg í sundur. Hann gat ekki synt með hann til sama lands, hann varð synda yfir ána, enda

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.