Ljósberinn


Ljósberinn - 14.09.1935, Blaðsíða 16

Ljósberinn - 14.09.1935, Blaðsíða 16
290 L JÓSBERINN ínig’ á kné sér og klappaði mér þegjandi, en ég fann að hann var hryggari, en ég hafði nokkru sinni séð hann. Og- c'g held að honum hafi aldrei þótt eins vænt um nokkurn d.reng — nema mig. Þetta. er nú útúrdúr. Fimmta barnið var stúlka, ári yngri en ég, og var nýfarin að ganga, þótti okkur Theobald fátt um hana, en siðar varð hún leiksystir mín og skólasystir og fór alltaf vel á með okkur, svo að vinátta hefir haldizt til þessa dags. En þetta er nú orðinn ákaflega lang- ur formáli fyrir litlu efni, en hér var tækifæri til þess að skýra frá þcssu fólki, sem síðar kemur við söguna. ' Og ástæðan til þess að mamma var nú prúðbúin eins og pabbi, og hafði ekki verið í neinu matarstússi um kvöldið, var sú, að okkur hafði öllum verið boð- ið til kvöldverðar upp í »Neðribúð« - en svo var í daglegu tali nefnd bseði sölubúð og íbúðarhús verzlunarstjóran-, — sem raunar var eitt hús. Var það mik- ið hús að lengd, og tvær vænar stofu- breiddjr, en fremur lágre'st, og voru tveir þriðju hlutar hússins íbúð verzlun- arstjórans, en einn þriðji hluti sölubúð og vörugeymsla. — Þegar inn var komið í íbúðina, var þar notalegt um að lit- ast, margar stofur og smekklega búnar. Það var að vísu fremur lágt undir loft, eins og venja var þá, en einmitt það hefir mér alltaf fundizt valda nokkru um, hversu óvenjulega notalegt var þarna að vera. Og mér finnst nú, að ég hafi aldrei komið inn í jafn prýðilega .skemmtilegt heimili, að því er snertir húsakynni og húsbúnað, að undanskildu »Gamla Apótekinu« hér í Reykjavík. Frh. í sjóferðum með honum, oej ég fœddist í skipi úti á regin- hafi.« Einar: »ó, hvað þú áttir gott, að eiga svona stóra vöggu.« ★ Viðskiftavimir: »Pegar ég keypti þetta úr, þá sögðuð þér, að það myndi endast mér alla æfi, en nú er það ónýtt.« tjrsmiðurinn: »Pegar þér keyptuð það, voruð þér svo ves- aldarlegur, að mér datt ekki í hug að þér mynduð lifa svona lengi.« ★ Kona: »Ef Shakespeare væri á lífi núna, mundi hann þykja mjög merkilegur maður.« Maður liennar: »Já, það er áreiðanlegt, því að þá væri hann orðinn meira en 300 ára gamall.« ★ Maður gekk eftir götu og sá dreng vera að horfa á og hrista lítið vasaúr, sem hann 6 hvarf síðan óeðlilega fljótt. En þá fyrst tók Pétur litli eftir því að frænka hans var hnuggin. Með eld- ingarhraða þreifaði hann fyrir sér í huganum um það, hvort það gæti verið að e:nhverju leyti honum a.ð kenna. Nei, að þessu sinni var hann með spegil- fágaða samvizku, — já, nýfægður kaffiketillinn henn- ar Mörtu gömlu gat ekki verið fágaðri. Hann gekk því rakleitt til frænku sinnar, vafði handleggjunurn ástúðlega um háls henni og sagði: »Vertu ekki hnuggin, elsku frænka.« »Pési, — hérna er símskeyti frá honum pabba þín- um um það, að þú átt að leggja af stað til Lundúna á morgun.« Dökk augu Péturs, sem voru í einkennilegu ósam- ræmi við gljóbjartan kollinn, — fylltust tárum. »En, frænka mín, ég vil ekki fara.« »Elsku drengurinn minn, það er ekki um annað að gera, þú verður að fara. Hann pabbi þinn bíður þín,« ★ Þetta kvöld grét Pési sig í svefn. Hann var ný- búinn að missa hana mömmu sína, — og nú lá fyrir honum að fara frá Ellen frænku,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.