Ljósberinn - 01.10.1939, Page 15

Ljósberinn - 01.10.1939, Page 15
L JÓSBERINN 227 íljótaskip, útbúið með seglum og löngum árum. Skipverjar létu ekki standa á því, að koma með ýmis konar hressingu, sem Langdon þarfnaðist ekki sízt; var það bæði. brauð, kjöt, vín og kaffi. Þegar kaupmaður hafði svalað hinu mesta hungri sínu, fór hann niður í skip- stjóraherbergið, til þess að hafa fata- skipti. Voru föt hans þar tilbúi.n. Báðum, Hinri,k og Lénharði, var allt of mikið niðri fyrir, til þess að þeir hefðu nokkra matarlyst, Þeir stóðu á þilfarinu og störðu óþolinmóðir á hina, myrku garða og hlustuðu eftir hljóði eða fótataki. En það var ekkert annað að heyra en hið há- væra kvak froskanna og einstaka ugluvæl frá trjágrein; stundum hrukku þeir þó samt við, er þeir heyrðu óm af fjarlægum hrópum. Skyldi flóttinn hafa, komist upp, eða voru þetta, einungis drukknir nætursvall- arar? Klukkan var að verða 3. Eftir nokkra tíma yröi orðið bja,rt, og þá áttu þei,r að vera komnir langar leiðir héðan, að öðr- um kosti voru þeir glötuninni ofurseldir. Allt í einu, greip Lénharður í handlegginn á Hinrik og benti, inn á milli trjánna. Þaö leiftraði þar eitthvað. Þetta voru ekki eld- flugur, heldur blaktandi bjarmi frá Ijós- keri. Skömmu síðar heyrðist, blístur, og var því svarað af skipverjum, sem, auk þess veifuðu skriðljósi, Það heyrðust hröð fóta- tök og' barnsraddir, og þessir margþráðu vinir komu nú fegins hugar yfir landgang- inn, og sá ekki í þá fyrir pjönkum og pinkllum. LFndir eins og þeir voru komnir um borð, lét, skipstjóri draga upp segl. Strett- on og smiðurinn biðu, þangað til fyrstu fagnaðarfundirnir voru. af roknir, kvöddu svo í skyndi og yfirgáfu skipið. Landgang- urinn var tekinn brott, og tveir menn á fljótsbakkanum, hjálpuðu til þess að losa festar skipsins, en síðan stjökuðu. skip- verjar því frá landi með löngum stjökum, með aðstoð þeirra Hinriks og Lénharðar. Stinnings gola fyllti seglið, hin þunga seglrá snérist marrandi, og það hljóp mað- ur aftur á, tij þess, að taka stýrissveifina. Trén á bakkanum tóku á rás aftur fyrir skipið. Siglingin var hafin. Það voru alls engin óp eða köll við þenn- an vinaskilnað. Mennirnir í iandi stóðu þöglir og ósýnilegir í hinum djúpa, skugga næturinnar. Hinrik og Lénharður dvöldu nokkra hríð á þilfarinu. Á var snörp gola, eftir regnið, og hinn fjörlegi, gjálpandi hlátur við kinn- unga skipsins gaf tij kynna, að skriðurinn væri drjúgur á skútunni. Meðan Lénharð- ur var enn á'gægjum, að gá að því, hvar þeir hefðu komið út úr jarðgöngunum, skaut upp stórvöxnum og þéttum, laufg- uðum trjálundi, sem sýndi, að þeir voru löngu komnir fram hjá skolpræsavöðlun- urn. Brátt fundu þeir til svíðandi hrollkulda, sem minnti þá á, að fötin þeirra voru vind- andi. Hinrik fór þess vegna með Lénharð niður 1 skipstjórafarrýmið, til þess aö hann gæti haft skipti á þrælabúningnum og ein- hverjum öðrum fötum vinar síns. Þegar þeir voru komnir í þurru fötin, lögðu, þeir sig stundarkorn til svefns. Og bráðlega voru ekki aðrir á ferli á skipinu en maðurinn við stýrið, sem hafði ná- kvæmar gætur á öllum þeim leiðarmerk.j- um á ströndinni, sem hægt var að koma auga á í grárri og skuggsýnni dagrenning- unni. Framhald. A: »Hvernig á að opna þessa dós?« B: »Lestu leiðbeininguna sem fylgir hverri dós«. A: »Hvar er hún?« B: »Niðri í dósinni«. Kennari: »Nú ætla, ég að vita, hvort þú getur gert greinarmun á eintöiu og fleirtölu. Hvort er orðið b u x u r heldur eintala eða fleirtala?« Stebbi: »Buxur eru eintala, efst, en fleirtala að neðanvprðuc.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.