Ljósberinn - 01.06.1940, Page 5
LJÓSBERINN
101
Þar eiga drengir margar yndislegar un-
aðsstundir við söng og Guðs orð, þar sem
öll tilveran talar í orði Guðs, þar sem boð-
skapurinn verður undra lifandi. Paðan eiga
margir minningar frá einverustundum í
skógi eða tjaldi eða frá þvi þegar tveir og
tveir eða þrír og þrír gengu um úti í skógi
og ræddu það sem Guðs er.
En bezta lýsingin er sú, sem fæst fyrir
eigin raun og viðtal við þá, sem hafa. reynt
veruna á þeim stað. Því mun ég ekki orð-
lengja þetta en aðeins vitna til þeirra er
reyn.t hafa.
Og nú í sumar verða enn hafðir flokk-
ar þar uppfrá. Því miður verður að hækka
gjaldið frá því s,em áður hefir verið, þó
verðhækkun sú sé í raun og veru of lítil.
Flokkarnir verða frá 4.—11. júlí, og 12.—
18. júlí, ef þörf krefur bætist einn flokkur
við enn. Verðið verður að þessu sinni með
ferðum og öllu 27 krónur í flokknum fyr-
ir yngri en 14 ára, en 33 krónur fyrir eldri.
Þeir, sem hafa möguleika til að vera með.
geta talað við og fengið frekari upplýsing-
ar hjá Ástráði Sigursteindórssyni, Fram-
nesveg 58, sími 2189, Árna Sigurjónssyni,
Þórsgötu 4, sími 3504, Hróbjarti Árnasyni.
Laugaveg 96, simi 4157, Ara, Gíslasyni, Öð-
insgötu 32, sími 5038 og' svo í K. F. U. M.-
húsinu, sími 3437. Fyrir drengi sem eru
að vinna, er þetta heilbrigðasta og bezta
sumarleyfið og um leið það ódýrasta, fyr-
ir foreldra, sem hafa einhverra orsaka
vegna ekki látið drenginn sinn í sveit, er
þetta bezti staðurinn að leyfa jDeim að
dvelja, viku eða hálfan mánuð. Þeir eru
margir, sem þar hafa átt mestu og beztu
gleðistundir lífsins. Þeir eru líka margir,
sem þar hafa öðlast þá þrá, að vinna menn
fyrir Krist. Þeir eru margir, sem þar hafa
fengið þá þrá, að verða sem mestir og bezt-
ir synir foreldra sinna og sem ágætastir
íslendingar. Ætlar þú að verða með?
A. G.
| Á iwtfit StMgilÍL
j A þig horfir auglit skœrt
i alla þína daga.
j Er þér Drottins auglit kœrt
j eða þér til haga?
j A þig horfir auglit hlítt,
\ er þér freisting mœtir.
I O, að Drottins orði hlýtt
j aila daga gætir.
I A þig horfir auglit grœtt,
I er þú syndgað hefur.
\ 0, að hefðir orðsins gœtt,
| er þér Drottinn gefur.
\ A þig horfir auglit milt,
I er þú náðar biður.
j Jesú nafn er gott og gilt,
gefast skal þér friður.
j Á þig horfir auglit bjart,
í er þú Drottni hlýdir.
i Heimsins nótt og húmið svart
\ hverfur þér um síðir.
A þig horfir auglit skœrt,
j unz í dýrð þú skoðar
i ouglit Jesú undur-kœrt,
I eins og Guðsorð boðar.
M. R.
MYNDIN á fyrstu síðu síðasta tölu
blaðs var af Heklu. Myndin á þessu
blaði er frá Vestmannaeyjum.
>