Ljósberinn - 01.06.1940, Blaðsíða 15

Ljósberinn - 01.06.1940, Blaðsíða 15
LJÓSBERINN 111 in var því komin milli tveg'gja elda. — Þrælmennskan teygði nú enn einu sinni fram krumluna, til þess að ná í Lénharð, en í þetta skifti vildi hann ekki komast lifandi í hendur þeirra manna, sem börð ust til þess að viðhalda hinum smánarlega þrældómi og mansali. Ef hann yrði ekki áður drepinn af byssukúlu, ætlaði hann við fyrsta tækifæri að grípa til vopna, og taka sjálfur þátt í bardaganum, þó að hann væri sár í vinstra handleggnum. Herdeildarforinginn, Jerwins höfuðsmað- ur, virti nú nákvæmlega fyrir sér lands- lagið og allar aðstæður, og hrópaði síðan: »Hlaupið«. Og nú var þotið á harða hlaupum að landsetri einu litlu þar í grenndinni. Þar hafði fáliðaður óvinaflokkur tekið sér að- setur og flúði hann nú, eftir að hafa hleypt af nokkrum skotum. Stofuhúsið var löng múrs,teinsbygging, sem stóð einstök og að- greind frá hlöðunni með breiðu sundi. Að húsabaki var garður með geymslu- og pen- ingshúsum, og þar sem engin hús voru, var há stauragirðing. Á fám augnablikum var garðurinn full- ur og bæjarhúsin af hermönnum, sem lok- uðu hliðinu og vígbjuggu gluggana með borðum, sængurdýnum og öðru þesskonar. Aðrir leituðu sér afdreps á bak við staura- girðinguna. Þeir höfðu ekki lokið þessum varnarráð- stöfunum, þegar hersveitirnar, sem um- kringdu þá, hófu hatramlegt áhlaup. Rauð- ar eldtungur fnæstu úr öllum áttum og var allur bærinn bráðlega hulinn þykkum reykjarmekki. Lénharður var staddur í herbergi, sem bersýnilega virtist vera dagstofan á heim- ilinu. Sökum Iiess er hlaðið hafði verið fyr- ir gluggana, var rökkur þar inni. Sólar- geisiarnir, sem gægst gátu inn um rifurn- ar, féllu á ýmsa muni, er sýndu að þarna hafði friðsamleg fjölskylda verið að starfi fyrir stuttu. Þarna var saumaborð með saumakörfu og lérefti, og lítil telpu-brúða lá á gólfinu. En ekkei't sást af heimilis- fólkinu, það var allt flúið, og Guö einn vissi hvað af því var orðið. Skömmu síðar byrjaði skothríðin einnig á þessa hlið hússins. Kúla kom suðandi eins og býfluga inn um rifu á víggirðing- unni og skall á veggnum nákvæmlega á þeim stað, sem sólargeisli skein á stóra inn- rammaða mynd af karlmanni og kven- manni í brúðkaupsklæðum. Vafalítið var það myndin af húsráðanda. og konu hans. Myndin skall niður af veggnum og gler- brotin þeyttust í allar áttir. Nú heyrðist þrumandi fyrirskipun: »Miðið vel áður en þið skjótið — komið hingaö með þessa dýnu«. Einn hermannanna kom dröslandi með seinustu dýnuna, sem þeir höfðu fundið, og var henni troðið í eitt opið á þessari lélegu víggirðingu. Hermennirnir hfóðu byssur sínar í horn- um og skotum í stofunni og lögðust svo á hnén og skutu, og reyndu að skýla sér á bak við það, sem troðið var upp í glugg- ana. Það gekk ekki á öðru en að kasta sér niður til að skjóta, og standa, upp til að hlaða. Lénharði, sem hafði aldrei áður auðnast að vera með í slíkum leik, virt- ist þessi hraði hermannanna dásamleg sjón, og hann óskaöi þess af öllu hjarta, að sér auðnaðist að ná slíkri leikni. Einn hermannanna hafði hlaðið byssu sína og kraup við einn gluggann, í þann veginn að skjóta. En áður en hann hafði snert gikkinn. hneig hann áfram með þungu andvarpi, og lá hreyfingarlaus. I sama vetfangi var Lénharður kominn að hlið hans. Þarna var tækifæri fyrir hann sjálfan að halda á vopni í hendinni fyrir frelsinu. Hann reif særða handlegg- inn úr fatlanum, greip kúlubyssu her- mannsins og skothylkjabeltið, ásamt litlu töskunni með hvellhettunum. »0t í garðinn, þar er rýmra«, mælti liðs- foringi, sem sá hvað Lénharður hafði fyrir stafni. Þarna var bardaginn enn harðvítugri. Kúlnaregnið frá óvinunum var svo þétt eins og í fyrirskipaðri skothríð. Fjöldi særðra manna og dauðra lágu á jörðinni eða húktu upp við húsvegginni Þétt kúlna- él ösluðu gegnum loftið og smullu á veggj- um og þaki, svo að steinflísar og kalkryk gusuðust út um allt. Lénharður hraðaði sér út að hinni háu girðingu, sem vissi að mörkinni, og stakk byssuhlaupinu út á milli tveggja gildra girðingarstaui'a. Allt var hjúpað ólgandi púðurreyk úti fyrir, svo skotið var næst- um því í blindni. Tæpum hundrað álnum framundan virtist hann grilla í einhverj- ar mannamyndir. Hann skaut undir eins á þetta og dró sig svo í hlé til að hlaða, en þegar hann tók hinn þunga riffil frá kinninni, fann hann til voðalegs sársauka í særða handleggnum, og hann fann, að honum myndi verða al-ómögulegt að hlaða

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.