Ljósberinn - 01.06.1940, Page 16

Ljósberinn - 01.06.1940, Page 16
112 LJÖSBERINN byssuna aftur, enda kunni hann ekki ao fara með hermannabyssur. Á meðan hann stóð nú þarna í veifunni var hönd lögð á öxl honum, og hann ávarp- aður í djúpum málrómi: »Láttu, mig gera þetta, sonur minn, þér er þetta um megn«. Þetta var hersveitarforinginn, Jerwis höfuðsmaður, sem kom honum til aðstoðar. Hann hlóð byssuna í snatri, setti hvellhett- una á sinn stað, fékk Lénharði hana og mælti: »Nú er hún vinnufær aftur. Sendu þeim nú kveðju, Þetta verður, ef til vill, síðasta skotið í fjarvígi. Þeir eru nú á leiöinni að gera áhlaup«. Lénharður var nú sannfærður um, að ha.ns síðasta stund væri komin. Hermenn- irnir myndu sannarlega ekki vægja hon- um, er þeir hittu hann með vopn í höndu-m. En hann var enn á lífi og gat varið sig. Skothríð óvinanna hafði magnast, Girð- ingin veitti lélega vörn, Kúlurnar þutu syngjandi og hvæsandi. og tala fallinna manna óx með hverri mínútu. En Lénharði var hin mesta gleði í þátttökunni í bardag- anum. Hann hleypti af byssunni og hljóp svo til að fá hana hlaðna aftur, og var kom- inn áleiðis, að girðingunni til þess að skjóta á ný. En þá nam ha:nn staðar við að heyra trumbuslátt og há »húrrahróp« fyrir ut- an girðinguna. Óvinirnir voru þá að gera áhlaup. Þá heyrðist þrumurödd höfuðsmannsins: »Hættið að skjóta — þetta eru vorir menn«. Frá þeirri stundu vissi Lénharður ekki af sér, en hneig til jarðar og lá þar hreyf- ingarlaus og jafn fölur og dauði hermað- urinn, sem hann hafði fyrir kodda undir höfðinu. Framh. Sumarstarf K. F. U. H. í Vatnaskógi. Flokkar í sumar verða sem hér segir: 4.—11. júlí og 12.—18. júlí. Verðið er kr. 27,00 fyrir 14 ára og yngri en kr. 33,00 fyrir eldri. Fleiri flokkar eru ekki ákveðnir fyrr en þessir eru fullskipaðir. Drengir eru skrif- aðir í flokkana á eftirtöldum stöðum. Laugaveg 96, sími 4157, Þórsgötu 4, sími 3504, Framnesveg 58, sími 2189, Óðinsgötu 32, sími 5038 og í K. F. U. M., sími 3437. Gefið ykkur fram sem fyrst. Skakki hnappurinn »Sjáið þið nú«, hrópaði Jenny litla, fjúk- andi reið. »Eg hneppti aðeins fyrsta hnapp- inum ska-kkt á kjólnum mínum, og þó verða allir hinir skakkt hnepptir líka«. Og svo> reif hún og sleit í kjólinn sinn, alveg eins og það væri hnöppunum að kenna, að þessi óheppni vildi til. »Vertu róleg, hvað gengur á«, sagði mamma hennar, sem kom hlaupandi að í þessum sömu svifum, til þess að hjálpa henni og sagði mjög alvarlega: »Næst verö- ur þú að gæta vandlega að því, að hneppa fyrstá hnappinum rétt. Ef hann er rétt- ur, þá verða allir hinir réttir líka«. Síðan gekk hún út úr stofunni. Jenny litla varo allt í einu niðurlút. Hvers vegna var mamma hennar svona alvarleg. Já, þá mundt hún eftir því, að hún hafði barið litlu systir sína um morguninn, skammað bróður sinn, og skrökvað að mömmu sinni. Allan daginn var hún óhamingjusöm og ergileg. Var þetta ekki öfugt við það, sem átti að vera, alveg eins og heil röð af hnöpp- um, sem voru hnepptir skakkt, bara af því að fyrsti hnappurinn var ekki réttur. Sjáið nú, kæru börn! Varist að tala eitt ljótt orð, því ef þið byrjið á því einu sinni, er mjög hætt við að fleiri ljót orð komi á eftir; því ein s-ynd bíður annari heim. Mun- ið, að það er hægara fyrir Jesúm að hjálpa ykkur til aö vera góð börn, ef þið viljið sjálf varast að gera það, sem er ljótt. Lærið þessa litlu vísu og hafið hana oft yfir. Ég lærði hana þegar ég var mjög lit.il. Hún er svona: »Guð, varðveittu munninn minn, svo mæli ég gjarnan vilja þinn. Tungu og varir trúlega geym, svo tali ég aldrei illt með þeim«. Margrét Konráðsdóttir. A: »Hvað verður sonur yðar, þegar hann hefir lckið námi sínu?« B: »Gamalmenni, býst ég við«.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.