Ljósberinn - 12.04.1930, Blaðsíða 1
Hinn saklausi.
(Sunnudiigaskólinn 13. apríl 1930).
Lestu. Lúk. 23, 1.—12.
Lærðu. Hebr. 12, 3 a.
Virðið því fyrir yður pann, sem
þolað hefir slík andmæii gegn
sér af syndurum.
1 dag er ykkur sagt frá pví, ungu
vinir mínir, að Jesús, sem aldrei drýgði
synd, var leiddur fyrir dómara og kærð-
ur fyrir honum. Dómarinn var heiðinn,
og vissi ekkert til hvers Jesús var kom-
inn. En þegar hann var búinn að at-
huga sakirnar, sem á Jesúm voru born-
ar, þá sagði hann: »Ég finn enga sök
hjá þessuin manni«,
l5að var fagur vitnisburður af vörum
dómara.
I3eir, sem trúa á Jesúm og elska hann,
gefa honum sama vitnisburðinn. Og helzt
af öllu vildu þeir geta breytt svo, að
þeir fengju liinn sama vitnisburð.
Pið viljið vera lærisveinar Jesú, kæru
börn. Biðjið hann að hjálpa ykkur til
að lifa svo, að líf ykkar mætti sem
mest líkjast hans heilaga lífl.
En þó að þið breytið vel, þá getur
oft svo farið, að þið verðið að þola illt,
fyrir það eitt, að þið elskið Jesú. Minn-
ist þá Jesú. Hann liefndi sín ekki, hann
illmælti ekki aftur, þegar honum var ill-
mælt, heldur fól þá illu meðferð sínum
himneska föður á himnum.
Hið sama eigið þið að gera og taka
öllu slíku róleg og glöð í huga, eins og
Jesús.
Pétur, sem var einn af lærisveinum
Jesú, skrifar vinum sínum bréf og segir
í því bréfi:
»Pað er yndislegt, ef einhver vegna
meðvitundar um Guð þolir móðganir og
líður saklaus.
Og svo var honum sjálfum orðið þetta
tamt, svo hefnigjarn sem liann hafði þó
einusinni verið, að hann tók öllu slíku
með gleði.
En munið uin fram allt, kæru börn,
að Jesús leið þetta allt okkar vegna,
til þess að hjálpa okkur, sem erum sek
fyrir Guði, en ekki saklaus.
»Hinn saklausi talinn er sekur,
að sekir við refsingu sleppi,
og frelsarinn fjötra’ á sig' tekur.
að fjötraðir lausnina hreppi«.
(V. Br.).
B. .7.
-----—><£><» ----