Ljósberinn - 01.05.1936, Side 9

Ljósberinn - 01.05.1936, Side 9
LJOSBERINN 95 hið sanna gnldi lífsins. Stýrimaðurinn bað fyrir mér og okkur báðum, og þá sté bæn mín frá hrærðu hjarta eftir mörg ár. Ég bað um frið og fyrirgeín- ingu. Og á sama hátt bið ég ykkur a.ð fyrirgefa mér.« Sú fyrirgefning var veitt aí fúsu hugarþeli. »0g'« bætti faðir hans við, »nú getum við treyst þér betur eft- irleiði.s.« »Pa.bbi, mamrria. Mig fýsti að fara til sjávar og taka, þátt í volki og æfin- týrum. En nú stefnir hugsun mín að Öðru, æðra. Ég þrái að verða liðsmaður i björgunarsveitinni við ströndina hérna. Mér var bjargað á undursamlegan hátt. Ef mér auðnaðist að bjarga mannslíf- um, væri það gulli og silfri betra., feg- urra en nokkur viðburður úti í víðum heimi.« Anton gerðist fiskimaður hjá föður sínuim.. Hann var dugandi og öruggur. Síðar varð hann liðsmaður í björgunar- sveit strandarinnar. Margu.r einn maðurinn bíður tjón á sálu sin.ni í volki og hrakningúm lífsins. En margt »ís,hjartað er kveðið frá da.uð- um« fyrir kærleika og trú. Anton va.r einn þeirra- Trúboðinn tilvonandi. Einar litli hugsaði mikið um textann. sem hann heyrði í sunnudagaskólanum á sunnudaginn var. Ha.nn var um það, þegar Jesús var 12 ára og kendi hin- um vitru, og lærðu í musterinu í Jerú- salem, og oft hvörfluðu augu hans til niyndarinnar, sem hékk á veggnum í dagstofunni. Hún var af Jesú 12 ára í musterinu,. Einar hlakkaði mjög til þess dags, þegar hann í fyrsta sinni prédikaði fagn- aðarerindið fyrir heiðingjunum. Dag hivern dreymdi hann dagdi'auma um för sína til Indlands, þar sem hann ætlaði að byggja kirkju. Hann sá í huga sér hópa heiðingja flykkjast um kirkju sína og ganga Kristi á hönd. Samtímis því, sem Einar velti þessu fyrir sér og beið allra þeirra stórmerkja, sem eitt sinn myn.d,u verða á leið hans, gleymdi hann öllu hinu smávægilega á heimili sínu og í hegðun sinni. Honum virtist það lítilsvirðandi, að ha,nn, sem eitt sinn yrði trúboði, ætti að bera inr. eldivið og fara sendiferðir fyrir mömmu sína og systur. Dag nokkurn bað Fríða systir hans hann að hjálpa sér til að þvo og gljá gólfið í stofunni þeirra. En Einar brást reiður yið og þa,ut nöldrandi burtu og skelti hurðinni í lás á eftir sér. Fríða gerði það þá ein. En þegar hún kom fram í eldhús, sat Einar þar og boi’ð- aði ávexti. »Þú ert hættur við trúboðs- starfið?« sagði hún. »Nei, alls ekki,« nöldraði hanri, »því heldur þú það?« »Hugsaðu þér, að heiðingjarnir hefðu séð þig áðan, reiðan og önugan. Þeir hefðu áreiðanlega orðið óttaslegnir og farið leiðar sinnar.« »Þá þarf ég ekki að vera hér og snú- ast í kringum þig. En annars kemu.r þér ekki við, hvað ég ætla að verða.« Síðan gekk Fríða á brott hljóð og hjóg- vær. Stund.u síðar fór Einar að íhuga þessi orðaskifti þeirra systkina, Hann sá nú, að hann hefði haft rangt fyrir sér. Hanri sá, að hann myndi aldrei geta hjálpað heiðingjunum, meðan hann sjálf- ur ætti ekki kærleika í eigin hjarta. Áður en hann gekk til rekkju, bað hann Fríðu fyrirgefningar og lofaði að vera nærgætnari og fúsari til liðsinnís framvegis, svo að Guð gæti síðar trúað honum fyrir því að vera öðrum mönn- um til hjálpar og blcssunar. (Þýtt úr dönslm).

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.