Ljósberinn - 01.05.1936, Síða 29

Ljósberinn - 01.05.1936, Síða 29
LJÖSBERINN 115 Með þessum orðum skáldsins lýk ég hugleiðing Jxjssari og óska að vorið og sumarið verði ykkur ánægj.u- og bless- unarríkt. Ein a r Sigurfinnsson. Anna gamla. Nú er sunnudagsg'uðsþjónusta í stóru kirkjunni, en allir spyrja: »Hvar ei' Anna ga.mla (Parti-Annal) ? Ilún situr ekki á sínum stað. »Anna gamda kemiur ekki hingað framar. Ilún er farin héðan til að halda jól í æðra helgidómi. Faðirinn (Appen), sá, er hún hefir alt af verið að vonast eftir hefir nú kvatt hana héðan heim til sín. Hún var fátæk og voluð kona, tötr- u,m búin, heimilislaus, hafði ekkert héi' á jörðu, sem hún gæti kallað sína eign. En samt sakna hennar allir, bæði hvítir og móleitir. »Hún hefir verið mér til svo mikillar uppörfunar,« sagði kona'eins kristniboð- ans. »Ég hefi lært svo mikið af henni,« sagði ein af hinum þarlendu, kristnu kenslukonum. Já, ég hefi líka fagnað fyrir Drotni sakir köllunar hans og náð- argáfna. Þegar ég hitti h,a,na síðast, þá sagöi hún mér ævisögu. sína og nú ætla ég að reyna að endursegja hana. Fyrir tuttugu árum var hún heiðin, og þekti ekki veg hjálpræðisins og dýrk- aði þvi hin mállausu skurðgoð. í jarð- neskum efnum bjó hún við hin beztu kjör. Hún átti mann og son, heimili og' akra. Einu sinni var hún á leið hr3im frá vinnu sinni; kom hún þá auga á utan- stétta-pilt nokkuj-n; hann sat undir tré og var að lesa í bók nokkurri. Þegar hún kom nær honum, þá heyrði hún, að hann las í bókinni, að skurðgoóin væru engir guðir, heldur byggi hinn eini sanni Guð í himninum. Hún bálreiddist, er hún heyrði þetta. og tók að formæla. piltinum fyrir það, að hann gæti dirfst að gjöra slíkt og þvlíkt. En er hún hélt áfram feroinni, þá bar alt í einu eitthvað svo undarlegt fyrir augu hennar, Hún sá stórt, hvítt ský svífa niður; sá hún þá hvar Karadul, guðinn, sem hefir skapað mennina, stóð sjálfur í skýinu og sagði: »Hví reiðist þú því, sem ritað var í bókinni; það, sem þar er ritað, er sann- leikur.« Hún varð þá gripin af skelfingu, og fél.l til jarðar og brá hönd fyrir munr. sér. Hjá nokkrum utanstéttarmönnum fékk h;ún að heyra vitu.nd, meira u.m nýja hjálpræðisveginn; voru þeir nýbyrjaðir að ganga. þann veg. Einu, sinni kom Guð sjálfur til henn- ar og mælti: »Kristnir menn eru, dýrmætar perlur og kennarar þeirra eru glóandi gimstein- ar. Farðu og leitaðu þá uppi. Flýt þér burt héðan. Þá fékk hún að vita hjá konu nokk- urri, að í Madura gæti hún fundið þessa kennara. Hún tók þá skurðgoð sín og tróð þaut undir fótum og lagði síðan af stað til Madura, og ættingjar hennar sýndu henni alla smán og fyrirlitningu að skilnaði. í Madura hitti hún gamjlan kennara og konu h:ans, og þar settist hún að og naut fræðslu hjá |>eim. Þegar kenslu- tíminn var á end,a, þá var hún. skírð, og að því búnu. hélt hún heimleiðis aftur til borgar sinnar. Ileima fyrir átti hún, nýskíro, örðugt uppdráttar; en samt virtist vitnisburd- ur hennar hafa áhrif á tilheyrendux hennar. Einu sinni varð ein af frxendkonum

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.