Nýtt kirkjublað - 18.04.1906, Side 3

Nýtt kirkjublað - 18.04.1906, Side 3
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 91 þeir vilja leggja nauðsynlegt fé fram til menningar og ment- unar þjóðinni. Hér er eingöngu komið undir því, hvort menn vilja eða vilja ekki. Ef menn vilja ekki leggja féð frani, þá eru til lítils allar ráðagerðir. Þá er ekki til neins að verja tíma og kröftum einstakra manna og fé þjóðarinnar til þess, og leggja niður, hvernig á að koma fyrir skólum og kenslu, sem menn svo eigi vilja veita nauðsynlegt fé. Ef menn ekki vilja veita fé til menningar og mentunar þjóðinni, þá er eðlilegast að lóta alt ganga, eins og það hefir gengið í ráðleysu og vanþekking. Tíminn verður svo að sýna, hvað hægt verður að hafa út úr fulltrúum þjóðarinnar með fortölum í hverju einstöku tilfelli. Mentamálið verður á þann hátt alt á ringulreið. En við þessu er ekkert hægt að gjöra, ef þeir, sem eiga að vera leiðtogar þjóðarinnar, bregðast svo, að þeir láta lesti þjóðarinnar, nízku og vanþekkingu hennar vera leiðar- stjörnur sínar, þá verður svo að vera, og æskulýðuriun má segja: „Grísir gjalda, en gömul svín valda“. Ef l'ulltrúar þjóðarinnar aftur á móti hafa þá trú, að þjóðin eigi að mannast og mentast, eins og aðrar þjóðir með mótmælendatrú, þá er sjálfsagt að sýna trúna í verkun- um Fulltrúar þjóðarinnar eiga að vera leiðtogar hennar. Það er beinlínis samvizkulaust, þegar fulltrúar þjóðarinnar skeyta ekki um að mynda sér ákveðna skoðun eða sannfær- ingu í helztu velferðarmúlefnum þjóðarinnar, og enn þá sam- vizkulausara er það, þegar þeir breyta gegn sannfæringu sinni og snúast eins og vindhanar eftir þjóðarviljanum. Eg gjöri því ráð fyrir að fulltrúar þjóðarinnar hafi þá sann- færingu, að þjóðin eigi að mentast, og að þeir séu svo sam- vizkusamir, að þeir breyti samkvæmt sannfæringu sinni og vilji leggja fram féð til mentunarinnar, — og þá er sjálfsagt að byrja á að gjöra eitthvað. Eg hefi gjört ákveðnar tillögur i mentamálinu, en þó að menn aðhyllist þær, þá væri alveg rangt að umsteypa öllu í einu. Á þann hátt geta menn að eins gjört ilt verra. Oss vantar skólahús, oss vantar kennara og oss vantar þekk- ingu í skólamálum. Það dugar ekki að brjóta sundur verk- færin, sem vér höfum, meðan vér höfum engin í staðinn.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.