Nýtt kirkjublað - 18.04.1906, Qupperneq 11

Nýtt kirkjublað - 18.04.1906, Qupperneq 11
99 NÝTT KIRKJUBLAÐ. til föður og móður og náfrænda41 sem knúði Þorvald til að fá Friðrek með sér til að „prédika guðs erindi" á Islandi. Og doktor Helgi kannast eigi heldur við að ástæðurnar til kristnitökunnar hafi verið kristilegri en til sjálfs kristni- boðsins „Hvergi kemur fram sú skoðun, að sá sem kastar heiðni og gjörist kristinn, kjósi sannleik en hafni falstrú.“ Þegar forfeður vorir taka kristni, þá gengur þeim livað helzt til, að þeir hyggja, að binn nýi siður muni verða þeim gagns- meiri af því að hinmakonungurinn sé voldugri en hinirfornu guðir. Þessum dómi er allviða hnekt í sögum vorum. Orð Snorra hér að framan urn afdrif Hákonar jarls andmæla meðal ann- ars óbeinlínis þeim dómi. En nú skyldi því vera haldið fram, að víðast dæmi um það í sögunum kristnir klerkar, senr eigi séu óvilhallir, og er því vísast önnur betri leið en orðin og sögudómarnir til að skilja hið sanna í því rnáli, hvað feðrum vorum mörgum hverjum gekk til kristnitökunnar. Hvílíkir voru mennirnir sem bezt tóku við kristninni hjá os^? Vér skulum geta oss til hvatanna hjá þeim til siðaskift- anna, eftir því manngildi sem þeir hafa i sögum vorunr. Efst- ur er þar á blaði Hallur á Síðu, eitthvert allra ágætasta göf- ugmennið sem þetta land heíir borið. Þá eru ]tað speking- arnir Njáll á Bergþórshvoli og Gestur í Haga. Þá er ef til vill eigi jafn-einsýnt um hvatirnar hjá höfðingjununt i Árnes- þingi, þeim Gissuri hvíta og Hjalta Skeggjasyni, og tekur það vísast meira til Iíjalta, en drenglyndis-raun þolir hann þó vel við höfuð-fulltrúa heiðninnar hjá oss, er landið kristnaðist, og var það sem kunnugt er Runólfur goði í Dal undir Eyja- fjöllum. Það vill svo vel til aö fara má í mannjöfnuð á þeim tveimur. Hjalti varð sekur um goðgá á alþingi 999 og það stimar fór hann utan á því skipi er liann hafði gera látið heima þar í Þjórsárdal, og færði skipið til sjávar el'tir Rangá ytri. Þá kom þar maður eftir landinu og hafði spjót í hendi og skaut til Hjalta, en liann brá við skildi og var maðurinn tekinn, og spurður hver hann væri: „Hann kvað Runólf hafa sent sig lil höfuðs Hjalta, og skyldi hann svo leysa sig und- an sektum." Hjalti mælti: „Kann eg þér betra ráð, far þú utan með mér og mun eg gera þig sýknan.“ Þegar drengskapar og mannúðar mælikvarðinn er lagður

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.