Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Síða 5

Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Síða 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 29 pinna. Þú íklæðist elskunni gagnvart þeim, ekki þannig að þú lokir augunum fyrir brestum þeirra, því að þaS væri ekki réttur kærleikur, heldur þannig aS þú umber þá í kærleika og leitast viS meS hógværS aS hjálpa þeim til aS losna viS bresti sína. Kærleikurinn á aS sameina oss, svo aS vér eins og bræSur hjálpnm hver öðrum til að ná fullkomnunar-takmarkinu- — Þú mátt og vera við því búinn, að þér lendi saman við menn, sem beinlinis gjöra á hluta þinn og móðga þig á ýmsa vegu. Einnig hér ríður á, að þú íklæðist elskunni og lærir að fyrirgefa þær móðganir, sem þú verður fyrir. Það getur veitt erfitt, svo rik sem sjálfelskan er hjá oss En ef þú þá vild- ir hugfesta þér hversu oft þú hefir móðgaS guð og hann þó fyrirgefið þér, ætti það ekki að verða svo ókleift fyrir þig að fyrirgefa bróður þínum það sem liann rnisgjörir við þig. En með því að launa móðganir með góðvild, muntu brátt safna glóðum elds á höfuð mótstöðumanni þínum. — Og loks máttu vera við því búinn, að þér lendi þegar út á sjóinn kemur saman við einhvern þann sem þreyttur er orðinn i lifsins stríði eða saman við einhvern þann sem enn er óreyndur í lífsins stríði. Sjá, þar reynir aftur á kærleika þinn, að þú sért fús til að rétta hjálparhönd þar sem þú getur því við komið. Yfir höfuð að tala, rnun yður aldrei vanta tæki'ærin til þess að auðsýna kærleika félögum yðar á sjónum, ef aðeins ekki vantar viljann til að auösýna hann. Þess vegna vil ég nú biðja yður, þér sjómenn! er þér leegið út á djúpin að hugfesta yður þessa áminningu post ulans: „íklæðist umfrain alt elskunni þvi að hún er band algjörleikans". Munið eftir því jafnan, að þér eiuð allir bræð- ur, börn eins og sama föðursins og allir ákvarðaðir til sama eilífa lífsins. Þér yfirmenn, sem eigið að segja fyrir á skip- unum, munið eftir að íklæðast elskunui, og sjá, að sama skapi sem þér látið í öllu sjálfir stjórnast af kærleika, að sama skapi munuð þér einnig ávinna yður traust skipshafu arinnar og fá hlýðna og trúa undirmenn á skipum yðar. Og þér hásetar, munið eftir að íklæðast elskunni hvor til annars, og verið þess fullvissir, að friður og eindrægui mun verða ríkjandi á meðal yðar og dvölin á skipinu verða yður ánægjuleg og blessunarrik.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.