Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Side 15
NÝTT KTRKJUBLAÐ
|9
enda munu fáir lesa, en ])ar er þó rétt öll vor saga geymd
um hið myrka miSaldaskeið
Árið sem leið kom út 1. liefti áttunda bindis, og er nú
komið að úrinu 1512. Síðasta bréfið í heftinu á undan var
frá árinu 1505. Auk bréfanna frá þessum 7 árum, sem
taka yfir einar 300 blaðsíður, eru allmörg eldri bréf í heft-
inu, sem komið hafa i leitirnar.
Kirkjusaga vor, eða saga landsins, hvora sem telja skal
fyrir, græðir óvanalega mikið á þessu síðasta hefti Fornbréfa-
safnsins, og skal hér vikið að nokkru.
Nokkrar leiðréttingar koma við Biskupatal Jóns Sigurðs-
sonar fremst í Sal’ni til sögu íslands, Myrkasta skeiðið er
upp úr Svartadauða fyrri helming 15. aldar, og eru nú fram
komin fjölda mörg bréf þar til leiðréttingar og viðauka. Að því
er Skálholtsbiskupa snertir mætti þess geta. að dauðaárArna
biskups niilda Ólafssonar er nú rétt talið 1425, en ekki 1430,
biskupsár Árna 12, frá 1413, og fær Jón Gerreksson við það
mun lengri tíma til að fylla mæli synda sinna hér á landi.
Aldur Árna er nú og kunnur, hanh er fæddur hér um bil
1378.
Árni mildi er einhver mesti glæsimaður, sem vér höfum
nokkru sinni átt Hann er á undan endurreisnartímanum
mikla í lok miðalda, en hefir þó einmitt yfirburði þess tima
— og galla. Páfabréfið 1413 segir Jón Skálholtsbiskup —
Jón frá Munklífi í Björgvin — svo yfn-kominn af holdsveiki,
að hold og bein hrynji af hðridum horium og fótum, og því
þurfi aðra andlega og veraldlega forsjá fyrir þeim söfnuði
„á útliafsey, á úthjara heims, að sagt eru. Árni er nefndur
kanoki af Ágústinus-reglu og hanu þá talinn sem næsl 35
ára. Arna er borinn hinn bezti vitnisburður fyrir trúaráhuga,
lærdóm, hreinlífi og veraldar hyggindi. Hins síðasta gætir
mest i hans sögu, og því orðar Finnur dóm sinn um hann
svo, að betur skartaði honum hirðmenskan, fjármálastjórnip
og hvatleikurinn, heldur en biskupsdómurinn.
Þá telur Jón Sigurðsson á milli þeirra Jóns Gerrekssonar
og Godsvins — sem fullu nafni beitir Godsvin Comhaer —
einhvern Jón, danskan eða enskan, um eitt ár, og álitur út-
gefandi Fornbréfasafnsins, að sá Jón sé Jón biskup Vilhjálms-