Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Blaðsíða 11
NÝTT KIRKJUBLAf).
35
ykkar og vildi óska, að ég ]?ekti það margfalt betur en ég
gjöri, ])ví þá gæti ég vonandi prédikað margfalt betur yfir
yður sjómönnum og með enn ])á meiri myndugleika En
hvað það snertir, að ])etta sé öldungis óframkvæmanlegt, þá
dirfist ég að neita því að svo sé og segja, að það sé þvert á
móti einkar vel framkvæmanlegt. Að gjöra alla hluti i Jesú
nafni, hvað helzt sem vér aðhöfun st iivort heldur erí orðieða
verki, — hvað er það annað en einföld skylda hvers einasta
kristins manns. Og kristindómurinn heimtar aldrei neitt ])að
af nokkrum manni, sem sé óframkvæmanlegt. I því sem
öðru lýsir sér miskunn guðs við oss. Það sem hér er heimt-
að, er ekki annað en einn af sjálfsögðustu ávöxtum trúarinn-
ar. Að oss finst slíkt krafa öfgakend, orsakast eingöngu af
því, hve litilsigldur kristindómur vor kristinna manna er, ég
vil segja allflestra. Væri trúin hjá oss eins og hún ætti að
vera, þá mundu menn hætta að tala um þetta sem ófram-
kvæmanlegt, því þá mundum vér sjá það framkvæmt i lífi
margra manna. Það er engin öfgakrafa, sem postulinn hér
beinir að oss, því að það er eðli trúarinnar, að þvi meir
sem hún þroskast, þess meira vald fær Jesús í lífi voru, þess
fleira verður ])að i lífi voru til orða og verka sem ber á sér
áletranina „i Jesú nafni“. Og það er takmarkið vor allra,
að alt vort líf komist undir yfirráð Jesú og fyllist af honum
— því að þá fyrst nær lifið fullum þroska. Það var einu
sinni maður, sem reil þessi miklu orð: „Eg lifi ekki
framar, heldur lifir Kristur í mér“ (Gal. 2,20). Það er eng-
inn efi á þvi, að maðurinn sá hafði lært að gjöra alla hluti
í nafni drottins Jesú. Og þó var hann syndugur maður þessi
Póll postuli, sem orðin ritaði, syndugur maður, sem játaði
það hreinskilnislega, að hann hefði ekki náð hnossinu og
taldi sig ekki vera orðinn fullkominn, en Kristur var orðinn
hans líf. Og því vil ég segja við yður, sjómenn, eins og ég
segi það við yður öll, seni orð inín heyrið: Að sama skapi
seni Jesús fyrir trúna verður lífið í lífi yðar, verður það
ekki nehtá eðlilegt fyrir yður að gjöra alla hluti í drottins
Jesú nafni, eins og lika gefur að skilja, þar sem það þá
er ekl.i lengur yðar vilji sem ræður áformum vðar og fram-
kvæmdum, heldur vilji Jesú sjálfs. Ó, að þér vilduð setja
yður snenima það háleita mark og mið að láta í öllu stjórn-