Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Qupperneq 7

Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Qupperneq 7
NÝTT KIRKJUBLAí). 31 liitt veit ég með áreiðanlegri vissu, að mótbárur þær sem ég hefi heyrt fleygt fram gegn þessu, að sjómenn hefðu guðs orð um hönd úti á skipunum, livort heldur einslega eða i sameiningu, þessar mótbárur hafa verið einskisvirði og eru það enn. Það skyldi vera, að sjómenn vorir væru svo fullkomnir í trúnni og kærleikanum að þeir þyrftu péss ekki með, en þvi hefi ég aldrei lieyrt haldið fram. En sé það svo, að sjómenn vor- ir þurfi þess með sjálfra sín vegna, þá verður lika að gjöra þeim mögulegt, að rækja þá skyldu við guð og sjálfan sig. Sjómaðurinn verður að efla sáluhjálp sina eins meðan hann er á sjónum og endrarnær. Eins og skipinu verður ekki stýrt án kompássins, eins og gangur skipsins verður ekki mældur án skriðmælisins. og staða skipsins á hafinu ekki ákveðin til fulls nema grunnsökkunni sé rent í sjóinn, — þanniggetur ekki sjómaðurinn verið án guðs orðs. Þar sem guðs orð er, þar er kompásinn, sem segir honum til um áttina, hvert hann skal stefna, — þar sem guðs orð er, þar er líka skriðmœlirinn, sem segir honum til um það, hvort honum miðar áfram eða ekki, — og þar sem guðs orð er, þar er líka grunnsakkan, sem á að segja honum til hvar hann er staddur á lífsins sjó. Það skal þá líka reynast svo, að þær skipshafnir, sem helga hvern dag með guðs orði og bæn, hvort heldur er sam- eiginlega eða einslega, þær skulu ekki reynast lakari til sinna verka eða tómlátari en hinar, sem nota tímaleysið sem af- sökun til þess að vanrœkja þetta þýðingarmikla starf að efl- ingu sáluhjálpar sinnar. Þvert á móti nmn sú verða raunin á, að engum tínm verður betur varið á skipunum, en þeim, sem varið er til guðs orða lesturs og bænariðju, ]>vi að við það venjast menn á að „hafa hugann á hinu himneska“, hjá drotni og þá um leið að vinna öll yðar störf eins og fyrir drottins augliti. Eu sá sem vinnur öll sin störf á sjónum eins og fyrir augliti drottins, liann skal verða betri skipstjóri, betri stýrinmður, betri háseti, betri nmtsveinn, hann skal verða tnirri í köllunarverki sínu, hann skal verða þrekmeiri, hann skal verða úrr.tðabetri en hinn, sem ekki gjörir það; störfum hans, jafnvel hinum auðvirðilegustu, vex gildi við ]iað, því að Imnu sér innsigli drottins á þeim og skoðar sig sem samverkainann og umboðsnmnn guðs En einnig þella er eiukenni kristilegs

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.