Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Síða 1

Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Síða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ HÁLFSMÁNAÐARRIT E YRIR KRISTINDÓM Oö KRISTILEGA MENNING 191 Reykjavik, 1. april. 7. blað Irjúhundruð ára minning bibliujipingarinnar unsku. Hið Breska og Erlenda Biblíufélag mintist þess er 300 ár voru liðin frá því er íslenska biblían kom út á Hólum hjá Guðbrandi, og sendi félagið hingað til landsins sumarið 1884 skrautbundnar biblíur þessu til minningar. Þetta vorum við, þótt smáir værum og séum, á undan bresku biblíuþýðingunni og útgáfunni, að nú fyrst í árkemur 300 ára minningin þar. Það gekk alt svo seint með siðbót- ina á Englandi. Enska þýðingin, þessi eina löggilta, er kend við Jakob konung annan. „Þýdd úr frumtungunum, vendilega borin saman við eldri þýðingar og endurskoðuð, að skipun Hans llátignar 1611.“ Endurbætta þýðingin enska, sem út kom 1885, er kend við Oxford. En eldri þýðingin kemur út jöfnum böndum síð- an og er áfram aðalþýðingin. Og góð og vönduð og vegleg hefir þýðing sú verið á sínum tíma, og mótar kirkjumálið enska. Breska Biblíufélagið hefir kosið 1. sunnud. eftir páska, hinn 23. þ. m. til minningardags. Fer þann dag fram há- tíðaguðsþjónusta í Heilagri Pálskirkju í Lundúnum, og óefað verður þess viðburðar minst um allan hinn enska heim. Um leið lætur félagið fara fram sýningu á öllum bibliuþýðingum og útgáfuin, og verður sýning sú óumræðilega stór og til- komumikil. Biblíuþýðing Wickliffs, sem lokið var fullum 100 árum áður en Lúter fæddist, var fyrst prentuð í heilu lagi 1850. Þrátt fyrir ofsóknir katólsku kirkjunnar varðveittist sá dýrlegi dómur enskrar þjóðar og tungu í einstaka eftirritum. Siðbótarmað-

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.