Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Blaðsíða 9

Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Blaðsíða 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ 81 eg er sannfærður um, að það er bæði kristilegt og rétt. Það er kærleikurinn, sem þar kemur fram, kærleikurinn sem „trúir öllu, vonar alt, umber alt.“ Það er kærleikurinn, sem gjörir oss víðhjartaða, vonarstyrka og umburðarlynda. — Hverjir verða hólpnir? Eg hverf nú aftur að spurningu þeirri, sem eg byrjaði á og endurtek i tám orðum svar það, sem eg álit verabiðeina. rétta og kristilega svar upp á spurninguna: Sá sem trúir mun hólpinn verða! Sá sem gefur guði hjarta sitt mun hólpinn verða, og það af hvaða þjóð sem hann er, hvort sem vér köllum hann kristinn eða heiðinn, hvað sem líður skoðunum hans eða kenningum. Hann verður hólpinn af þvi að hann hefir með því að gefa guði hjarta sitt, þróað hin guðlegu lífsfræ, sem guð gróðursetti hjá honum, til þess að gjöra bann hæfan fyrir fyllingu eilífs sælulífs í dýrð himnanna. Hann verður hólpinn af þvi að hann er móttækilegur fyrir hið himneska hjálpræði, móttækilegur fyrir hið eilífa lífguðsbarna-samfélagsins. Ekki svo skilja, að hlutskiftið verði hjá öllum á sama hæðarstigi, heldur fer það alt eftir þroska hvers eins. í eilífu lifi upp- sker engirin meira en hann niðursáði hér. En vér trúum á framhaldandi þroska í öðru lífi, framhaldandi þróun til full- komius sælulífs guðs harna. En í þessu: „Sá sem gefur guði hjarta sitt, mun hólpinn verða,“ felst þálíka hitt: „Hver sem ekki gefur guði hjarta sitt, mun fyrirdæmdur verða.“ Því að afleiðingin af því, að hann vill ekki gefa guði hjarta sitt er sú, að hann sinnir ekki kröfum guðs, að gera hans vilja, hvort heldur þessar kröfur hljóma lil h'ans frá fagnað- arerindi Jesú eða frá djúpi eigin sálar hans og samvisku. En þetta sinnuleysi leiðir aftur lil þess, að frjóangar guðlífsins í hon- um taka aldrei neinum þroska og þar kemur um siðir, að þeir deyja út. En deyi guðlífið í oss, þá er öll von úti, því að þá vantar með öllu móttækileika fyrir hið eilífa himneska líf. Það sannast á slíkum manni, að „frá honum verður tek- ið einnig það sem hann hefir.“ Og örlög hans verða: eilíf- ur dauði. En vel gjörðum vér í að minnast þess, hvað þetta síðastnefnda atriði snertir, að hér er drottins eins að dæma; Jivi að hann einn þekkir „hið dulda hjá mönnunum,“ hann einn getur um það dæmt, hvort úti er öll von um, að maðurinn

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.