Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Page 10

Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Page 10
82 NÝTT KIRKJUELAÐ geti öðlast eilífa lífið. Þegar Jesús segir: „Dæniið ekki!“ þá áminn- ir hann oss að vísu um að varast hið fyrirdæmandi hjartalag ylirhöfuð. En orðin hafa vafalaust einnig aðra nierkingu, sér- staklegra eðlis, eða gætu að minsta kosti haft það: Láttu það hjartalag vera í þér, að þú aldrei, skilyrðislaust aldrei, segir um nokkurn mann: Hann er án alls innra sambands við guð; deyi hann á þessu augnablild, er honum glötunin vís, hann lendir í eldsvítinu (Gehenna)! Oss mönnutn veitir svo afarerfitt að muna eftir þessu, að dómurinn tiiheyrir drotni, en ekki oss, — að vort er þar á móti að vona alt hið besta og hjálpa til þess i kærleika og um- burðarlyndi, að vonir vorar rætist. „Kærleikurinn trúir öllu, vonar alt, umber alt.“ Mér dettur í bug saga ein, sem eg hefi lesið fyrir alllöngu. Það er saga af presti eða réttara tveimur prestum, ungum og gömlum. Ungi presturinn var heitur í trúnni, strang- ur, eins og ungir prestar eru oft. Einhverju sinni bar svo til, aö gömul kona andaðist i prestakalli hans og nú átti hann að halda líkræðuna yfir henni. En konan hafði ekki verið það, sem ungi presturinn kallaði trúuð kona; hafði ekki sótt kirkju eða gengið til guðsborðs eða yfirhöfuð tekið nokk- urn þátt í guðræknislifi safnaðarins. Og þegar ungi prestur- inn ætlaði að fara að skrifa, flugu honum í hugorðin: „Hver sem ekki trúir mun fyrirdæmdur verða!“ Þessi kona getur ekki orðið hólpinn, hugsaði ungi presturinn, og það verður að segjast öðrum til viðvörunar. En hvernig sem hann dýfði pennanum í byttuna, kom ekkert á pappirinn. Það var eins og honum væri varnað að geta komið orði að nokkurri hugsun. I vandræðum sínum fleygði ungi presturinn frá sér pennan- um, tók staf sinn og hatt og gekk til nábúa síns, gamla prestsins. Sagði hann honum í hvaða vanda hann væri staddur; konan, sem hann ætli að tala yfir, hefði verið vantrúuð, en sér væri ómögulegt að semja líkræðuna yfir hana. Gamli presturinn kinkaði kolli og mælti: „Ráð veit eg við öllu þessu, ungi vinur! Farið heim aftur, setjist við skrifborðið yðar og farið að skrifa. En hugsið yður jafnframt, að það sé móðir yðar látin, sem þér eigið að fala yfir!“ Að svo búnu fór ungi presturinn heim til sín og tók aftur að glíma við líkræðuna. En nú fóll honum verkið svo undurlétt, því að hann hugsaði

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.