Nýtt kirkjublað - 01.06.1911, Page 13
NÝTT KIRKJUBLAÖ 133
vont eður órétt, leynt ebur ljóst; heldur jafnan reiðubúinn að
taka upp á mig mannhatur og ofsóknir trúarinnar, dygðar-
innar og sannleikans vegna. Eg skal vera fús að fyrirgefa
þeim sem mér á móti brjóta, nær þeir leita sátta við mig;
og enda þeir aldrei leili, skal eg samt ekki hefna mín á ]>eim
sjálfur, heldur líða óréttinn með Jjolinmæði. En sjái eg til
uppbyggingar þéna, að beiðast réttar míns af dótnaranum,
skal það ske án alls haturs lil míns mótparts, fyrir hverjum
eg skal af hjarta biðja, að dæmi míns lausnara Jesú.
7. Sver eg og heitstrengi, að eg skal rækja mitt lík-
amlega kall með allri ráðvendni; nota mér þínar jarðnesku
gáfur með ástundun og sparsemi, en forðast samt alvarlega
alla ágirnd, búksorg og sérplægni. Eg vil bera mig að vinna
svo fyrir sjálfum mér, að eg sé ekki öðrum til þyngsla, en
geti heldur styrkt og stoðað mína þurfandi bræður í heimin-
um. Sálargagn mitt skal eg þó ætið láta sitja í fyrirrúmi
fyrir líkamans, og einasta rækja líkamann sálarinnar vegna,
en ekki til þess ab vondar girndir í honum uppæsist, sem
eru sálarinnar ólyfjan. I fám orðum: Eg vil ástunda að
brúka svo heiminn að eg ekki misbrúki hann.
8. Sver eg og heitstrengi, að eg skal hlýðinn og auð-
sveipur vera öllum mínum yfirboðurum þinna vegna. Eg skal
vera mínurn kongi og veraldlegu yfirvaldi hollur og trúr undir-
sáti; heiðra landsins lög með dygðugu og ráðvöndu framferði;
gjalda möglunar- og afdráttarlaust rnínar skyldur og skatta;
styrkja til réttarins framkvæmdar, nær eg þar til kallast; vera
nytsamur limur þess borgaralega samkvæmis föðurlandinu til
besta. En minn höfuðtilgangur í öllu þessu skal vera sá, að
þóknast þér, minn guð og skapari!
Ef eg sjálfur er yfir nokkra boðinn, skal eg ætíð brúka
mitt vald yfir þeim með réttvísi og kærleika, þeim til besla
en þér til dýrðar.
9. Sver eg og heitstrengi, að eg skal ástunda að láta
mér framfara í þinni þekkingu og elsku, meðan eg lifi; og
þessvegna brúka þar til kostgæfilega þau meðul sem þú mér
gefið hefir, nefnilega: þitt heilaga orð og kvöldmáltíðarsakra-
ment míns herra Jesú.
Þessi blessuðu meðöl skal eg iðuglega brúka með allri
þeirri auðmýkt og andakt sem eg get; með bæn trú og þakk-