Nýtt kirkjublað - 01.01.1914, Side 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HÁLFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1914
Reykjavik, 1. janúar
1. blað
lijjdrsdagur 1880.
Endurminningar og vonir kristinna manna.
eftir síra Pál heitinn Sigurðsson.
Prédikun
Þegar átta dagar voru liðnir og hann skyldi
umskera, var hann látinn heita JESUS, eins og
hann var nefndur af englinum, áður en hann
var getinn í móðurlífi. Lúk. 2, 21.
Á þessum degi verða opinberunin og náttúran samtaka
í því að tala til vor. Guðspjallið segir oss frá, að hinu ný-
fædda barni i Betlehem var gefið nafnið Jesús og teljum vér
nú 1879 ár, síðan þetta heilaga nafn tók að hljóma á vörum
mannanna. En hversu gleðilegt og þýðingarmikið er það, að
þenna merkisdag er minnir oss á nafn drottins, skuli bera
upp á nýjársdag! Vér skulum, kristnir bræður, athuga, að
heiminum rann upp sannarlegt nýjár, þegar „sól réttlætisins11
tók að skína yfir jörðina; af því nýjári guðsnáðar helgast öll
nýjár náttúrunnar og verða í fullum skilningi fagnaðarrík. —
En fyrst af öllu skal eg taka það fram, að hátíðisdagar slíkir sem
þessi, þótt þeir sé af guði gefnir öllum jafnt til endurlífg-
unar og gleði, þá koma þeir að notum því aðeins að sannur
fj’amfarahugur búi i sálunum; því að ef enginn er framfara-
hugur, ef sálirnar eru dofnaðar af hugsunarleysi eða léttúð, þá
hlýtur þeim mönnum að finnast einn dagurinn öðrum Iíkur,
og hátíðisdagurinn tekur þá öðrum dögum lítt fram. Menn
líða þá áfrarn svo sem í svefnmóki, og þó að raddir kalli bæði
úr hæðum og djúpum, bæði af himnum og úr hugskotinu, þá
heyra menn ekki slíkar raddir né gefa þeim gaum, og gjöra sér
þannig hinn besta hátíðisdag að hvei’sdagslegum degi. Öðru
vísi er þeim mönnum farið er hugsa kristilegum hugsunuin