Nýtt kirkjublað - 01.01.1914, Blaðsíða 16

Nýtt kirkjublað - 01.01.1914, Blaðsíða 16
12 NÝTT KIRKJUBLAÐ frestinn, og siðan veita verðlaunin ])eim manni er á best rit- uðu eða gagnlegustu ritgerðina fyrir almenning. Sjóðurinn er nú í árslokin orðinn yfir 5þús. kr. og þótti ástæða að fara að nota hann samkvæmt gjafabréfinu. Varð að lialda sér við orð bréfsins, og sjá hvernig gæfist. Er auglýsing í Lögbirtingablaðinu um verðlauna-boðið. „Frit Yidnesbyrd11. Morten Pontoppidau er prestur á Sjálandi, í Stenlöse, maður nokkuð við aldur. Hélt hann úti um 12 ára skeið blaði eða tíma- riti er hauD nefndi svo sem yfir stendur, en hætti við fyrir 8 ár- um síðan. Nú kemur ritið aftur út og eru þeir tveir um það, M. P. og Arboe prestur Rasmussen. Þeir stofna blaðið til varnar hugsana og kenningarfrelsi í kirkjunni. Þykir þeim óvæulega horfa fyrir því nú á tímum og kirkjunni þá um leið hin mesta hætta búin. Þeir telja og mikla nauðsyn til þess, að kristinn almenningur eigi kost á að kynnast biblíurannsóknum vorra tima, og teljabest að prestarnir sjálfir gjörist flytjendur þess máls, af skiljanlegum ástæðum. Og þeir vilja ekki vera hornrekur, sem kaupi á sig frið með því að þegja, þeir hinir skilgetnu synir siðbótarinnar. Allur evan- geliskur kristindómur stendur og fellur með trúar og 'nugsanafrelsi. Ritið kemur út 1. og 15. í mánuði frá okt. byrjun í haust, er hvert tölublað 16 síður, fest i snotra kápu. Gefur Gyldendal út og kostar 4 kr. um árið. Mest munu þeir tveir 'útgefendurnir sjálfir eiga í ritinu, og verður áreiðanlega vel læsilegt og fróðlegt. Biblían á bryggjunni. Prá júnílokum 1912 til jafnlengdar 1913 stigu rúmlega 800 þús. innflytjendur fæti á land í New York. Plestir komu í júní, 116 þús., en fæstir í janúar, 26 þús. Biblíufélagið sem kennir sig við New York hefir sett sér það mark, að geta gefið hverjuin innflytjanda, sem þess óskar, biblíu, og mun vera á góðum vegi að það takist. Fær hver á sínu móð- urmáli, og þurfa túlkarnir að vera margir. Eftir þvi sem „Mbl.“ segir frá, er hugsað alt minna um lík- amann hjá þeim, sem upp er skipað á Ellisey. Gyðinga-þýðing á Gl.tm. Nefnd lærðra rabbína f Amerfku situr yfir þýðingu Gamla testamentisins. Segja þeir, sera ekki er tilhæfulavst, að hallað sé

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.