Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Page 2

Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Page 2
194 NÝTT KIRKJUBLAÐ því hver veit nema náðargjöfin sé gefin þér og mér. En það er alvarlegt tjón að vanrækja náðargjöfina; af slíkri vanrækslu leiðir ómetanlegt tjón fyrir sjálfa oss og aðra. Ætli prédik- anir vorar batni ekki, ef vér áminnum sjálfa oss á undan hverri prédikun með þessum gömlu orðum; „Vanræktu ekki náðargjöfina þína“. En það er önnur hlið prestsstarfsins, það er umhygrjjan fyrir hinum einstöku sálum. Þar ber ekki á fjöldanum, þar fer fram starf í kyrþey. Jesús starfaði ekki eingöngu meðal mannfjöldans, en einn- ig og ekki minst í kyrþey meðal hinna fáu. Fjöldi fólks var oft í fylgd með honum. En oft talaði hann við vini sína um það, sem heyrir Guðs ríki til, og aðrir vissu, að óhætt var að leita til hans og tala við hann í einrúmi. Nikódemus kom til hans um nótt, þeir voru 2 saman, hin Ieitandi sál og sá sem leitaði að sálum. — Jesús var á ferð og var orðinn veg- móður, þá settist hann niður við brunninn, og vér könnumst við konuna, sem kom að sækja vatn, en átti tal við Jesúm og drakk af binni eilífu uppsprettu, sem aldrei þrýtur. I þess- um kapitulum sjáum vér starf Jesú gagnvart hinni einu sál. Lítum á 5. kapitulann í hinu sama guðspjalli (Jóhannesar). Kapítulinn byrjar svo: „Eftir þetta var hátið Gyðinga, og Jesús fór upp til Jerúsalem11. Þar hlýtur að hafa verið mikill fjöldi saman kominn til þess að halda hátíð. En þar var líka mikill fjöldi, sem ekki gat haldið hátið. I súlnagöngun- um við Betesda lá fjöldi sjúkra manna, og einn úr fjöldan- um mætli á þeim degi hinum mikla lækni. En læknaði mað- urinn vissi ekki hver það var, því að Jesús hafði leynst burt, með þvi að fjöldi fólks var á staðnum. En hvað skeður svo? Eftir þetta hittir Jesús hann í helgidóminum, og þar talaði sálusorgarinn einslega við sóknarbarnið. Jesús læknaði hinn blindfædda mann og mikið talaði fjöldinn urn það verk. En Jesús fann hann, þegar hinn læknaði maður var rekinn burt af fjöldanum, og svo fór fram samtal milli hans og Jesú. Zakkeus gat ekki séð Jesúm fyrir mannfjöldanum. En Jesús sagði við binn leitandi mann: „í dag ber mér að dvelja í húsi þínu“. Og Zakkeus tók með gleði á móti sínum sálar- hirði. Þegar vér lesum guðspjöllin með eftirtekt, þá sjáum vér ijölda fólks, og greinum ekki andlitin. Vér sjáum fjöl-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.