Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Blaðsíða 12

Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Blaðsíða 12
204 NÝTT KTRK.TUBLAÐ ^ ^ vinna geti eigi orðið þolanleg milli stefnanna, fái þessir 2 menn mestu að ráða. Brýningin er söm og áður hjá N. Kbl. — til starfa, sér eða saman, hvort sem betur lœtur. Og bezt telur blaðið opinskátt og frjálst tal um þetta, og bréíi þeirra sjömenningnnna því bezt komið fyrir einmitt hér i blaðinu. jeimsstríðið og trúmdlin. Eftir G. Hjaltason. I. Heimsstrídið er engin guðsafneitunarástœða. Stríð hefir mátt heita daglegt brauð á allri mannkynsœf- inni, og samt hefir mannkynið alt af meira eða minna haldið fast við trúna á guðdóminn. Skoðað strið og aðrar stórplág- ur eins og refsingu senda af reiði hans, eða þá reynslu senda af kærleik hans, eins og „æfiskólans íþrótt harða“, ætlaða til að efla mannsandann og vekja hjá honum löngun æðra lífs; og strið virðast oft frelsinu fylgja, en frelsið þykir oft mesta hnossið. Þetta stríð er nú að vísu stórkostlegasta stríðið sem sögur fara af, en mannkynið hefir nú aldrei heldur verið eins margt. Samkeppnin aldrei eins mikil, samgöngurnar aldrei eins margbreyttar, og hergögnin aldrei eins mörg og mögnuð eins og einmitt nú, kristindómsleysið í mesta menningarlandinu komið á mjög hátt stig, (sjá Nietz- sche og andans bræður hans), svo við öllum skelfmgum mátti búast. Og svo bætist nú við, að mentunin er víða hjartalaus gáfnadýrkun, og fagra listin formleikur tómur, sem fegrar oft það sem verst er. II. Hver segir oss annars, að guði þurfi að vera svo ant um mennina? Hver segir oss, að vér séum svo dýrmætir í alheimsbú- inu? Hver kendi oss að krefja og biðja drottin? Hver kendi oss? að vér værum börnin hans öðrum verum fremur?

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.