Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Qupperneq 10

Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Qupperneq 10
202 NÝTT KIRKJUBLAÐ II. Varla er svo vesælt sendibréf, að ekki sé eitthvert beint tilefni til þess, og því ætlað eitthvað víst á að vinna hjá þeim sem les og við tekur. Og eigi er það síður svo með blaða- greinir, eða svo ætti að vera. Erindið, sem greinarkornið í 15. júlí-blaði, átti í heiminn, var lögeggjan til yngri stefnunnar, að taka upp svipaða kristi- lega starfsemi hér í bæ og K. F. U. M. rekur og hefir rekið undanfarið. Ástæður fyrir þeirri lögeggjan þær meðal annars, að gamla stefnan megi ekki vera ein um hituna og eru þá að- íinsluorðin um fulltrúa þeirrar stefnu, en mest er þó lögeggj- anin vegna sjálfrar hinnar yngri stefnu, sem fær enn miklu þyngri dóm, sitji hún aðgjörðarlaus hjá. Vinum mínum í K. F. U. M. hefir sárnað mest orðið það, að yngri stefnan teldi sumt „varhugavert" hjá K. F. U. M. Man er sá orðið i próförk, að fló í hug að kynni að meiða, og vildi það ekki, og velti fyrir mér, hvort „athuga- vert“ væri ekki þýðara orð, en þó varð ekki af leiðréttingu, en telja mætti það gleymsku hjá ritstjóra, þætti sjömenning- unum það orðið nokkuð stygðarminna. Og sé nú spurt hvað þetta „sumt“ er, þá mundi nýja stefnan sérstaklega nefna bókstafsinnblásturskenninguna, sem K. F. U. M. hér mun telja grundvallaratriði. Hitt sem meitt hefir, er að „betur þurfi að gæta barns- eðlisins, en gjört er hjá K. F. U. M.“ Greinarhöfundurinn var fyrir nokkru ekki svo ótíður gest- ur á kvöldsamkomum K. F. U. M., og ofbauð, hve mikið börnunum var borið í striklotu, hvíldarlaust, af fremur stremb- inni uppbyggingu, las hann þreytu á andlitum barnanna yfir- leitt, og varð þess sjónar og heyrnarvottur, að uppbyggingin sýndist ekki hafa tilætluð áhrif hjá drengjahnokkunum inni á samkomunni. N. Kbl. flutti sumarið 1910 sögu af nýju sunnudagaskól- unum á Englandi. Sú mynd, sem þar var sýnd, vakti löng- un margra að fá eitthvað svipað hér, og nýju stefnunni treyst betur að sækja fyrirmyndir þaðan. Ritstj. vill ekki taka neitt aftur sem hann hefir sagt hlý- legt til viðurkenningar starfsemi K. F. U. M. hér á landi, en

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.