Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Blaðsíða 14

Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Blaðsíða 14
206 NÝTT KIRKJUBLAÐ sem sagí5i: „Svo elskaði guð heiminn“ o. s. frv. Það var hann einn sem sagði: „Faðir, ait er þér mögulegt“. III. Er heimsstríðið syndaliegning ? Það halda margir trúmenn. En stríðið getur aðeins verið hegning fyrir ])á sem eitt- hvað valda því, eða breyta illa á annan hátt — en alls ekki fyrir börn eða sakleysingja. En einmitt þessháttar fólk fær einna sárast að kenna á afleiðingum stríðsins. En hverjir valda striðinu? Eru það nú bara keisarar, kóngar og aðrar stjórnir, hershöfðingjar og auðkýfingar? Nei, þeir eru íleiri, það eru allir sem tala eða gera rangt svo um muni. Vér þurfuni ekki að leita að dýpstu rótum stríðsins út fyrir landsteinana. Þær eru í sjálfum oss eins og i öllum öðrum þjóðum. Alt ilt lyndi, öll öfund, ágirnd og heipt, alt dramb og hatur, og öll kúgunarfyrirlitning; þetta eru nú að- alrætur bardaganna. — Ekki aðeins ofmikið, heldur einnig oflítið sjálfsálit eru Iíka einhver hættulegasta stríðsorsökin. Heiptin verður altaf heitust og langvinnust hjá þeim sem þykjast fótumtroðnir verða. Sigurvegarar fyrirgefa fremur en sigraðir. Elskan ein auðmýkir loksins að gagni, en láum ekki þjóðunum sem berjast. Vér lifum altaf í friði og þekkjum ekki hermensku né hernað. En hefir friðurinn gert oss frið- samari, mannúðlegri, ráðvandari og drenglyndari en herþjóð- irnar? Það sést nú bezt bráðum. Dýrtíðin sverfur hart að smælingjum kaupstaðanna. Ætli ríkir seljendur vorir var- ist nú að hafa neyð þeirra fyrir féþúfu? Ætli þeir verði nú svo mannúðlegir að láta eitt ganga yfir alla? eða þá svo hyggnir að sjá og skilja, að fótumtroðnir og smáðir lítil- magnar eru allra manna hættulegastir, bæði fyrir þjóðfélag og mannfélag? Oss hrýs með réttu hugur við hinu heimskulega hatri milli hámentuðustu þjóða heimsins núna. — En llokkar vorir skamma hver annan með líkum orðum og enskir og þýzkir hverjir aðra. Og er þessi smái og stóri orðahernaður ókristilegur og brennimark á menning 20. ald- arinnar, fivað þá nú hinn hernaðurinn. En orð geta af sér verk, þegar varir minst. Vigamóðsglóðin vor lifir enn í öskunni,

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.