Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1962, Síða 13
Núverandi stjórn Landssambands idnaðarmanna. Talið jrá vinstri:
Tómas Vigfússon, gjaldkeri, Vigfús Sigurðsson, varaforseti, Guð-
mundur Halldórsson, forseti, Jón E. Ágústsson, ritari og Gunnar
Björnsson, vararitari.
framleiðni í íslenzku atvinnulífi með þeim hætti, sem
nánar verður kveðið á um í reglugerð, sem ráðherra
setur, að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.
Stofnunin skal vera Alþingi og ríkisstjórn til ráðu-
neytis í tæknilegum vandamálum, er iðnað varða. Hún
skal leitast við að efla samvinnu framleiðenda, stofn-
ana og félagasamtaka til framfara í íslenzkum iðnaði
og vörudreifingu og hafa náið samstarf við þá aðila
um slík mál.
Iðnaðarmálastofnun Islands skal annast skipulagn-
ingu og stjórn stöðlunarmála, hafa forgöngu um samn-
ingu, útbreiðslu og útgáfu íslenzkra staðla og vera
forustuaðili á íslandi í öllu, er að stöðlun lýtur.
6. gr.
Stofnuninni skal heimilt að taka að sér tiltekin verk-
efni til fyrirgreiðslu hagkvæmni í rekstri og aukningar
framleiðni, fyrir hvern þann aðila, er til hennar leitar,
enda komi fullt gjald fyrir samkvæmt gjaldskrá, er ráð-
herra setur, að fengnum tillögum stjórnar stofnunar-
innar.
Skulu slík mál vera trúnaðarmál milli stofnunarinn-
ar og þess, sem unnið er fyrir, og er stofnuninni óheim-
ilt að skýra frá þeim, nema með samþykki aðila.
Reksturskostnaður Iðnaðarmálastofnunar Islands,
umfram reksturstekjur, greiðist úr ríkissjóði, og sé fé
veitt til þess í fjárlögum.
8. gr.
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um
framkvæmd laga þessara.
9- gr-
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 16. febrúar 1962.
Núverandi stjórn I.M.S.Í. skipa: Axel Kristjánsson,
formaður, Björgvin Frederiksen frá L. I., Benedikt
Gröndal frá V.S.I., Björn Bjarnason frá A.S.I., Helgi
Bergs frá S.I.S., Magnús Brynjólfsson frá V.I., Óskar
Hallgrímsson frá Iðnsv.r. A.S.I. og Sveinn Guðmunds-
son frá F.I.I.
Framkvæmdastjóri er Sveinn Björnsson, verkfræð-
ingur.
Eins og sjá má á greinarkorni þessu, þá hefur það
tekið fimmtán ár að móta Iðnaðarmálastofnun Is-
lands og að fá endanlega viðurkenningu löggjafar-
valdsins á þýðingu tæknistofnunar fyrir iðju og iðnað
á íslandi.
Ársskýrslur stofnunarinnar eru bezta heimild um
störf stofnunarinnar og ótvírætt gildi hennar til að efla
framfarir í iðnaði hér á landi. Ég mun ekki að þessu
sinni rifja upp einstaka þætti starfseminnar, því það
yrði of langt mál, en ég vil að lokum bera fram þá
ósk, að Iðnaðarmálastofnun Islands beiti sér fyrir því
og eigi frumkvæðið að því, að komið verði á fót á Is-
landi stofnun hliðstæðri við þær, sem til eru á norður-
löndunum hinum og nefnast Teknologisk lastitut. Það
væri verðugt viðfangsefni fyrir stjórn stofnunarinnar
að beita sér fyrir. Þá mundi hún reisa sér óbrotgjarnan
minnisvarða og lyfta íslenzkum iðnaði á hærra menn-
ingarstig.
Ég vona, að á næstu árum verði verklegt og bók-
legt menningarsetur fyrir iðnaðarmenn og iðnverka-
fólk risið af grunni, því að ekkert eitt mál getur
haft jafnmikla þýðingu fyrir iðnaðinn í landinu og
framþróun hans eins og þjálfun huga og handar allra
þeirra mörgu, sem um ókomin ár munu keppa að því
að geta borið sæmdarheitið góður iðnaðarmaður.
Fyrrverandi forsetar handssambands iðnaðarmanna ræðast við.
Talið frá vinstri: Helgi H. Eiriksson, forseti Landssambandsins í
20 ár frá 19)2 til ig$2 og Björgvin Frederiksen, forseti Landssam-
bandsins í S ár eða frá /952 til /960.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
5}