Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Síða 7
Iðnaðarmannafélag Stykkishólms
Miðvikudaginn 26. scptcmber mættu for-
scti Landssambands iðnaðarmanna, Guð-
mundur Halldórsson, og framkvæmdastjóri
sambandsins, Bragi Hannesson, á fclagsfundi
hjá Iðnaðarmannafélagi Stykkishólms.
Formaður Iðnaðarmannafélags Stykkis-
hólms, Bjarni Lárentíusson, setti fundinn kl.
9 síðdegis, cn síðan skýrðu Guðmundur og
Bragi frá starfsemi Landssambandsins.
Að lokum urðu nokkrar umræður, en síð-
an voru sýndar fræðslukvikmyndir.
Iðnaðarmannafélag Olafsvíkur
Fimmtudaginn 27. scptember var stofnað
iðnaðarmannafélag í Ólafsvík.
Á stofnfundinum mættu forscti Landssam-
bandsins, Guðmundur Halldórsson, og Bragi
Hannesson, framkvæmdastjóri.
1 stjórn Iðnaðarmannafélags Ólafsvíkur
voru kosnir: Vigfús Vigfússon, húsasmíða-
mcistari, formaður, Elías Valgeirsson, raf-
virkjameistari, ritari, og Böðvar Bjarnason,
húsamíðameistari, gjaldkcri.
Fclagið hcfur sótt um upptöku í Lands-
samband iðnaðarmanna. Félagsmcnn cru 18.
Skipasiníði ........................ 135
Iðnaðarbankahúsið .................. 136
Þrettánda Norræna iðnþingið ....... 137
Iðnaðarhús við Grensás ............. 139
Emil Jónsson, ráðherra, sextugur .. MO
lijarni Tómasson, mdlaram.:
Skógur í gær — gluggi í dag....... 141
Nýjungar og notkun þeirra....... 144
Hrriöfjörðsblikksmiðja 00 ára. Kætt
við stofnandann G. J. Breiðfjörð . 148
I'tírsiðumynd er af báti í smfðum hjá
Skipasnn'ðastöðinni Driifn hf., Ilafnar-
firði.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
Otge/andi:
LANDSSAMBANDIÐNAÐARMANNA
Iðnaðarbankahúsinu, Reykjavík
Pósthólf 102 . Sími 15363
Ritstjóri:
BRAGI HANNESSON (ábm.)
iSUipasmtbi
Fyrir nokkru var frá því skýrt í fréttum, að íslenzkt og erlent fyrirtœki,
sem buðu í smíði stálskips, hefðu verið með sambœrileg tilboð, en er-
lenda tilboðinu fylgdi lánsfyrirheit um 70% byggingakostnaðarins til 7
ára. Var það því tekið.
Hér er komið að vandamáli, sem innlend skipasmíði befur fundið
fyrir að undanförnu og brýna nauðsyn ber til, að stjórnarvöld landsins
geri sér grein fyrir.
Innlend skipasmíði hefur átt erfitt uppdráttar, þótt flestir bafi baft
skilning á nytsemi bennar. Stafar það fyrst og frenist af því, að bún hef-
ur ekki notið tollverndar, en orðið lengst af að keppa við erlenda skipa-
smíði, sem búið hefur við traustari og öruggari vinnumarkað og efna-
bagslíf, en bér befur verið.
Ejtir að farið var að endurgreiða aðflutningsgjöld af efni, áhöldum og
vélum, sem fóru til innlenda skipasttiíðaiðnaðarins, batnaði aðstaða
hans og segja má, að innlenda skipasmíðin hafi orðið fullkomlega sam-
keppnisbæf, þegar farið var að skrá gengið rétt.
Hins vegar er staðreyndin sú, að innlenda skipasmíðin hefur ekki
eflzt neitt að ráði, þrátt fyrir þetta, og stafar það fyrst og fremst af
lánsfjárskorti og vöntun á starfskrafti.
A þessu verður að ráða bót, m. a. með meiri aðstoð Fiskveiðasjóðs
við innlenda skipasmíði. Auk þess þarf að heimila skipasmíðastöðvun-
um að setja tryggingavixla fyrir greiðslu aðflutningsgjalda af vélum og
tœkjum í skip og báta, svo að ekki þurfi að binda fjármagn þar, sem
hvort eð er verður endurgreitt.
Síðast en ekki síst þarf að kanna, hvort ekki er unnt að gera skipa-
smíði eftirsóknarverðari atvinnugrein en verið hefur, t. d. með því að
koma á ákvœðisvinnu í skipasmíðaiðninni.
B. H.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
135-