Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Side 16
Nýjungar
og notkun þeirra
Hentug borvél við byggingar
Með því að búa þessa „RV“Mole-
vél 250 snúninga rafmagnshreyfli, er
hún fær um að bora göt, 12 þuml. að
þvermáli, gegnum 8 þuml. þykka
steypuveggi, fyrir lagnir á gufupíp-
um. Lofttæmibúnaður (sog) heldur
vélinni upp að veggnum með að-
haldsþrýstingi, er nemur einni smá-
lest.
Model ,,RV“Mole-vélin er öll úr
stáli, létt og þægileg meðferðar, með
gangskiptibúnaði, sem leyfir hraða
inngjöf og útdrátt borendans, meðan
unnið er. Ekki er til þess ætlazt, að
vélin sé yfirleitt notuð til að gera
göt með svo stóru þvermáli sem 12
þuml., en með hæggengum hreyfli er
hún vel fær um að leysa það verk-
efni.
Hentug borvél fyrir byggingar.
Framleiðandi er Molco Drilling
Machines, Inc., 909 Franklin Street,
N.E. Washington, D.C., U.S.A.
Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda.
I.T.D. nr. 0398
Skór fyrir þungar vélar
Svissneskur framleiðandi hefur
framleitt margar stærðir af skóm,
sem ætlaðar eru þungum vélum, til
stuðnings, hvíldar og afréttingar.
Skór fyrir þungar vélar.
Hingað til hafa slíkar vélar yfir-
leitt þarfnast steyptrar undirstöðu,
sem er ekki aðeins dýr, heldur gerir
vélina óhreyfanlega. Með slíkri und-
irstöðu verður vélin fyrir titringi frá
öðrum vélum, og veldur einnig sjálf
öðrum vélum titringi. Þá má og
nefna þann ókost steyptrar undir-
stöðu, að hún gefur litla sem enga
hljóðeinangrun.
Notkun nýju vélaskónna getur
dregið úr öllum þessum ókostum.
Þeir eru aðallega gerðir úr nokkrum
lögum af muldum korki og hamp-
vefi, sem þrýst er niður í plastsetu
(bakelite-vinyl).
Mynd 1 sýnir skó, sem hægt er að
hækka og lækka, þótt hann haldi
áfram að vera jafnsléttur. Útbúnað-
urinn, sem þófinn eða púðinn er
festur á, er samsettur af tveimur
málmfleygum, sem haldið er saman
af skrúfu og ró. Hæðinni á skónum
má breyta með því að snúa skrúf-
unni. Þessi gerð af skóm er fram-
leidd í fjórum stærðum fyrir þunga
frá 500 upp í 12.000 kg/ferfet.
Mynd 2 sýnir þá gerð af skóm,
sem notaðir eru undir rennibekki
eða önnur véltæki, sem hafa fætur
með hinum nauðsynlegu skrúfugöt-
um. Hér er skórinn stálklæddur og
með skrúfugati til að taka á móti
skrúfunni, eins og sýnt er.
Mynd 3 sýnir gerð af skóm, er
veita auka- eða viðbótarstuðning og
vinna gegn sérhverri tilhneigingu til
að síga í miðjunni. Þessi gerð er fá-
anleg í tveimur stærðum, fyrir þunga
frá 500 til 1000 kg.
Talið er, að notkun þessa útbún-
aðar spari bæði tíma cg peninga og
dragi úr hávaða og titringi, án þer.s
þó að vélin þurfi að vera óhreyfan-
leg.
Framleiðandi er Rudolf Schrepfer,
Kúsnacht-Zúrich, Sviss.
Ur ,,Tcchniquc Suissc" no. i, 1962.
I.T.D. nr. 0369
Tímarofi
Þessi rofi fyrir tímastillingu er
gerður til notkunar á heimilistæki.
Snúran með tímarofanum er sett inn
eins og millileiðsla milli tækisins og
höfuðinnstungunnar. Þannig er hægt,
á fljótan og auðveldan hátt, að
tengja tímastilli við t. d. hitaplötur,
ljósalampa, loftræsiþyrlur o. fl.
Hinn virki tími, sem óskað er eft-
ir, er stilltur með kringlóttri stilli-
skífu, sem mörkuð er frá 0-60 mín.
(með einnar mínútu bili). Skífunni
má snúa til hvorrar handar, sem
óskað er. Sé hún færð á o, er
straumur rofinn. Tími sá, sem óskað
er eftir, er mældur með einfaldri
fjaðurklukku, sem undin er upp um
leið og skífunni er snúið. Straum-
rofsstyrkur getur náð allt að 10 A
144
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA