Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Síða 17
X ímarofi.
við 220 V riðstraum með tíðni frá
40-60 riðum á sek.
Notkun rofans getur verið fjöl-
þætt og náð t. d. til lækningatækja
og áhalda á rannsóknarstofum.
Framleiðandi er Zeitschalter- und
Apparatebau E. Holz, Urlashöhe 10,
Lauf/Pegnitz, Þýzkalandi.
I.T.D. nr. 0352
Áhaldavagn
Þessi burðarmikli áhaldavagn er
hið mesta þarfaþing á verkstæðum.
Hann er til þess ætlaður að flytja
áhöld og ýmiskonar verkfærabúnað
beint að verkefninu.
Hann er búinn fjórum áhalda-
skúffum, sem hægt er að draga út
eftir þörfum, og einu hólfi, sem hægt
er að læsa. Vegna völtruhjólanna er
hann sérlcga vel nothæfur í þrengsl-
Ahaldavagn.
um, og þungadreifingin er með þeim
hætti, að jafnvel með fullhlöðnum
og útdregnum áhaldaskúffum gctv::
vagninn ekki endasteypzt eða misst
jafnvægið við venjulega notkun.
Framleiðandi er W. Pinder & Son
Ltd., King Street, Peterborough,
Bretlandi.
Úr „Power & Work Engineering“, jan. 1962.
I.T.D. nr. 0375
KVÆÐI
flutt ó skemmtikvöldi Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík föstudaginn 2. febrúar 1962
(Lag: Ég man þá tíð.)
I glœstum sal á góðra vina fund
er gott að koma’ og hreyfa nijúka strengi.
Og hér er bjart sem brosi’ um morgunstund
hin blíða sól á Ijúfu œskuvengi.
Við kottnmi saman kát að rninnast þess,
að kveikt var líf í þessutn félagsanda,
og handverkstnönnum meiri veittur sess,
í tnenning, frama - hœrra leyft að standa.
Þess ber að minnast áunnið sem er,
bvað eykur þroska huga jafnt sem handa.
Það gerir heiminn betri í sjálfum sér,
ef sveinar glaðir störfin betur vanda.
Já, minnumst þcss, að margt er liðið stríð,
er margar hendur gengu fast að verki,
en skylt er oss að þakka liðnutn lýð
og láta aldrei niðtir falla tnerki.
Og á þvi byggist framtíð okkar fremst,
að fagmenn séutn, meistarar í verki,
en þá er víst, að áfram alltaf kemst
og okkur tengir félagsandinn sterki.
Og djarfir standa allir skulutn enn
sem einn á verði hver um annars sóma.
í framtakssemi frjálsir séu menn,
þá félagslífið stendur allt tneð blóma.
LEIFUR HALLDÖRSSON
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
145