Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Blaðsíða 22
Ég tók þátt í Iðnsýningu árið 1911 og fékk verð-
launaskjal fyrir tekönnu.
Býr þú enn á Laufásveginum?
Já, ég hef búið þar lengst af, og nú hjá dóttur minni
Dórotheu. Konu mína Guðrúnu Bjarnadóttur, sem ætt-
uð var frá Hörgsdal á Síðu, missti ég árið 1947. Við
áttum 2 börn, Dórotheu og Agnar.
Hvenær tók Agnar við stjórn smiðjunnar?
Agnar sonur minn varð meðeigandi í smiðjunni 1933,
og nokkrum árum seinna seldi ég honum allt fyrirtæk-
ið. Hann hefur nú reist glæsilega byggingu við Sigtún
7, þar sem hann rekur smiðjuna ásamt sonum sínum
Eiði og Guðmundi Boga. Hann hefur fest kaup á ný-
t 'zku vélum og aukið atvinnumöguleikana með ýmsum
nýjungum.
Og hvað finnst þér nú athyglisverðast, þegar þú lít-
ur yfir farinn veg?
Það eru tvímælalaust hin miklu umskipti, sem hér
hafa orðið í atvinnumálum og öllum aðbúnaði. Fyrir
og um aldamótin er mér minnistætt, hve kuldinn og
ljósleysið var óþægilegt á vinnustöðunum. Auk þess
var þá mikið atvinnuleysi, enda komst umsetningin hjá
mér allt niður í 40.00 kr. á mánuði á veturna.
B.H.
IÐNAÐARMENN
FRAMLEIÐUM:
MÁTSTEINA í alla útveggi - MILLIVEGGJAHOLSTEINA - MILLIVEGGJAPLÖTUR -
LOFTSTEINA - EINANGRUNARPLÖTUR - MASSIVAR BURÐARHELLUR og fl.
Framleitt úr beztu og viðurkenndustu fáanlegum hráefnum og eftir verkfræðilegum fyrirsögnum og
útreikningum. — Framleiðslueiningar eru staðlaðar. — Greiðsluskilmálar.
SEL JUM:
VIKURMÖL úr námum okkar hjá Snæfellsjökli til einangrunar í gólf og loft — RAUÐAMÖL úr nám-
um okkar í Grímsnesi (Seyðishólum) malaða og ómalaða — VIKURSAND til límingar og einangr-
unar úr Þjórsárdal - PUSSNINGASAND - SEMENT - STEYPUSAND - SEMENTLITI - og fl.
- Einnig VARMAPLASTEINANGRUN.
INNFLUTNINGUR:
HARÐVIÐUR - HÚSGAGNASPÓNN - BIRKI - BRENNI - MAHOGANY - AFRIKUTEAK
HÚSGAGNAPLÖTUR - FURUKROSSVIÐUR - BIRKIKROSSVIDUR - BRENNIKROSSVIÐ-
UR - GABOON - HÖRPLÖTUR - MÚRHÚÐUNARNET - SÆNSKUR SANDBORINN ÞAK-
PAPPI í stað járns á þök - AMERISKAR CELOTEX HLJÓÐEINANGRUNARPLÖTUR og LÍM
DANSKAR EXPANKO KORKGÓLFELÍSAR og LÍM og II. byggingavörur.
f
JON LOFTSSON HRINGBRAUT 121.SÍMI 1 0 6 0 0. BOX 907
HÚSBYGGJENDUR
GLER & LISTAR HF
Höfum rúðugler í 2—3—4—5—6 mm
þykktum.
Hamrað gler (margar gerðir).
Sandblásum gler (höfum sýnishorn).
Undirburður og saumur.
GIu'><’a]istar — málaðir og ómálaðir.
Polytex plastmálning.
GLER & LISTAR HF
LAUGAVECI I 7 S . S í M I 3 G G 4 5
150
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA