Fréttablaðið - 16.11.2009, Page 2
2 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
Hörður, ertu búinn að fá þig
fullsaddan af þessum umræð-
um?
„Já, ég er orðinn mjög uppþemdur.“
Í viðtali við Morgunblaðið í síðustu viku
sagði Hörður Magnússon íþróttafrétta-
maður að engu líkara væri en Eiður
Smári Guðjohnsen væri orðinn saddur á
knattspyrnu og við það að hætta. Eiður
Smári skaut á móti í Fréttablaðinu að eini
maðurinn sem liti út fyrir að vera saddur
væri Hörður sjálfur.
STJÓRNMÁL Einar Skúlason, skrif-
stofustjóri þingflokks Framsókn-
arflokksins, hefur tilkynnt um
framboð sitt í
efsta sætið á
lista flokksins
fyrir komandi
borgarstjórn-
arkosningar.
Hann fer fram
gegn Óskari
Bergssyni,
sitjandi odd-
vita flokksins í
borginni og formanni borgarráðs.
Einar er 38 ára stjórnmálafræð-
ingur og var framkvæmdastjóri
Alþjóðahúss áður en hann tók við
starfi sínu hjá þingflokki Fram-
sóknar. Hann sagði starfi sínu hjá
þingflokknum lausu í fyrradag,
eftir að hann tók ákvörðun um
prófkjörsslaginn. Prófkjörið fer
fram í lok mánaðar. - sh
Oddvitaslagur hjá Framsókn:
Einar fer fram
gegn Óskari
EINAR SKÚLASON
SAMFÉLAGSMÁL Barnasáttmáli
Sameinuðu þjóðanna, útbreidd-
asti mannréttindasáttmáli heims,
verður 20 ára föstudaginn 20.
nóvember. Í tilefni þess hafa ung-
mennaráð umboðsmanns barna,
Barnaheilla og Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNIC-
EF) sameinað krafta sína en þau
munu halda mikilvægi sáttmál-
ans á lofti með fjölbreyttum hætti
í afmælisvikunni. Hún hófst í gær
og stendur fram á föstudag.
Meðlimir ungmennaráðanna
hófu afmælisvikuna á því að
dreifa upplýsingarbæklingum
um Barnasáttmálann til gesta
og gangandi í Kringlunni í gær
og ræða um sáttmálann við fróð-
leiksfúsa, en í Barnasáttmálanum
er einmitt kveðið á um að hann
skuli kynna með virkum hætti. Í
vikunni munu ungmennin síðan
koma víða við en ásamt því að
vekja almenna athygli á Barna-
sáttmálanum munu þau funda
með þingmönnum, skrifa grein-
ar í Fréttablaðið og afhenda ráða-
mönnum sameiginlega ályktun
sína um hagsmuni barna og ungl-
inga.
Enginn mannréttindasamning-
ur hefur verið fullgiltur af jafn
mörgum ríkjum og Barnasátt-
máli Sameinuðu þjóðanna. Öll
aðildarríki Sameinuðu þjóðanna,
fyrir utan tvö, hafa fullgilt samn-
inginn.
Hérlendis hefur Barnasáttmál-
inn stuðlað að ýmsum mikilvæg-
um réttindabótum fyrir börn frá
því að Ísland fullgilti hann árið
1992.
Frumvarp um lögfestingu sátt-
málann í heild sinni verður svo
lagt fyrir Alþingi í vetur. -ve
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er tuttugu ára:
Kynntur með virkum hætti
BÖRN Barnasáttmálinn er tuttugu ára
um þessar mundir. MYND/ÚR SAFNI
Benedikt Davíðsson, fyrr-
verandi forseti Alþýðusam-
bands Íslands, er látinn, 82
ára að aldri. Hann var forseti
ASÍ á árun-
um 1992 til
1996 og lét
að sér kveða
í verkalýðs-
baráttunni
um árabil.
Eitt helsta
baráttumál
hans var
uppbygging
lífeyrissjóðakerfisins. Bene-
dikt fæddist á Patreksfirði
árið 1927. Hann stundaði sjó-
mennsku framan af en nam
síðar trésmíði. Hann starfaði
hjá Trésmíðafélagi Reykjavík-
ur í áratugi og var formaður
félagsins um þriggja ár skeið.
Benedikt var tvíkvæntur, átti
sex börn og einn stjúpson.
Benedikt Dav-
íðsson látinn
MENNTUN Menntaráð Reykjavíkur
hefur skipað starfshóp um náms-
mat í grunnskólum borgarinn-
ar. Meðal þess sem hópurinn á að
skoða er hvort rétt sé að samræmd
próf verði aftur haldin að vori, en
ekki hausti eins og nú er.
Fyrirkomulagi samræmdra prófa
var breytt árið 2008 og þau hald-
in að hausti, í upphafi 10. bekkjar.
Áður voru prófin að vori, en nú er
gefin skólaeinkunn upp úr grunn-
skólanum.
Kjartan Magnússon, formaður
ráðsins, segir það sína skoðun að
það hafi verið mistök að færa próf-
in að hausti. Breyta hafi þurft fyr-
irkomulagi prófanna frá því sem
var, en rétt sé að halda þau að vori
í lok skólans.
„Við í meirihlutanum gagnrýnd-
um þetta og fannst samræmdu
prófin skipta máli. Jafnvel þó þau
væru ekki notuð til að meta inn í
framhaldsskólana þá skipti máli
að sjá svart á hvítu hvernig nem-
endur stæðu.“ Kjartan segist hafa
orðið var við mikla gagnrýni í skól-
unum, bæði hjá nemendum og kenn-
urum.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra segir þetta koma
sér á óvart. Málið hafi verið unnið
í mikilli sátt í tíð forvera hennar,
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
Katrín segir að skólastarf hafi mið-
ast um of að samræmdu prófunum;
þær greinar sem ekki hafi verið
prófað í hafi orðið útundan. Kerfið
nú sé í takt við það sem Finnar hafi
notað með góðum árangri.
Nokkur umræða var um það að
einkunnir myndu hækka þegar
samræmdu prófin væru ekki leng-
ur til staðar. Katrín segir að það
hafi ekki verið kannað til hlítar, en
stikkprufur sýni að einkunnir hafi
ekki bólgnað. Áfram verði þó fylgst
með þróuninni.
Áheyrnarfulltrúi Skólastjórafé-
lags Reykjavíkur óskaði eftir því að
eiga fulltrúa í starfshópnum, ásamt
fulltrúa kennara. Meirihluti Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks vís-
aði þeirri tillögu frá, gegn atkvæð-
um minnihlutans. Ekki náðist í
fulltrúa skólastjórafélagsins við
vinnslu fréttarinnar.
Kjartan segir að ákveðið hafi
verið að hafa starfshópinn aðeins
þriggja manna og pólitískt skip-
aðan, það væri þá hægt að kalla
eftir sjónarmiðum fleiri inn í hóp-
inn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, full-
trúi Framsóknarflokks, gegnir for-
mennsku í starfshópnum.
Menntamálaráðherra fundar á
næstu dögum með skólastjórum
grunn- og framhaldsskóla. Þar
verða skilin á milli skólastiganna
rædd sérstaklega.
kolbeinn@frettabladid.is
Vill samræmd próf
upp úr grunnskóla
Formaður menntaráðs Reykjavíkur vill samræmd próf að vori á ný og prófa
upp úr grunnskóla. Kemur á óvart segir menntamálaráðherra. Starfshópur hef-
ur verið skipaður um málið. Fulltrúi skólastjóra vildi sæti í honum en fær ekki.
PRÓF Nemendur í Hlíðaskóla í samræmdu prófi. Meirihlutinn í Reykjavík hefur
ákveðið að kanna kosti þess að taka upp samræmd próf upp úr grunnskólum að
nýju. Menntamálráðherra undrast það, mikil sátt hafi ríkt um breytingarnar sem
gerðar voru í tíð forvera hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJARTAN
MAGNÚSSON
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Nýr formaður Heimssýnar
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður
Vinstri grænna, var kosinn nýr formað-
ur Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæð-
issinna í Evrópumálum, í gær. Ragnar
Arnalds lætur af formennsku eftir sjö
ára setu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir
var kjörin varaformaður félagsins.
FÉLAGSSTARF
SLYS Nemendum við Menntaskólann
í Hamrahlíð var brugðið á fimmtu-
dag þegar uppátæki þeirra til fjár-
söfnunar fyrir Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans leiddi til
þess að ungur sagnfræðikennari,
Karl Jóhann Garðarsson, þurfti að
leggjast inn á gjörgæsludeild með
rofið milta.
Nemendafélag skólans stóð fyrir
söfnuninni í síðustu viku og var fé
heitið á ýmis uppátæki, til dæmis
reiptog við rektor. „Og þeir voru
þrír sem höfðu mig,“ segir Lárus
H. Bjarnason rektor. Þá ákvað Unn-
steinn Manuel Stefánsson, söngvari
hljómsveitarinnar Retro Stefson, að
aflita á sér hárið ef 25 þúsund krón-
ur myndu safnast fyrir því, og Gettu
betur-kempan Ingi Þór Óskarsson
hét því að bjóða spyrlinum Evu
Maríu Jónsdóttur á stefnumót ef 12
þúsund krónur myndu safnast.
Síðast uppátækjanna var að Karl
Jóhann, sem er þrautþjálfaður í bar-
dagalistinni taekwondo, klæddi sig
í þartilgerða brynju með aflskynj-
urum og bauð nemendum síðan að
sparka í sig sem mest þeir máttu
gegn 500 króna greiðslu. Þeir sem
spörkuðu fastast hlytu sigur og
ynnu til verðlauna.
Í fyrstu benti allt til þess að við-
burðurinn hefði heppnast mjög vel.
Þegar líða tók á daginn fór Karl hins
vegar að kenna sér meins í síðunni
og var í kjölfarið fluttur á spítala
með innvortis blæðingar úr milta.
Fréttablaðið náði tali af Karli á
spítalanum í gær. Hann sagði að sér
liði ágætlega og væri að braggast
en baðst að öðru leyti undan við-
tali.
„Þetta kom öllum á óvart og
okkur þótti þetta mjög leiðinlegt
í nemendastjórninni að þessi ann-
ars vel heppnaða vika myndi enda
svona leiðinlega,“ segir Lárus Jón
Björnsson, formaður nemendafé-
lagsins. Stjórnin heimsótti Karl á
laugardag og segir Lárus að meiðsl
hans séu töluvert minni en óttast
var í fyrstu.
Alls safnaðist tæplega hálf millj-
ón króna fyrir BUGL á þessum fjór-
um dögum. - sh
Nemendur í MH söfnuðu tæplega hálfri milljón fyrir BUGL, en söfnunin var ekki án fórna:
Milta sögukennara rofnaði í fjársöfnun
AFRAKSTUR ERFIÐISINS Hér sjást Lárus
Jón og Kristín Sveinsdóttir afhenda
starfsmönnum BUGL ávísun upp á 350
þúsund krónur. Síðan hafa tugir þús-
unda bæst við.
VIÐSKIPTI Hópur fjárfesta sem
hyggst bjóða í sextíu prósenta
hlut Kaup-
þings í Högum
er kominn með
nægt fjármagn
til að leggja
fram tilboð.
Þetta sagði einn
þeirra, Guð-
mundur Frankl-
ín Jónsson, við
Stöð 2 í gær.
Í hópnum eru
um hundrað fjársterkir aðilar
sem Guðmundur hefur ekki vilj-
að nafngreina. Á vefnum thjod-
arhagur.is hafa á annað þúsund
manns skráð sig sem mögulega
þátttakendur í verkefninu. Guð-
mundur segist meta virði hlutar-
ins á 10 til 15 milljarða. - sh
Fjárfestar safna fyrir Högum:
Hafa nægt fé til
að bjóða í Haga
GUÐMUNDUR
FRANKLÍN JÓNSSON
Bannar myndir af pyntingum
Robert Gates, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hefur bannað mynd-
birtingar af misþyrmingum banda-
rískra hermanna á erlendum föngum.
Hæstiréttur staðfesti ákvörðunina á
föstudag. Bannið varðar 40 ljósmyndir
sem verið er að skoða við rannsókn
á meintum misþyrmingum á föngum
erlendis, frá 11. september 2001 til 22.
janúar 2009. Talsmaður ráðuneytisins
segir birtingu myndanna geta stofnað
lífi hermanna í hættu. Mannréttinda-
samtök mótmæla ákvörðuninni.
BANDARÍKIN
SPURNING DAGSINS