Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 4
4 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
UMHVERFISMÁL Náttúrufræðistofn-
un Íslands hefur lokið rannsókn-
um á náttúrufari og verndargildi
átján háhitasvæða, sem hófust
árið 2005. Þetta er í fyrsta skipti
að aflað er með skipulegum hætti
upplýsinga um náttúrufar háhita-
svæða til að meta sérstöðu þeirra
í íslenskri náttúru og náttúru-
farsleg verðmæti.
Í matinu er Torfajökulssvæð-
ið talið hafa hæst verndargildi,
en mörg önnur svæði hafa hátt
verndargildi á heimsvísu. Þeirra
á meðal er Reykjanes, Græn dal-
ur, Geysir, Torfajökull/Land-
mannalaugar, Askja, Leirhnjúkur
og Gjástykki og Brennisteins-
fjöll. Ljóst er að lítill munur er
á verndargildi margra háhita-
svæða landsins en þau eru öll
fágæt á lands- og heimsvísu að
mati Náttúrufræðistofnunar. - shá
Háhitasvæði landsins metin:
Verndargildi 18
svæða ótvírætt
FERÐAÞJÓNUSTA Ferðamálasamtök
Íslands mótmæla hugmyndum
um hækkun á virðisaukaskatti
á gistingu og veitingar, eins og
ríkisstjórnir áformar. Samtök-
in segja að slíkar hækkanir
stórskaði þá ímynd sem skap-
ast hefur undanfarið ár meðal
erlendra ferðaskipuleggjenda að
verðlag á Íslandi sé viðráðanlegt.
„Sóknarfærin eru mikil í þess-
ari grein og gjaldeyristekjurn-
ar skila sér fljótt í kassann, auk
þess að styrkja atvinnulíf um allt
land. Það er með öllu óásættan-
legt að demba á slíkum hækkum
eftir að búið er að semja um verð
á þjónustu og auglýsa það“, segir
í tilkynningu frá stjórn samtak-
anna. Komuskatti í Leifsstöð er
sömuleiðis mótmælt og hug-
myndin sögð afleit. - shá
Ferðamálasamtökin álykta:
Skattahækkun
skaðar ímynd
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
17°
13°
11°
14°
13°
14°
10°
10°
23°
14°
21°
16°
27°
5°
16°
18°
9°
Á MORGUN
Strekkingur NV og SA-
lands
MIÐVIKUDAGUR
Vaxandi vindur með
suðurströndinni
1
-4
-2
-1
-1
1 1
-2
-2
-2
1
0
2
5
3
5
2
2
1
-4
9
10
12
10 8
14
7
15
7
5
9
VÆGT FROST
Það frystir víða
á landinu í dag
eða á morgun en
ekki verður þetta
langur frostakafl i
því seinni hluta vik-
unnar má búast við
að hláni að nýju.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
Bílvelta við Páfastaði
Bílvelta varð á Sauðarkróksbraut
við Páfastaði í gær. Bíllinn er ónýtur
en kona og farþegi sluppu ómeidd.
Vegir á svæðinu eru almennt auðir
en mikið er um hálkubletti sem fólk
keyrir inn í og sér lögreglan á Sauðár-
króki ástæðu til að vara fólk við.
LÖGREGLUMÁL
Auka verður þorskveiði
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar skorar á
sjávarútvegs- og landbúnðarráðherra,
að auka nú þegar aflamark í þorski
um 40 þúsund tonn og ýsu um 10
þúsund tonn, enda séu fyrir því vist-
fræðileg rök. „Það er álit sjómanna
allt í kring um landið að auknar veið-
ar í þessum mæli skaði ekki umrædd-
ar tegundir,“ segir í ályktuninni.
SJÁVARÚTVEGUR
FÉLAGSMÁL Ríkjum sem sótt hafa
um aðild að Evrópusambandinu
(ESB) kann að standa til boða fjár-
hagsstuðningur til að fást við vax-
andi atvinnuleysi.
Árni Páll Árnason félagsmála-
ráðherra segir að Vladimír Spidla,
framkvæmdastjóri atvinnu- og
félagsmála ESB, hafi boðið fram
aðstoð sambandsins á fundi sínum
með norrænum vinnumálaráð-
herrum og fulltrúum þeirra fyrir
helgi.
„Hann bauð bæði ráðgjöf til
okkar og aðstoð við samhæfingu
aðgerða, því við erum náttúrulega
að fást við að atvinnuleysi fari
hér úr tæpum tveimur prósent-
um langleiðina í tíu prósent á einu
ári,“ segir Árni Páll. „Eins bauð
hann fram aðstoð við uppbygg-
ingu á aðferðafræðinni við að taka
á vandanum og mögulega væri líka
í boði fjárhagsstuðningur við slíka
uppbyggingu fyrir umsóknarlönd.
Við munum auðvitað kanna það.“
Árni Páll segir að á fundi ráð-
herranna í gær hafi verið farið yfir
helstu mál. „Fyrirferðarmest var
staðan í atvinnuleysi ungs fólks,“
segir hann, en bregðast verði við
vaxandi tilhneigingu til þess að
ungt fólk verði utanveltu og finni
sig hvorki á atvinnumarkaði né í
skólakerfinu. Hann segir að fljót-
lega verði kynnt frekari úrræði í
þessum efnum, en þegar hafi verið
tekið upp náið samráð milli ráðu-
neytis hans og menntamálaráðu-
neytisins. Margt bendi hins vegar
til að skólakerfið og vinnumarkað-
ur vinni hér ekki nógu vel saman
og bendir hann á að hér á landi
séu nú þegar um 3.000 ungmenni í
þeirri stöðu að hafa verið án vinnu
í lengri tíma.
Árni Páll boðaði til fundar-
ins, en hann gegnir formennsku
í Norrænu ráðherranefndinni um
atvinnumál. Auk Árna Páls sátu
fundinn ráðherrarnir Anni Sinn-
emäki frá Finnlandi, Sven Otto
Littorin frá Svíþjóð, Johan Dahl
frá Færeyjum og Jan-Erik Matts-
son frá Álandseyjum. Fulltrúi
Danmerkur var Bo Smith, ráðu-
neytisstjóri, fulltrúi Noregs var
Jan-Erik Støstad, ráðuneytisstjóri
og fulltrúi Grænlands var Avva
Mathiesen. olikr@frettabladid.is
Stuðningur í boði
fyrir umsóknarlönd
Evrópusambandið býður aðstoð í formi ráðgjafar og aðstoðar við samhæfingu
aðgerða til að bregðast við stórauknu atvinnuleysi hér. Félagsmálaráðherra seg-
ir fjárhagsstuðning mögulega í boði fyrir umsóknarríki ESB vegna vandans.
VINNUMÁLARÁÐHERRAR Árlegur fundur norrænna vinnumálaráðherra var haldinn í Reykjavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VERSLUN Áætlað er að um fimm þúsund manns
hafi lagt leið sína í Kost, nýja verslun Jóns
Geralds Sullenberger, um helgina.
Verslunin opnaði á laugardag. Fljótlega varð
þó vart við tæknilega örðugleika og fundust
sumar vörurnar ekki í tölvukerfinu. Af þeim
sökum mynduðust langar biðraðir og gátu við-
skiptavinirnir ekki keypt allt sem þeir ætluðu.
„Við höfðum ekkert auglýst og grunaði ekki
að fjöldinn yrði svona mikill. Fólk sýndi þó
ótrúlega þolinmæði og er ég því afskaplega
þakklátur enda er það ekki sjálfsagt,“ segir
Jón Gerald sem stóð í dyragættinni og tók
á móti viðskiptavinunum með handabandi.
Honum finnst vinalegt viðmót skipta miklu
enda eyði Íslendingar stórum hluta af launun-
um sínum í mat. „Við verðum því að hugsa vel
um kúnnana okkar.“
Jón Gerald vonast til þess að tæknilegu erf-
iðleikarnir séu að mestu að baki en fjölskyld-
ur og vinir starfsfólks verslunarinnar komu og
hjálpuðu til við að skrá vörur, sem virtust hafa
dottið út úr tölvukerfinu, aftur inn.
Aðspurður hvort hann hafi farið of hratt af
stað segist Jón ekki hafa vitað á hverju hann
ætti von og að þetta hafi verið lærdómsrík
helgi. „Ég hef aldrei opnað búð áður en vona að
þetta verði allt orðið smurt innan skamms.“
Helstu fyrirmyndir Kosts eru erlendar
verslunarkeðjur eins og Costco, Aldi og Sam‘s
Club en þær eiga það sameiginlegt að bjóða
upp á vörur í stórum pakkningum.
Í Kosti, sem er við Dalveg í Kópavogi, verð-
ur þó einnig boðið upp á hefðbundnar stærðir
og innlendar framleiðsluvörur.
-ve
Nóg að gera í nýrri lágvöruverðsverslun Jóns Geralds Sullenberger að Dalvegi 10 :
Fimm þúsund lögðu leið sína í Kost
YS OG ÞYS Gríðarlegur fjöldi lagði leið sína í verslun
Jóns Geralds Sullenberg um helgina. Eigandinn er afar
þakklátur fyrir móttökunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BURMA Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, hvatti í gær til
þess að Aung San Suu Kyi, leið-
toga stjórnarandstöðunnar í
Burma, yrði sleppt úr haldi. Hún
hefur setið í
stofufangelsi
í fjórtán ár af
síðustu tut-
tugu.
Obama hitti
Thein Sein,
forsetisráð-
herra herfor-
ingjastjórn-
arinnar sem
verið hefur við
völd í Burma síðastliðin 47 ár, á
fundi Efnahagsamtaka Asíu- og
Kyrrahafsríkja í Singapúr í gær.
Talsmaður Hvíta hússins
sagði að Obama hefði komið
skilaboðunum beint til forsætis-
ráðherrans.
Suu Kyi hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1991. - kg
Obama hitti Thein Sein:
Vill að Suu-Kyi
verði sleppt
AUNG SAN SUU KYI
GENGIÐ 13.11.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
239,4267
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,73 125,33
208,06 209,08
185,48 186,52
24,925 25,071
22,155 22,285
18,119 18,225
1,388 1,3962
199,13 200,31
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR