Fréttablaðið - 16.11.2009, Qupperneq 6
6 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
Bílaapótek Hæðarsmára
Mjódd • Álftamýri
MÁLAVEXTIR EFTIR KATE ATKINSON
Á heitu sumri í Cambridge
rekur á fjörur Jacksons Brodie
misgömul og að því er virðist
óskyld mál, en alls staðar koma
týndar stúlkur við sögu.
Þýðandi: Elísa Björg Þorsteinsdóttir
„Málavextir er dýpri oglíflegri en venjulegar spennusögur og meira spennandi en hefðbundnar skáldsögur.“
– New York Times
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip.
Tryggðu þér eintak í tíma.
Ætlar þú að taka þátt í greiðslu-
verkfalli Hagsmunasamtaka
heimilanna?
JÁ 23,9%
NEI 76,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Veiddir þú lax í sumar?
Segðu skoðun þína á visir.is
LÖGREGLUMÁL Vinnuslys varð í
Bolungarvík laust eftir klukk-
an sex á laugardag þegar maður
sem vinnur á Steypustöð BM-
Vallár, sem fóðrar steypu í Bol-
ungarvíkurgöngin, var að brjóta
steypu úr steypuvél.
Vélin fór einhverra hluta vegna
í gang og er maðurinn ökklabrot-
inn á báðum fótum.
Maðurinn var fluttur til
aðhlynningar á sjúkrahúsið á Ísa-
firði en þaðan með sjúkraflugi til
Reykjavíkur.
Maðurinn var einn við störf
og er málið til rannsóknar hjá
Vinnueftirlitinu og lögreglunni á
Vestfjörðum. -ve
Vinnuslys í Bolungarvík
Ökklabrotnaði
í steypuvél
UMHVERFISMÁL Líffræðingarnir
Menja von Schmalensee og Róbert
A. Stefánsson hjá Náttúrustofu
Vesturlands hafa sett fram hug-
mynd um umhverfisvottað Ísland.
Telja þau hugmyndina raunhæfa
leið til að byggja upp ímynd lands-
ins og styrkja á sama tíma ferða-
þjónustu, útflutn-
ingsgreinar
og sjálfbæra
þróun. Svandísi
Svavarsdóttir
umhverfisráð-
herra lýst vel á
hugmyndina.
Menja útskýr-
ir að hugmyndin
hafi sprottið frá
því þegar unnið
var að umhverfisvottun Snæfells-
ness, sem svæðið hlaut árið 2008.
„Eftir Umhverfisþing umhverfis-
ráðuneytisins á dögunum fannst
okkur rétti tíminn til að reyna að
ýta hugmyndinni úr vör. Þar voru
skilaboð fyrirlesara og þinggesta
mjög skýr á þann veg að Íslend-
ingar ættu að reyna að finna nýjar
og sjálfbærar leiðir til að byggja
upp landið að nýju í kjölfar banka-
hrunsins.“
Hugmyndin snýst um að
landið allt yrði
umhverfisvottað
á fjórum árum
með því að votta
starfsemi allra
sveitarfélaga
landsins. Menja
s e g i r h u g -
myndina raun-
hæfa enda hafi
þessi leið verið
farin á Snæ-
fellsnesi með
góðum árangri. „Ísland yrði fyrsta
umhverfisvottaða landið í heimin-
um, sem markaði því sérstöðu sem
á sér engin fordæmi. Vottun Íslands
fæli í sér gríðarleg tækifæri við
uppbyggingu ímyndar landsins
og myndi nýtast við atvinnuþró-
un á margvíslegan hátt. Sérstak-
lega gildir það fyrir ferðaþjónustu
og ýmsar framleiðslugreinar sem
mjög er horft til“, segir Menja.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra segir hugmyndina rót-
tæka en hún sé engu að síður raun-
hæf. „Þessi hugmynd er mjög vel
rökstudd og byggir á Green Globe-
vottun á Snæfellsnesi. Hugmyndin
er framkvæmanleg, að mínu mati.
Ég er sammála þeim um hvaða
ávinning þetta hefði fyrir Ísland
h v a ð v a r ð -
ar efnahag og
umhverfi. Mér
finnst sjálfsagt,
hjá ábyrgum
stjórnvöldum í
leit að lausnum,
að líta á þetta
sem kost í stöð-
unni.“
M e nj a o g
Róbert láta ekki
nægja að kasta fram hugmyndinni
heldur hafa þau gert kostnaðar-
áætlun fyrir verkefnið. Þau telja
að beinn kostnaður yrði um átta-
tíu milljónir króna á ári sem þau
leggja til að ríkið greiði. Óbeinn
kostnaður, eins og vinna sveitar-
stjórnarfólks, yrði sveitarfélag-
anna að greiða. svavar@frettabladid.is
Vilja að Ísland allt
fái umhverfisvottun
Þeirri hugmynd er varpað fram að umhverfisvotta Ísland. Slík vottun ætti sér
enga hliðstæðu í heiminum og myndi nýtast við uppbyggingu ímyndar landsins
og við atvinnuþróun. „Róttæk en raunhæf hugmynd,“ segir umhverfisráðherra.
MENJA VON
SHAMALENSEE
RÓBERT A.
STEFÁNSSON
MÝVATN Engum dylst að íslensk náttúra er einstök. Umhverfisvottun landsins gæfi mikil tækifæri til kynningar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi hér
á landi hefur aukist nokkuð milli
mánaða. Skráð atvinnuleysi í okt-
óber var 7,6 prósent sem jafngildir
því að 12.682 manns hafi að meðal-
tali verið án atvinnu í mánuðinum,
537 fleiri en í mánuðinum á undan.
Horfur eru á að ástandið eigi eftir að
versna enn um sinn og að atvinnu-
leysi nái hámarki upp úr áramótum,
að mati Vinnumálastofnunar.
Alls voru 14.369 manns atvinnu-
lausir í lok október, þar af 11.511
sem voru atvinnulausir að fullu,
2.514 sem voru í hlutastarfi og 344
sem ekki óskuðu eftir fullu starfi.
Fyrst eftir bankahrunið í fyrra
var atvinnuleysi mun meira meðal
karla en kvenna en verulega hefur
nú dregið úr þeim mun. Þá hefur
atvinnuleysi á þessu ári verið tals-
vert meira á höfuðborgarsvæðinu
en landsbyggðinni, mest hefur það
þó verið á Suðurnesjum.
Atvinnuleysi er langmest í hópi
þeirra sem aðeins hafa grunn-
skólamenntun, rúmlega helmingur
atvinnulausra karla og kvenna eru
í þessum hópi. Tæplega helmingur
atvinnulausra er yngri en 35 ára,
eða 48 prósent og um fimmtungur
er undir 25 ára aldri.
Alls voru 1.764 erlendir ríkisborg-
arar án atvinnu í lok október, lang-
flestir voru starfandi í byggingar-
iðnaði eða 647. - shá
Skráð atvinnuleysi október
2008 - október 2009
1,
9
3,
3
4,
8
6,
6
8,
2 8
,9 9,
1
8,
7
8,
1 8
7,
7
7,
2 7,
6
10
8
6
4
2
0
ok
t
nó
v
de
s
ja
n
fe
b
m
ar ap
r
m
aí
jú
n jú
l
ág
ú
se
p
ok
t
%
Vinnumálastofnun telur að atvinnuleysi nái hámarki um áramótin:
Atvinnuleysi eykst að nýju
ALÞJÓÐAMÁL Barack Obama
og Dimitrí Medvedev, forset-
ar Bandaríkjanna og Rússlands,
sögðu í gær að tíminn væri við
það renna út fyrir Íransstjórn að
bregðast við sáttatillögu Alþjóða
kjarnorkumálastofnunarinnar
í kjarnorkudeilunni. Obama og
Medvedev hittust á fundi Efna-
hagssamtaka Asíu- og Kyrrahafs-
ríkja í Singapúr.
Alþjóðasamfélagið hefur reynt
að sannfæra írönsk stjórnvöld
um að hætta að auðga úran og
senda það í staðinn út úr landinu,
til Rússlands og Frakklands, til
auðgunar. Það lofar Írönum aukn-
um viðskiptum og bættum pólit-
ískum samskiptum verði þeir við
kröfunni.
Obama sagði í gær að þolinmæð-
in væri senn á þrotum gagnvart
Írönum, sem hafi dregið lappirn-
ar í málinu. Medvedev tók í sama
streng og sagði að mögulega þyrfti
að beita annars konar aðferðum til
að leysa deiluna, en útskýrði mál
sitt þó ekki frekar.
Stjórnvöld í Íran segjast ekki
munu svara tillögu Alþjóða kjarn-
orkumálastofnunarinnar fyrr en
full vissa sé fyrir því að viðsemj-
endur þeirra séu einlægir í loforð-
um sínum. Þau segja landið ein-
ungis ætla að nýta sér kjarnorku
í friðsamlegum tilgangi. Vestur-
veldin óttast að Íranir ætli sér að
smíða kjarnavopn. - kg
Forsetar Bandaríkjanna og Rússlands funduðu um kjarnorkumál Íran í gær:
Þolinmæðin senn á þrotum
FORSETAR Obama og Medvedev fund-
uðu í Singapúr í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN