Fréttablaðið - 16.11.2009, Page 30
16. NÓVEMBER 2009 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, var í síðustu viku notuð til
að koma byggingarefni út í Út-
skálasíki í Garði. Frá þessu er
sagt á vefsíðu Víkurfrétta www.
vf.is.
Hólminn í síkinu hefur sokk-
ið í áranna rás en fuglar hafa
oft hreiðrað um sig í honum. Nú
var orðið lítið um það þar sem
aðeins fáir steinar stóðu upp úr
miðju síkinu.
Vilhelm Guðmundsson í Garði
hefur haldið hólmanum við í ára-
tugi. Áður var auðveldara að
halda honum við því síkið botn-
fraus á veturna og þá var hægt
að fara út á það mitt með vöru-
bílshlass af byggingarefni. Þar
sem vatnið í síkinu er orðið mjög
salt leggur það ekki lengur. Því
varð að leita til Landhelgis-
gæslunnar um að flytja grjót í
hólmann.
Verkefnið í síðustu viku tók
um klukkustund, grjót var flutt í
fiskikörum sem héngu neðan úr
þyrlunni og tókst aðgerðin með
ágætum. Stefnt er að því að
móta hólmann enn frekar
næsta sumar en þá verð-
ur sett á hann torf.
Þyrla flytur
byggingarefni
Áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar á hús-
næðismarkaði á Norðurlöndum verða rædd á
norrænni ráðstefnu á Hótel Nordica 26. nóv-
ember.
Á ráðstefnunni, sem er öllum opin, verð-
ur einnig leitað svara við spurningum á borð
við: Hverjar eru afleiðingarnar fyrir velferð-
arkerfin? Hvað þýðir þessi óheillaþróun fyrir
afkomu heimilanna? Hver verður stefnumótun
landanna í húsnæðismálum í kjölfar breyttra
forsendna?
Eins og kunnugt er hefur byggingariðnaður
og húsnæðismarkaður á Norðurlöndum verið
í frjálsu falli á síðustu mánuðum sem aftur
hefur leitt til vaxandi atvinnuleysis og verð-
hruns á húsnæði. Á ráðstefnunni verður sjón-
um beint að afleiðingum þessa fyrir samfélag-
ið, húsnæðismarkaðinn og heimilin.
Gwilym Pryce, prófessor við háskólann í
Glasgow, mun flytja erindi um stöðu húsnæðis-
mála í Evrópu í dag og sérfræðingar frá öllum
norrænu ríkjunum munu fjalla um brýnustu
viðfangsefnin og tækifæri í stöðunni.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið skipu-
leggur ráðstefnuna í samstarfi við Íbúðalána-
sjóð og Samband íslenskra sveitarfélaga. Nán-
ari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni fel.
stjr.is/bolig.
Kreppan og húsnæðismálin
Ráðstefna um áhrif fjármálakreppunnar á húsnæðis-
markaðinn og heimilin verður haldin á Hótel Nordica 26.
nóvember.Endurskoðun aðalskipulags
Reykjavíkur stendur fyrir dyrum.
Í tengslum við það hafa verið hald-
in opin hús í hinum ýmsu hverfum
borgarinnar þar sem íbúar hafa
fengið að koma með hugmyndir
og væntingar gagnvart framtíðar-
skipulagi umhverfis síns.
Kjalnesingar lögðu sérstaka
áherslu á tvöföldun Vesturlands-
vegar, veglýsingu inn að Kollafirði
og göngu- og reiðstíga.
Íbúar Hlíðarhverfis vildu Miklu-
braut í stokk, aukið umferðarör-
yggi, bætt tengsl hverfisins við
Öskjuhlíð, göngubrú yfir Kringlu-
mýrarbraut við Suðurver og meira
aðlaðandi Miklatún.
Á fundi íbúa Háaleitis- og Bú-
staðahverfis kom í ljós að greiðari
samgöngur innan hverfis fyrir
gangandi og hjólandi vegfarendur
þóttu aðkallandi. Einnig að setja
Bústaða- og Réttarholtsveg í stokk
og göng og sundlaug við Seljaveg.
Öryggi hjólandi og gangandi
barna var íbúum Árbæjar ofarlega
í huga og breytt afmörkun hverfis-
ins þannig að Rauðavatn teljist til
Árbæjar.
Fleiri fundir hafa verið haldnir
og verða haldnir á næstunni.
Reykjavík í
brennidepli
Reykjavíkurbúar hafa fundað um hverfi
sín. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
100%
náttúrulegt
Náttúruleg leið til þyngdarstjórnunar
Sandra Fannarsdóttir 45 ára, fjárfesti í fyrsta Metasys pakkanum fyrir
4 árum. Hún heyrði frá góðri vinkonu að Metasys væri mjög orku-
gefandi og var það einmitt það sem Söndru vantaði og það heldur
betur. Á þessum tíma þjáðist hún af vefjagigt, háþrýstingi og
ýmsum kvillum og tók inn ótalmörg lyf, hafði gert árum saman og
var ekki tilbúin að gefast upp. Ekki aldeilis. „ Ég var orðin algjörlega
orkulaus og við það að bugast sem í huganum var eiginlega ekki í
boði, móðir í ábyrgðarstöðu og í fullu kennaranámi. Vinkona mín
sagði einnig að Metasys væri frábært fitubrennsluefni og fussaði ég
bara við því, þar sem ég taldi mig vera búin að prófa allt undir sólinni
í þeim efnum. Á þessum tímapunkti var ég 40 kílóum of þung og má
segja að það sé orsök og afleiðing af þeim kvillum sem ég hafði verið
að kljást við. Ég var fyrst og fremst á höttunum eftir ORKU, og auka-
kílóin voru aukaatriði! Eftir að ég byrjaði að taka inn Metasys fann ég
nánast strax fyrir frábærri orkubreytingu og var þá yfir mig ánægð
með áhrifin af Metasys. Eftir rúman mánuð uppgötvaði ég að ég var
nánast verkjalaus og hreinlega bara leið rosalega vel. Ég er geðgóð
að eðlisfari og viðurkenni að þegar mér leið sem verst var ég ekki
eins glöð og ánægð með lífið eins og mér er eiginlegt. Svo fóru
kílóin að fjúka sem var frábær bónus. Á þessum 4 árum hef ég
prófað að hætta á Metasys og lengst í tvo mánuði og satt að segja
ætla ég ekki að gera það aftur. Verkir og slen komu aftur og gamlir
kvillar fóru að gera vart við sig. Metasys eitt heldur mér heilbrigðri og
þarf ég engin lyf lengur. Á þessum 4 árum sem ég hef tekið inn
Metasys hefur þyngdin rokkað og náði mest af mér á tímabil 19 kg.
en ég vildi ná meiri árangri. Hóf samstarf við frábæran einkaþjálfara,
Nonna Hjaltalín, sem hefur hjálpað mér að ná settum markmiðum
og átta mig á því að ábyrgðin er í mínum höndum og ekkert gerist
nema að tekið sé á vandamálinu. Metasys er frábær hjálp en hreyf-
ing og hollt mataræði verður að fylgja með enda kemur það fram í
leiðbeiningunum sem fylgja Metasys. Ég mun aldrei þreytast að
mæla með Metasys ég er í langtum betra formi og léttari en þegar
ég var tvítug“ Segir Sandra að lokum kát í bragði.
Metasys er þróað og rannsakað sem þriggja mánaða áætlun og
þeir sem þurfa léttast ná bestum árangri sem skrá matardagbók,
auka hreyfingu og hyggja að mataræði!
Metasys hefur verið fáanlegt á Íslandi í 5 ár og er eitt vinsælasta
fæðubótaefnið til að grennast ásamt því að vera mjög orku-
gefandi og heilsubætandi en hægt er að nálgast fjölmargar góðar
reynslusögur á www.metasys.is
Fékk heilsuna aftur með Metasys
Sandra Fannarsdóttir
20%
afsláttur á meðan
birgðir endast!
-bónusinn var að missa 29 kg.
Metasys er ekki “kraftaverkapilla” árangur
þyngdarlosunar stjórnast af þrem megin þáttum.
1. Taka inn METASYS reglulega og minnst þrjá mánuði
2. Viðhafa skynsamlegt mataræði, borða reglulega,
forðast sykur, áfengi og óvönduð kolvetni
3. Stunda hæf ilega hreyf ingu minnst 3x í viku,
minnst 30 mínútur í senn.
METASYS er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum flestra stórmarkaða
pr
en
tu
n.
is